Gagnaleki: NSA notar MORECOWBELL-forritið til að safna gögnum

Banda­ríska þjóðar­ör­ygg­is­stofn­unin (NSA) notar for­rit sem kall­ast MORECOWBELL til að safna lýsigögnum á inter­net­inu. Forritið gerir það að verkum að hægt sé að leita í hinu svo­kall­aða DNS-kerfi (e. Domain Name System), sem öll skráð lén þurfa á að halda, mörg þús­und sinnum á klukku­stund án þess að það komi fram að banda­rísk stjórn­völd séu á bak­við þessa upp­lýs­inga­öflun.

Þetta kemur fram í nýjum gögnum sem Kjarninn birtir í dag í sam­starfi við Associated Whistleblowing Press (AWP) og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn. Gögnunum var lekið til AWP sem hefur unnið að birt­ingu þeirra und­an­farið.

Hægt er að nálg­ast gögnin hér.

Öll lén þurfa DNS


Öll lén sem skráð eru þurfa á DNS-þjón­ustu að halda til að hægt sé að finna þau á inter­net­inu. Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu ISNIC, sem rekur nafna­þjón­ustu fyrir íslenska höf­uð­lénið .is, er lén (e. dom­ain) „ein­föld en snjöll fram­setn­ing á ip-tölu þess tækis sem hýsir tölvu­póst og/eða vef­síðu léns­ins, og þótt skipt sé um ip-tölu (hýs­ingu) helst lénið áfram óbreytt“.

Út um allan heim eru skrán­ing­ar­fyr­ir­tæki á borð við ISNIC sem stjórna nafna­kerfi inter­nets­ins á heims­vísu og þar gegnir umrætt DNS-kerfi algjöru grund­vall­ar­hlut­verki.

Galopin bók


Mikil umræða hefur verið um öryggi DNS-kerf­is­ins und­an­farin ár og mik­ill þrýst­ingur á að bæta það, sér­stak­lega á vett­vangi sem kall­ast á ensku Internet Engineering Task Force (IETF) sem gengur út á að þróa og koma út inter­net-stöðlum. Innan þess vett­vangs er haldið utan um alla staðla sem snúa að DNS-kerf­inu, meðal ann­ars hversu öruggt það sé. Önnur sam­bæri­leg sam­tök, The Internet Architecture Board, hafa líka látið sig málið varða og kallað eftir því að for­rit­arar noti dulkóðun í öllu sem þeir geta á inter­net­inu, líka innan DNS-kerf­is­ins.

En af hverju eru allir þessir tölvu­snill­ingar svona áhyggju­fullir? Nú er DNS-kerfið, sem gerir það að verkum að við finnum réttar heima­síður með því að slá inn lén á borð við Kjarninn.is, logreglan.is eða stjorn­arrad.is, svo örfá dæmi séu tekin, galopin bók.

 

Gögn um MORECOWBELL birt


Ný gögn, sem Kjarninn birtir í dag í sam­starfi við Associated Whistleblowing Press og fjöl­miðla víðs­vegar um heim­inn, sýna að for­rit banda­rísku þjóðar­ör­ygg­is­stofn­un­ar­innar (e. National Security Agency eða NSA) sem kall­ast MORECOWBELL fylgist með DNS-kerf­inu til að safna saman svoköll­uðum lýsigögnum (meta­data) á inter­net­inu. Lýsigögn eru í raun gögn um gögn. Dæmi um slík gögn eru skrán­ing og flokkun vef­síðna og ann­ars efni á inter­net­inu. Lýsigögnin hjálpa til dæmis leit­ar­vélum á borð við Google að finna síður á inter­net­inu.

Samkvæmt gögn­unum gerir for­ritið það að verkum að hægt sé að leita í DNS-kerf­inu mörg þús­und sinnum á klukku­stund án þess að það komi fram að banda­rísk stjórn­völd séu á bak­við þessa upp­lýs­inga­öflun. Net­þjón­arnir sem NSA hefur leigt til að fylgj­ast með vef­þjónum (e. web ser­vers) eru stað­settir í Malasíu, Þýska­landi og Danmörku.

Þrýst á um lausnir


Eru til lausnir á þessu? Já, sér­fræð­ingar hafa til dæmis mælt með frek­ari dulkóðun þegar DNS-kerfið er notað. Þá eru margir þeirrar skoð­unar að það eigi til dæmis að búa til mörg inter­net innan inter­nets­ins sem lúti öðrum stöðlum.

Þangað til að breyt­ing verður á virð­ist NSA hins vegar geta sótt sér eins mikið af lýsigögnum innan DNS-kerf­is­ins og stofn­unin telur sig hafa not fyrir. Og not­endur inter­nets­ins að sætta sig við að banda­ríska þjóðar­ör­ygg­is­stofn­unin geti safnað gögnum um þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár