Segja dómsmálaráðherra nýta innrásina í Úkraínu til að koma nýju útlendingafrumvarpi í gegn

Þingmenn Pírata segja dóms­mála­ráð­herra nýta stríðið í Úkraínu til að „sparka flótta­fólki úr landi“ og koma nýju útlend­inga­frum­varpi í gegn.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, gagnrýndi dómsmálaráðherra á þingi í dag og sagði það „ógeðslegt að nota stríð í Úkraínu sem átyllu fyrir því að svipta fólk á flótta mannréttindum“.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, gagn­rýndi dóms­mála­ráð­herra á þingi í dag og sagði það „ógeðs­legt að nota stríð í Úkraínu sem átyllu fyrir því að svipta fólk á flótta mann­rétt­indum“. Mynd: Bára Huld Beck

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, segir Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra ætla að nýta inn­rás Rúss­lands í Úkraínu til að koma nýju útlend­inga­frum­varpi í gegn á Alþingi. Andrés Ingi vís­aði í orð ráð­herra í útvarps­við­tali í morgun þar sem hann sagð­ist vona til að kynna nýtt útlend­inga­frum­varp fyrir rík­is­stjórn­inni í næstu viku „sem mun leysa þessi brýnu mál.“

„Og hver eru þessi brýnu mál?“ spurði Andrés Ingi í upp­hafi þing­fundar í dag. „Jú, honum finnst ekki ganga nógu vel að sparka flótta­fólki úr landi. Það vantar laga­heim­ild til að þvinga þau til lík­ams­rann­sóknar, hann vantar laga­heim­ild til að geta vísað þeim alls­lausu á göt­una í Grikk­landi. Þetta ætlar hann að nota Úkra­ínu­stríðið til að rétt­læta. Það er ógeðs­legt að nota stríð í Úkraínu sem átyllu fyrir því að svipta fólk á flótta mann­rétt­indum. Ógeðs­legt að rík­is­stjórnin ætli að gera það,“ sagði Andrés Ingi.

Orð dóms­mála­ráð­herra í við­tölum síð­ustu daga hafa vakið athygli, ekki síst meðal stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna.

[links]Ráð­herr­ann sagði „hreint neyð­ar­á­stand“ ríkja hjá Útlend­inga­stofnun sem lýsti sér meðal ann­ars í því að flótta­menn sem eru hér fyrir „teppi hús­næði og aðstöðu fyrir aðra sem við myndum vilja taka á mót­i“.

Andrés Ingi segir að nú reyni á sam­starfs­fólk dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn um það hvort það hleypi „þessum við­bjóði í gegnum rík­is­stjórn og þing­flokka, hvort það ætli að taka þátt í stríði Jóns Gunn­ars­sonar gegn rétt­indum fólks á flótta eða taka sér stöðu með mann­úð­inni.“

„Hann ætti að gæta orða sinna “

Forseti Alþingis bað Andrés Inga að gæta orða sinna og gæta að orða­vali. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, tók næst til máls og sagði hæst­virtan dóms­mála­ráð­herra einmitt mega gæta orða sinna.

„Hann ætti að gæta orða sinna áður en hann egnir við­kvæmum hópum uppi á mótu hvorum öðrum í ein­hvers konar tind­áta­leiks hans sjálfs. Það er nefni­lega virki­lega ógeðs­legt að egna svona hópum upp á móti hvorum öðrum. Að not­færa sér stríðið í Úkraínu til þess að vísa hópi flótta­manna á göt­una í Grikk­landi.“

Þór­hildur Sunna minnti á að um sama hóp er að ræða og Útlend­inga­stofnun neit­aði að veita þjón­ustu ef þeir geng­ust ekki undir PCR-próf. Ákvörðun sem kæru­nefnd útlend­inga­mála felldi úr gildi í júní í fyrra þar sem hún taldi stofn­un­ina ekki hafa heim­ild í lögum til að beita sér með þeim hætti sem hún gerði.

Krefur ríkisstjórnina um betri svör

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagð­ist eiga erfitt með að átta sig á orð­ræðu rík­is­stjórn­ar­innar um hvernig eigi að bregð­ast við flótta­manna­vand­anum. Hann sagði tím­ann í þing­sal mik­il­vægan.

„Þess vegna skil ég ekki hvers vegna rík­is­stjórnin kemur með svona útspil í stað þess að svara okkur strax: Hvernig á að bregð­ast við flótta­manna­vand­anum frá Úkraínu? Ekki með því að segja: Við verðum nú fyrst að losa okkur við þá sem við erum með hérna áður en við getum tekið á móti ein­hverjum öðrum. Það finnst mér algjör­lega óásætt­an­legt og við þurfum að fá betri svör frá rík­is­stjórn­inni um það hvað á að gera sem fyrst því að vand­inn er þess eðlis.“

Stjórn­ar­þing­menn­irnir Jóhann Friðrik Frið­riks­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og Orri Páll Jóhanns­son, þing­maður Vinstri grænna, tóku einnig til máls og frá­bað Jóhann Friðrik sér þá umræðu um að rík­is­stjórnin muni ekki standa við orð sín um mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu. Orri Páll tók undir. „Auðvitað munum við vera þjóð meðal þjóða þegar kemur að því að aðstoða flótta­fólk sem er í þessum hræði­legu aðstæðum sem við horfum upp á breyt­ast frá mín­útu til mín­útu í Úkraínu.“

Andrés Ingi tók þá til máls að nýju og sagð­ist ekki vera viss um að stjórn­ar­þing­menn­irnir hefðu heyrt umræð­una.

„Við vorum ekk­ert að tala um það hvort Ísland ætl­aði að taka á móti flótta­fólki frá Úkraínu. Ég held að það liggi fyrir að það standi til. Það sem við erum hins vegar að gagn­rýna er að hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra ætlar að nýta ferð­ina, ætlar að nota flótta­fólkið frá Úkraínu sem átyllu fyrir því að koma í gegn frum­varpi, sem hann er fjórði ráð­herra þess­arar rík­is­stjórnar til að reyna að koma í gegn, frum­varpi sem snýst ein­göngu um það að geta sparkað fólki hraðar úr landi,“ sagði Andrés Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár