Flugmaðurinn faldi veikindi fyrir vinnuveitendum - átti ekki að vera í vinnu

Flug­mað­ur­inn Andreas Lubitz var veikur en faldi veik­indin fyrir vinnu­veit­endum sínum hjá Germanwings og Luft­hansa. Þetta kom fram í yfir­lýs­ingu sak­sókn­ara í Dus­seldorf vegna rann­sóknar á brot­lend­ingu þotu frá Germanwings í frönsku ölp­unum á þriðju­dag.

Fyrr í dag var greint frá því að lög­regla hefði leitað á tveimur heim­ilum Lubitz að vís­bend­ingum um ástæðu þess að hann virð­ist hafa brot­lent þot­unni vilj­andi. Við hús­leit­ina fannst veik­inda­vott­orð sem búið var að rífa, en sam­kvæmt vott­orð­inu var Lubitz ekki í ástandi til þess að vinna dag­inn sem hann brot­lenti þot­unni. „Skjöl fund­ust sem benda til við­var­andi veik­inda og við­eig­andi lækn­is­að­stoð,“ stóð í yfir­lýs­ing­unni. Þetta þykir renna stoðum undir þá til­gátu að hann hafi verið veikur en falið veik­indin fyrir vinnu­veit­endum sínum og vinnu­fé­lögum. Nú verða gögnin rann­sökuð frekar og það mun taka nokkra daga, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni. Ekkert sjálfs­vígs­bréf hefur fund­ist og engin merki um að stjórn­mála- eða trú­ar­legar ástæður hafi legið að baki.

„Þetta er hræði­legt, þetta verður sífellt óskilj­an­legra,“ sagði Dr Hans-Werner Teichmüller, læknir og for­seti sam­bands lækna sem gera lækn­is­skoð­anir á flug­á­höfnum, í sam­tali við Guardian. Hann ræddi einnig um til­lögur sem mikið er rætt um í Þýska­landi þessa dag­ana og ganga út á að flug­menn gang­ist undir mun ítar­legri sál­fræði­möt. Hann sagði mjög lík­legt að af þessu verði, en flug­maður sem vilji gera eitt­hvað af þessu tagi gæti verið nægi­lega fær til að láta líta út fyrir að allt sé í lagi, þrátt fyrir að vera með sjálfs­morðs­hugs­anir. Aldrei sé hægt að koma algjör­lega í veg fyrir svona lagað.

Þýska blaðið Bild segir að Lubitz hafi verið lát­inn taka hlé frá flug­skóla Luft­hansa í Arizona í Banda­ríkj­unum vegna þess að hann hafi ekki verið hæfur til að fljúga. Hann hafi í kjöl­farið verið í með­ferðum í eitt og hálft ár vegna þung­lyndis, áður en hann snéri aftur í skól­ann og lauk þjálfun. Bild segir jafn­framt að í kjöl­far veik­inda hafi hann verið merktur í kerfi flug­yf­ir­valda á þann hátt að hann þyrfti að und­ir­gang­ast lækn­is­skoð­anir reglu­lega.

Þá hefur Bild eftir heim­ild­ar­mönnum innan lög­regl­unnar að verið sé að rann­saka hvort Lubitz hafi átt í ein­hvers konar per­sónu­legum erf­ið­leikum, eins og erf­ið­leikum í sam­bandi við kær­ustu sína. Engum af þessum fréttum Bild hefur verið svarað opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár