Ekki benda á mig!

Emb­ætt­is­menn dönsku Skatt­stof­unnar (SKAT) og starfs­menn danska skatta­ráðu­neyt­is­ins þekkja lík­ast til ekki texta og lag Bubba Morthens "Lög og reglu". Setn­ing­una "ekki benda á mig" hafa þeir þó til­einkað sér, eins og varð­stjór­inn í texta Bubba. Enginn telur sig bera ábyrgð á stærsta skattsvika­máli í sögu Dan­merkur en erlend fyr­ir­tæki eru grunuð um að hafa svikið 6.2 millj­arða króna (rúma 120 millj­arða íslenska) út úr danska skatt­inum. Danskir skatta­sér­fræð­ingar telja hugs­an­legt að upp­hæðin sé mun hærri.

Ábending frá útlöndum


Danska Skatt­stofan, SKAT, fékk fyrir tveimur mán­uðum ábend­ingu frá erlendum skatta­yf­ir­völdum. Þar var vakin athygli á að lík­legt væri að erlend fyr­ir­tæki hefðu fengið háar fjár­hæðir greiddar frá dönsku skatt­stof­unni. Erlend fyr­ir­tæki sem eiga hluta­bréf í fyr­ir­tækjum í Danmörku eiga að halda eftir 27% af hugs­an­legum arð­greiðslum og greiða dönskum skatta­yf­ir­völdum.

Vegna tví­skött­un­ar­samn­inga eiga erlendir hlut­hafar að greiða skatt af arð­inum í heima­land­inu og eiga jafn­framt rétt á að fá skatt­inn sem borg­aður var í Danmörku end­ur­greiddan. Stað­reyndin var hins­vegar sú að þau "fyr­ir­tæki" sem fengu end­ur­greiðsl­urnar frá Danmörku áttu ekki hluta­bréf í dönskum fyr­ir­tækjum og áttu þess vegna ekki rétt á neinum end­ur­greiðslum frá SKAT.

[caption id="attachment_6708" align="alignnone" width="730"] Þau fyr­ir­tæki, með erlent heim­il­is­festi, sem sótt­ust eftir end­ur­greiðslu og fengu, áttu sum hver engin hluta­bréf í dönskum fyr­ir­tækjum og áttu því ekki rétt á end­ur­greiðsl­unni.[/caption]

Uppi varð fótur og fit


Ekki er ofmælt að allt hafi farið í háa­loft í Danmörku þegar frétt­irnar um end­ur­greiðsl­urnar komust í danska fjöl­miðla fyrir viku síðan. Stjórn­mála­menn­irnir keppt­ust við að lýsa hneykslan sinni og kröfð­ust skýr­inga frá SKAT, skatta­ráð­herr­anum og skatta­ráðu­neyt­inu.

Þau fyrirtæki, með erlent heimilisfesti, sem sóttust eftir endurgreiðslu og fengu voru sum hver ekki með neina starfsemi í Danmörk.
Þau fyr­ir­tæki, með erlent heim­il­is­festi, sem sótt­ust eftir end­ur­greiðslu og fengu voru sum hver ekki með neina starf­semi í Danmörk.

Allir voru sam­mála um að það væri með hreinum ólík­indum, og auð­vitað óþol­andi, að millj­arðar gætu streymt út úr rík­is­kass­anum án þess að nokkur lif­andi sála fylgd­ist með hvort allt væri með felldu. Athyglin og spurn­ing­arnar beindust fyrst og fremst að starfs­fólki SKAT. Næstu daga fjöll­uðu dönsku fjöl­miðl­arnir ítar­lega um "skanda­len" eins og þau köll­uðu málið. Þar kom ýmis­legt fram í dags­ljósið.

Starfsfólkið hafði margsinnis vakið athygli á vandanum


Fjöl­miðl­arnir hafa rætt við fjöld­ann allan af fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­fólki SKAT. Nær engir vilja koma fram undir nafni, þótt fjöl­miðl­arnir viti nöfn allra við­mæl­enda. Núver­andi starfs­menn ótt­ast um stöðu sína, "það er ekki til vin­sælda fallið að gagn­rýna yfir­menn­ina" sagði einn starfs­maður hjá SKAT og mælti þar fyrir munn margra.

Meðal þess sem komið hefur fram er að margir starfs­menn höfðu marg­sinnis vakið athygli yfir­manna sinna á að miklar brotala­mir væru í eft­ir­liti skatts­ins á mörgum sviðum, þar á meðal vegna end­ur­greiðslna. Í skýrslu sem innra eft­ir­lit SKAT gerði árið 2000, og dag­blaðið Berl­ingske komst yfir, komu fram alvar­legar athuga­semdir varð­andi eft­ir­litið og svip­aðar athuga­semdir er að að finna í minn­is­blaði frá 2005.

[caption id="attachment_38378" align="alignnone" width="1024"] Peter Loft, sem var ráðu­neyt­is­stjóri í Skatta­ráðu­neyt­inu frá 1993-2012 sagð­ist ekki muna sér­lega mikið eftir þessu máli þegar eitt dönsku blað­anna spurði hann um það.[/caption]

Peter Loft, sem var ráðuneytisstjóri í Skattaráðuneytinu frá 1993-2012 sagðist ekki muna sérlega mikið eftir þessu máli þegar eitt dönsku blaðanna spurði hann um það.
Peter Loft, sem var ráðu­neyt­is­stjóri í Skatta­ráðu­neyt­inu frá 1993-2012 sagð­ist ekki muna sér­lega mikið eftir þessu máli þegar eitt dönsku blað­anna spurði hann um það.

Peter Loft, sem var ráðu­neyt­is­stjóri í Skatta­ráðu­neyt­inu frá 1993-2012 (var rek­inn í tengslum við mikið og til­hæfu­laust mold­viðri í kringum skatta­mál Helle Thorning-Schmidt), sagð­ist ekki muna sér­lega mikið eftir þessu máli þegar eitt dönsku blað­anna spurði hann um það. Fjöl­miðl­arnir gefa lítið fyrir þessi svör, kalla þau aum­legt yfir­klór. Starfs­menn SKAT, sem fjöl­miðlar hafa rætt við síð­ustu daga segja að þeim hafi virst sem ekki væri sér­stakur vilji hjá skatta­yf­ir­völdum til að aðhaf­ast neitt þótt athygli þeirra væri vakin á fjöl­mörgum málum þar sem vafi lék á hvort lögum væri fylgt.

Hver ber ábyrgðina?


Viðbrögð stjórn­mála­manna og hátt­settra emb­ætt­is­manna minna um margt á sög­una um litlu gulu hæn­una, nema það að í þess­ari sögu vantar þá litlu gulu. Fyrr­ver­andi skatta­ráð­herrar segja að þeir hafi ekki haft minnstu hug­mynd um að ein­hver maðkur væri í þess­ari end­ur­greiðslu­mysu. Emb­ætt­is­menn­irnir benda svo hver á annan. Sumir þeirra bera við gleymsku þegar spurt hefur verið hvort þeir hafi heyrt ávæn­ing af því að pottur væri brot­inn í end­ur­greiðslu­kerf­inu.

Fjöl­miðla­menn og skatta­sér­fræð­ingar eru sam­mála því að ráð­herra hvorki megi né geti verið með nefið niðri í ein­stökum málum. Þeir beri hins­vegar ábyrgð á því að á und­an­förnum árum hefur verið þrengt mjög að starf­semi skatts­ins. Í dag eru starfs­menn­irnir um það bil sex þús­und og tvö hund­ruð en fyrir tíu árum voru þeir um tíu þús­und. Rök­semdir sumra stjórn­mála­manna hafa verið þau að nú sé orðin svo mikil sjálf­virkni í öllu kerf­inu að hægt sé að kom­ast af með mun færra fólk. Aðrir segja að allt of langt hafi verið gengið í nið­ur­skurð­inum. Kannanir fjöl­miðla sýna að almenn­ingur er mjög ósáttur við að skera svo mikið niður hjá einni mik­il­væg­ustu stofnun rík­is­ins. Alls kyns mis­tökum hjá skatt­inum hefur fjölgað mjög síð­ustu ár, hverju þar er um að kenna er ekki gott að segja. 

Ráðuneytið og yfirstjórn SKAT bera ábyrgðina


Þótt ráðu­neyt­is­stjóri Skatta­ráðu­neyt­is­ins (og líka sá fyrr­ver­andi) segi fullum fetum að ábyrgðin liggi fyrst og fremst hjá yfir­stjórn SKAT taka ekki allir þær skýr­ingar gildar. Yfir­stjórn SKAT telur ráðu­neytið ekki geta fríað sig ábyrgð, SKAT sé stofnun sem heyri undir ráðu­neytið og þar liggi höf­uð­á­byrgðin í þessu máli sem öðrum. Innra eft­ir­lit SKAT hefur frá árinu 2012 margoft sent ráðu­neyt­is­stjóra Skatta­ráðu­neyt­is­ins skýrslur og minn­is­blöð þar sem vakin er athygli á brota­lömum í end­ur­greiðslu­kerf­inu.

Danskir fjöl­miðlar full­yrða að skýrsl­urnar og minn­is­blöðin hafi endað í skúffu ráðu­neyt­is­stjór­ans og aldrei náð lengra. Sér­fræð­ingar sem blöðin hafa rætt við segja engan vafa leika á að Skatta­ráðu­neyti beri höf­uð­á­byrgð­ina á öllu því er varðar skatta­mál, en yfir­stjórn SKAT beri þó einnig mikla ábyrgð. Um næstu mán­aða­mót á nefnd sem núver­andi skatta­ráð­herra skip­aði að skila skýrslu en sú skýrsla fjallar fyrst og fremst um fram­kvæmd end­ur­greiðsln­anna. Á næstu dögum tekur önnur nefnd til starfa, sú verður á vegum Rík­is­end­ur­skoð­un­ar­innar og á að rann­saka sam­skipti ráðu­neyt­is­ins og SKAT. Skýrsla nefnd­ar­innar á að liggja fyrir um mitt næsta ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár