Evrópskt þrælahald

Það var miður skemmti­leg sjón sem fyrir nokkrum dögum blasti við dönskum lög­reglu­þjónum við hús­rann­sókn hjá flutn­inga­fyr­ir­tæki í Padborg. Þar búa tugir flutn­inga­bíl­stjóra frá Sri Lanka og Fil­ipps­eyjum við ömur­legar aðstæður og smán­ar­laun.

Svona var umhorfs hjá 200 filippseyskum bílstjórum í gámunum í Padborg.
Svona var umhorfs hjá 200 fil­ippseyskum bíl­stjórum í gámunum í Padborg. Mynd: Fagbladet 3F

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag fór hópur lög­reglu­þjóna, ásamt full­trúum danskra laun­þega­sam­taka í óund­ir­búna heim­sókn til flutn­inga­fyr­ir­tæk­is­ins Kurt Beier sem hefur aðsetur í Padborg á Suður-Jótlandi, skammt frá landa­mær­unum að Þýska­landi. Ástæða þess­arar heim­sóknar var ábend­ing dönsku stétt­ar­fé­laga­sam­tak­anna 3F en starfs­fólk þar hafði kom­ist á snoðir um að ekki væri allt sem skyldi hjá Kurt Beier. Þegar danska lög­reglan kom, ásamt full­trúum 3F á svæðið þar sem bíl­stjórar flutn­inga­fyr­ir­tæk­is­ins hafa aðsetur blasti við þeim ömur­leg sjón að sögn Kim Brandt, for­manns 3F í Aabenraa „ég hef aldrei séð annað eins og hef þó ýmsu kynnst.“

Eins og í fátækrahverfi

Mynd­irnar sem starfs­fólk 3F tók og myndir sem bíl­stjór­arnir hafa tekið í „svoköll­uðum íbúðum“ (orða­lag Kim Brandt) eru þess eðlis að fæstum gæti til hugar komið að um sé að ræða manna­bú­stað á danskri grund. Hrip­lekir óupp­hit­aðir gámar með myglu­blettum á veggjum eld­un­ar­að­staðan gasprímusar sem standa á gólf­inu, hrein­læt­is­að­stöð­unni verður ekki með orðum lýst (orð Kim Brandt), engin rúm, ein­ungis grút­skítugar og lélegar svamp­dýnur, engin þvotta­að­staða. Hvergi kæli­skápar né aðrar geymslur fyrir mat­væli. „Ömurlegt og minnti helst á myndir sem maður hefur séð úr fátækra­hverfum stór­borga í öðrum heims­álfum“ sagði Kim Brandt sem sagð­ist aldrei hafa látið sér til hugar koma að svona nokkuð gæti átt sér stað í Danmörku. Á staðnum voru 26 bíl­stjórar, lang­flestir frá Fil­ipps­eyjum en nokkrir frá Sri Lanka. Þeir fóru á brott með lög­regl­unni og voru teknar af þeim skýrslur og síðan fengu þeir inni í húsum sem lög­reglan útveg­aði í nágrenni fyr­ir­tæk­is­ins. Hvort þeir starfa áfram hjá Kurt Beier er óljóst. Þessir 26 sögðu frá því að sam­tals byggju um það bil 200 bíl­stjórar, ekki þó allir sam­tímis, í gámunum

Launin aðeins brot af dönskum lágmarkslaunum

Það er ekki bara aðbún­að­ur­inn sem fékk 3F laun­þega­sam­tökin til að leita til lög­regl­unnar. Nokkrir úr hópi bíl­stjór­anna höfðu upp­lýst að tíma­laun þeirra væru um það bil 20 krónur danskar (um það bil 370 íslenskar krónur) sem er aðeins brot af dönskum lág­marks­launum. Þeim væri sömu­leið­ist gert skylt að vinna langt umfram það sem kveðið er á um í dönskum kjara­samn­ingum. Þeir væru lang oft­ast tveir í bílnum og iðu­lega á ferð­inni 18 klukku­stundir á sól­ar­hring, helm­ing þess tíma undir stýri en hinn helm­ing tím­ans í far­þega­sæt­inu. Sex klukku­tíma væri bíll­inn svo stopp á bíla­stæði og þá yrðu þeir að sofa í bílnum sem þeir mættu ekki yfir­gefa. Svo væri aftur haldið af stað.

Hvernig getur svona gerst og hvað með lögin?

Þetta eru spurn­ingar sem danskir fjöl­miðlar hafa margoft varpað fram und­an­farna daga. Margir danskir þing­menn segj­ast sal­tillir yfir því að svona nokkuð geti átt sér stað í Danmörku og krefj­ast þess að atvinnu­mála­ráð­herr­ann bregð­ist við. Ekki sé hægt að líða svona lagað og sumir hafa tekið svo djúpt í árinni að kalla þetta þræla­hald, man­sal. Lög­fræð­ingur, sér­fræð­ingur í vinnu­rétti, sem danska útvarpið, DR ræddi við sagði málið snúið og Kurt Beier nýtti sér greini­lega glufur í kerf­inu. Lög­fræð­ingur Kurt Beier hafnar því algjör­lega að fyr­ir­tækið brjóti lög.

Bíl­stjór­arnir hafa allir verið ráðnir til dótt­ur­fé­lags Kurt Beier í Póllandi. Heimilt er að ráða til vinnu fólk frá þjóðum utan ESB ef ekki er hægt að manna störf með heima­fólki. Á síð­asta ári voru sam­tals 62 þús­und bíl­stjórar, frá löndum utan ESB ráðnir til starfa í Póllandi. Þegar bíl­stjóri hefur fengið atvinnu­leyfi, t.d. í Póllandi, hefur hann jafn­framt akst­urs­leyfi í öllum löndum ESB, með ákveðnum tak­mörk­unum. Hann má, til dæmis, koma með vörur frá Þýska­landi til Dan­merkur, tæma bíl­inn og fara síðan þrjár ferðir með vörur innan Dan­merkur en ekki meira. Þá verður hann að fara úr landi en getur, ef svo ber undir, komið aftur sama dag­inn með annan farm og end­ur­tekið leik­inn. Þessar reglur eru nú til skoð­unar innan ESB, ekki síst vegna mót­mæla Dana en þeir segja þær bjóða heim und­ir­boðum í flutn­ingum.

Eitt stærsta flutningafyrirtæki Danmerkur

Kurt Beier fyr­ir­tækið er í hópi stærstu vöru­flutn­inga­fyr­ir­tækja í Danmörku, með um 400 flutn­inga­bíla í rekstri. Auk þess á fyr­ir­tækið dótt­ur­fyr­ir­tæki í nokkrum löndum utan Dan­merkur. Fyr­ir­tækið er þrjá­tíu ára gam­alt en Kurt Beier fjöl­skyldan hefur þó mun lengur rekið flutn­inga­starf­semi. Karsten Beier, núver­andi for­stjóri býr ásamt fjöl­skyldu sinni í Hjerting, úthverfi Esbjerg á Jótlandi, ekki í hrip­lekum vörugámi, eins og Ekstra blaðið lýsti húsa­kynnum for­stjór­ans. Ein­býl­is­húsið keypti Karsten Beier fyrir rúmu ári og sam­tímis keypti hann tvö önnur hús, til að hafa óheftan aðgang að strönd­inni. For­stjóra­fjöl­skyldan á einnig hús í Monaco og í bíl­skúrnum stendur nýlegur Ferrari af dýr­ustu gerð. Ekstra blað­inu hefur ekki, fremur en öðrum dönskum fjöl­miðlum, tek­ist að ná tali af for­stjór­anum, sem hefur ann­ars alla jafna verið meira en fús að tjá sig.

Þekkt víða um lönd

Kurt Beier fyr­ir­tækið er eins og áður sagði stórt fyr­ir­tæki á sínu sviði. Það hefur á síð­ustu árum margoft verið til umfjöll­unar í evr­ópskum fjöl­miðlum. Umfjöll­unin hefur ætíð snú­ist um það sama, nefni­lega alls kyns svik gagn­vart starfs­fólki fyr­ir­tæk­is­ins. Sem dæmi stefndi rúm­enskur bíl­stjóri GBT Logistic SRL, dótt­ur­fyr­ir­tæki Kurt Beier í Rúmeníu, vegna van­gold­inna launa. Bíl­stjór­inn hafði unnið 843 klukku­stundir án þess að fá greidd laun og þegar hann hafði árang­urs­laust reynt að fá borgað leit­aði hann, með aðstoð stétt­ar­fé­lags síns, til dóm­stóla. Bæj­ar­réttur í Rúmeníu dæmdi GBT til að borga bíl­stjór­anum upp­hæð sem sam­svarar 470 þús­und íslenskum krónum. Áfrýj­un­ar­dóm­stóll stað­festi síðar þennan dóm. Mörg við­líka mál mætti nefna en þau eiga það öll sam­eig­in­legt að Kurt Beier hefur ætíð tapað og sam­tals orðið að greiða stefn­endum stórfé. Í Rúmeníu einni eru slík mál fleiri en 40 tals­ins.

Margir hætta viðskiptum við Kurt Beier

Frétt­irnar af aðbún­aði og launum bíl­stjóra hjá Kurt Beier hafa vakið mikla athygli og hörð við­brögð í Danmörku. Síðan málið komst í fjöl­miðla fyrir nokkrum dögum hafa fjöl­mörg dönsk fyr­ir­tæki hætt við­skiptum við Kurt Beier. JYSK (Rúm­fatalager­inn) varð fyrst til og lýsti því yfir strax sama dag og greint var frá mál­inu að öllum samn­ingum við Kurt Beier, og hugs­an­lega yfir- eða und­ir­verk­taka á vegum þess fyr­ir­tækis yrði sam­stundis hætt. Síðan hafa mörg dönsk fyr­ir­tæki fylgt í kjöl­farið.

Framhaldið

Þegar þetta er skrifað eru fimm sól­ar­hringar síðan danska lög­reglan fór í „heim­sókn­ina“ til Kurt Beier. For­svars­menn 3F stétt­ar­fé­laga­sam­tak­anna hafa lýst yfir að þetta mál verði ekki látið logn­ast út af, sam­tökin muni sjá til þess. Þótt Kurt Beier fyr­ir­tækið seg­ist engin lög hafa brotið kann rann­sókn lög­regl­unnar, sem er hafin, að leiða annað í ljós. Þar er einkum horft til launa­mála, vinnu­tíma og aðbún­aðar. Nokkrir danskir fjöl­miðlar hafa nefnt að ef nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar yrði að fyr­ir­tækið hafi brotið á starfs­mönnum þess, með þeim hætti að flokk­ast geti undir þræla­hald (sla­veri), gæti farið svo að Karsten Beier yrði að skipta um heim­il­is­fang. Þyrfti að sætta sig við sex fer­metra kytru í stað ein­býl­is­húss­ins í Hjerting.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár