Forsvarsmenn Deutsche Bank leita til Katar

Hvernig ætlar Deutsche Bank að leysa úr vanda bank­ans? Meðal ann­ars með fjár­magni frá Al Thani fjöl­skyld­unni í Katar, sem öllu ræðu í olíu­rík­inu.

Þýski bank­inn Deutsche Bank hefur gengið gengum miklar hremm­ingar á und­an­förnum árum og óhætt er að segja að ekki sjái fyrir end­ann á þeim.

Þessi miss­erin er starf­semi bank­ans til rann­sóknar fyrir aðkomu að stór­felldu pen­inga­þvætti og Demókratar ætla sér að fá fjár­málaum­svif Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta upp á yfir­borðið, þar á meðal við­skipti hans við þýska bank­ann.

Vöxtur og erfiðleikar

Starf­semi hans teygir anga sína um allan heim og hefur hann á und­an­förnum tveimur ára­tugum vaxið hratt og mikið, einkum á sviði fjár­fest­inga­banka­sviði.

Bankinn glímir hins vegar við miklar erf­ið­leika þessi miss­erin, og greindi Bloomberg frá því í gær að for­svars­menn bank­ans hefðu átt í við­ræðum við kon­ungs­fjöl­skyld­una í Katar um að leggja bank­anum til meira fé, bæði hlutafé og laust fé.

Árið 2014 fjár­festi kon­ungs­fjöl­skyldan í bank­anum fyrir 8 millj­arða evra og hefur verið meðal hluta­hafa bank­ans und­an­farin ár. Stærstu hlut­hafar Deutsche Bank eru alþjóð­legir fag­fjár­festar, svo sem fjár­fest­inga­sjóðir og bankar, en þýskir hlut­hafar eiga 53 pró­sent hlut en erlendir fjár­festar 47 pró­sent, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu bank­ans.

Samkvæmt umfjöllun Bloomberg eru við­ræð­urnar við kon­ungs­fjöl­skyld­una í Katar á við­kvæmu stigi, ekki síst þar sem lík­legt þykir að bank­inn verið sektaður af yfir­völdum í Banda­ríkj­unum vegna þátt­töku í pen­inga­þvæti.

Mark­aðsvirði bank­ans er nú um 20 millj­arðar Banda­ríkja­dala, en virðið hefur dreg­ist saman um meira en 60 pró­sent frá því árið 2015. Slæm afkoma, rann­sóknir yfir­valda, hag­ræð­ing í rekstri og umfangs­mikil end­ur­skipu­lagn­ing, er það sem hefur ein­kennt starf­sem­ina.

Al Thani til bjargar?

Sjóð­irnir sem kon­ungs­fjöl­skyldan í Katar stýrir eru digrir, svo ekki sé fastar að orðið kveðið. Þó íbúar séu aðeins 2,6 millj­ónir, þá eru fjár­fest­inga­sjóð­irnir - byggðir upp með arð­inum af olíu­auð­lindum lands­ins - stórir og gefa þeir land­inu mikið vægi á fjár­mála- og verð­bréfa­mörk­uðum í heim­inum.

QIA, sjóður í eigu Katar, stýrir eignum upp á um 320 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 40 þús­und millj­örðum króna. Til sam­an­burðar er íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerfið með um 4 þús­und millj­arða króna.

Samkvæmt Bloomberg er það sá sjóður sem horft er til þess að muni fjár­festa í bank­anum, en þar er með­limur kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, Mohammed bin Abdulra­hman al Thani, með þræð­ina í hendi sér.

Al Thani nafið er Íslend­ingum kunn­ugt, en eitt þekktasta saka­málið sem tengt er við hrun fjár­mála­kerf­is­ins er Al Thani málið svo­nefnda, þar sem Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sigurður Ein­ars­son, Magnús Guð­munds­son og Ólafur Ólafsson, voru dæmdir í fang­elsi fyrir mark­aðs­mis­notkun og umboðs­svik. Fjallað er ítar­lega um málið í bók­inni Kaupt­hink­ing, eftir rit­stjóra Kjarnans, Þórð Snæ Júl­í­us­son.

Nú þegar hefur verið til­kynnt um það kon­ungs­fjöl­skyldan líti til Þýska­lands fyrir erlenda fjár­fest­ingu, og í fyrra var til­kynnt um að fjár­fest yrði í þýsku hag­kerfi fyrir 11 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur úm 1.300 millj­örðum króna, á næstu fimm árum.

Sameining við Commerzbank?

Deutsche Bank gæti sam­ein­ast Commerzbank, öðrum þýskum banka, til að styrkja efna­hag­inn og koma á meiri stöð­ug­leika í rekstinum. Sá síð­ar­nefndi er með heild­ar­eignir sem eru á við 1/3 af heild­ar­eignum Deutsche Bank.

Í umfjöllun Bloomberg 12. des­em­ber í fyrra var frá því greint að þýsk stjórn­völd væru að þrýsta á um að Deutsche Bank leysti úr bráða­vanda sínum með sam­ein­ingu við annan banka. Ekki hefur það þó gerst enn, og má eflaust rekja það til rann­sókna á starf­semi bank­ans. Fjár­festar sem yrðu hlut­hafar í bank­anum vilja fá skýr­ari mynd af því hvernig staða bank­ans er í raun og veru, áður en næstu skref verða tekin.

Efna­hags­reikn­ingur bank­ans er stór og mik­ill. Heild­ar­eignir bank­ans í lok árs 2017 námu rúm­lega 206 þús­und millj­örðum króna. Bankinn hefur unnið að því að minna eigna­hlið­ina, með sölu eigna, og fóru heild­ar­eignir bank­ans úr um 220 þús­und millj­örðum árið 2016 niður í 206 þús­und millj­arða árið eftir.

Til sam­an­burðar eru heild­ar­eignir Arion banka, Lands­bank­ans og Íslands­banka rúm­lega 3 þús­und millj­arðar króna.

Ljóst er þó að sam­ein­ing við Commerzbank myndi stækka efna­hags­reikn­ing­inn, en búist er við því að með sam­ein­ing­unni vilji þýsk stjórn­völd tryggja öryggi rekstr­ar­ins og auka stöð­ug­leik­ann í fjár­mála­kerfi lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár