Hin fullkomna hnignun íslensks handbolta

Íslenska þjóðin hefur und­an­farna tvo ára­tugi tengst íslenska karla­lands­lið­inu í hand­bolta sterkum böndum. En tengslin milli þjóðar og „Strák­anna okkar" virð­ast vera að rofna. Og mögu­lega er ást­ar­sam­band­inu lokið.

Íslenska hand­boltalands­liðið sýndi eina and­laus­ustu frammi­stöðu sem sést hefur hjá íslensku hóp­í­þrótta­lands­liði í gær þegar liðið tap­aði leik sínum gegn Króatíu á fyrstu tíu mín­útum hans. Leik­ur­inn skipti Ísland gríð­ar­legu máli. Undir var áfram­hald­andi vera á Evr­ópu­mót­inu (EM) í hand­bolta og mögu­leik­inn á sæti á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó. And- eða getu­leysi liðs­ins, sem nokkrum dögum áður hafði tapað fyrir mun lægra skrif­uðum Hvít-Rússum, var samt sem áður algjört.

Gull­ald­ar­tíma­bili íslensks hand­bolta, „Strák­anna okkar“, leið undir lok með þess­ari afleitu frammi­stöðu. Tímabil sem hófst á Evr­ópu­mót­inu árið 2002 þegar nokkrir af bestu hand­bolta­mönnum Íslands­sög­unnar stigu sín fyrstu spor sem burða­rásar í lands­lið­inu. Hápunktar þessa tíma­bils voru silf­ur­verð­laun á Ólymp­íu­leik­unum í Pekíng 2008 og brons­verð­laun á EM tveimur árum síðar.

Sjö leik­menn sem tóku þátt í EM í Póllandi fyrir Íslands hönd spil­uðu á Ólymp­íu­leik­unum 2008. Tíu á EM 2010. Margir þeirra eru komnir á loka­sprett­inn á sínum ferli og því miður virð­ist blasa við að þeir sem eiga að feta í fót­spor þeirra eru fjarri því að vera í sama klassa. Vandséð er að íslenskt hand­boltalands­lið með menn á sama getu­stigi og Ólafur Stef­áns­son, Alex­ander Pet­ers­son, Guðjón Val Sig­urðs­son, Aron Pálm­ars­son og Snorra Stein Guð­jóns­son alla inn­an­borðs verði aftur til. Og ekki víst að ný kyn­slóð afburða­hand­bolta­manna, sem gæti komið upp eftir nokkur ár, myndi duga til að halda þeim sterku tengslum sem hafa verið á milli íslenska hand­boltalands­liðs­ins og þjóð­ar­innar.

Það er nefni­lega ekki þannig að mis­heppnuð kyn­slóða­skipti séu eina ástæða þess að venju­legir Íslend­ingar eru að fjar­lægj­ast hand­bolta. Í næstum tvo ára­tugi hefur hand­bolta­á­horf í jan­úar verið jafn reglu­legur við­burður og jól, páskar og rign­ing í júní. Í aðdrag­anda þess móts sem íslenska liðið var að ljúka þátt­töku á var hins vegar eins og eitt­hvað hefði breyst. Áhuginn var ein­hvern veg­inn miklu minni. Öll umfjöllun og stemmn­ing virt­ist þröngvuð. Og einu aðil­arnir sem töl­uðu um hand­boltalands­liðið sem „Strákana okkar“ voru bens­ín­stöðvar í leit að við­skipta­vinum sem falla fyrir mögu­legum elds­neyt­isend­ur­greiðslum sem byggja á íþrótta­úr­slitum.

„Strákarnir okkar" unnu silfur á Ólympíuleikunum í Pekíng 2008. Það var eitt magnaðasta íþróttaafrek Íslandssögunnar.
„Strák­arnir okkar" unnu silfur á Ólymp­íu­leik­unum í Pekíng 2008. Það var eitt magn­að­asta íþrótta­afrek Íslands­sög­unnar.

Það eru fjöl­margar ástæður fyrir þeirri stöðu sem íslenskur hand­bolti er í. Að sumu leyti getur hand­bolta­hreyf­ingin sjálfri sér um kennt að hafa ekki staðið sig nægi­lega vel í að tryggja aðstæður og umgjörð. Líklegra er þó að helsta ástæðan sé sú að Íslend­ingar eru bara orðnir miklu betri í öðrum íþróttum. Nú á Ísland karla­lið á loka­keppnum í tveimur vin­sæl­ustu íþrótta­greinum heims og þjóðin þarf ekki að sam­ein­ast um jaðar­í­þrótt­ina hand­bolta til að von­ast eftir íþrótta­legri upp­hefð á alþjóða­vett­vangi. 

Knattspyrnumenn æfa ekki lengur handbolta

Það má eig­in­lega segja að hand­bolt­inn sé fórn­ar­lamb kap­ít­al­ism­ans. Hann er ein­fald­lega ekki nógu arð­væn­leg afþrey­ing. Þess vegna leita pen­ing­arnir sem fjár­fest er í íþrótta­heim­inum annað og skilja jaðar­í­þróttir eins og hand­bolta eftir.

Til að setja þessa þróun í íslenskt sam­hengi ber lík­ast til fyrst að nefna þá gríð­ar­legu fjár­fest­ingu sem lögð hefur verið í bætta aðstöðu og þjálfun í knatt­spyrnu. Á annan tug knatt­spyrnu­halla, á þriðja tug gervi­gras­valla og 130 sparkvellir hafa gert það að verkum að aðstaðan til knatt­spyrnu­iðk­unar á Íslandi allt árið í kring hefur umbylst. Sú til­hneig­ing ungra íþrótta­manna sem áður þótti sjálf­sögð, að æfa hand­bolta á vet­urna en knatt­spyrnu á sumrin, er ekki lengur til staðar sem regla heldur er frekar und­an­tekn­ing. Þeir sem ætla sér langt í knatt­spyrnu æfa hana ein­fald­lega allt árið um kring.

Þá hefur fjár­fest­ing í knatt­spyrnu­þjálf­urum verið stór­aukin hér­lendis. Með­al­knatt­spyrnu­þjálf­ari á Íslandi er nú yngri, með meiri reynslu af knatt­spyrnu­iðkun og miklu mennt­aðri í þjálf­un­ar­fræðum en kollegar hans erlendis, sem eru iðu­lega for­eldrar iðk­enda og þjálfa í sjálf­boða­vinnu. Það sama á við um margar aðrar hóp­í­þróttir sem stund­aðar eru hér­lendis. Fjár­fest­ing í þjálfun og aðstöðu fyrir knatt­spyrnu­iðk­endur hefur skilað því að íslenskir atvinnu­menn í íþrótt­inni eru á átt­unda tug tals­ins.

Þessi áhersla á knatt­spyrnu er auð­vitað til­komin vegna vin­sælda hennar um allan heim, sem hefur leitt til þess að pen­ingar vegna sjón­varps­rétt­ar­samn­inga, aug­lýs­inga og ann­arra þátta streyma inn í íþrótta­grein­ina. KSÍ, sem fær þorra sinna tekna í formi styrkja og fram­laga frá UEFA og vegna seldra sjón­varps­rétta, velti tæpum 1,1 millj­arði króna árið 2014, sem er miklu meira en öll önnur sér­sam­bönd Íslands velta til sam­ans á ári. Knatt­spyrnan er því risi íþrótt­anna sama hvaða mæli­kvarði er not­aður. Hún hefur flesta iðk­endur, þénar lang­mest og er vin­sælust bæði meðal iðk­enda og áhorf­enda.

Þegar allt ofan­greint er talið saman er kannski ekki skrýtið að margir ungir og efni­legir íþrótta­menn velji knatt­spyrnu fram yfir hand­bolta. Mögu­leikar þeirra eru mun meiri, sama hvernig á málið er litið. Jafnvel þótt þeir nái ekki lengra en að spila í efstu deild á Íslandi geta þeir átt von á því að fá mán­að­ar­laun sem eru ekki ósvipuð því sem atvinnu­maður í hand­bolta fær fyrir að spila með austur-þýsku miðl­ungs­liði í þýsku Bund­erslig­unni, bestu hand­bolta­deild heims.

Svo er Ísland auð­vitað orðið stór­kost­lega gott í knatt­spyrnu karla og komið á loka­mót. Alls hafa 29.985 Íslend­ingar, 8,15 pró­sent þjóð­ar­innar, sótt um miða á leiki liðs­ins á EM í Frakk­landi næsta sumar. Búast má við því að fjöldi þeirra Íslend­inga sem fer á mótið verði umtals­vert hærri, þegar fjöl­skyldur knatt­spyrnugal­inna áhan­genda og aðrir sem kaupa sér miða í almennri sölu bæt­ast við. Á sama tíma virt­ist fjöld­inn sem fylgd­ist með hand­boltalands­lið­inu á EM í Póllandi í vik­unni rúm­ast í lang­ferða­bíl. Himinn og haf virð­ist vera á milli áhug­ans á þessum tveimur mótum hjá þjóð­inni.

Handbolti er illa launuð jaðaríþrótt

Á lista heima­síð­unnar big­gest­globals­ports.com er hand­bolti í 25. sæti yfir vin­sæl­ustu íþróttir í heimi, sæti á undan list­dansi á skautum. Þar segir að hann sé mjög vin­sæl íþrótt í ein­ungis tveimur löndum, Þýska­landi og Spáni. Vefsíðan mælir vin­sældir íþrótta­greina með töl­fræði­grein­ingu og gefur hverri íþrótt stig. Í efstu tveimur sæt­unum eru knatt­spyrna, sem er lang­vin­sælasta íþrótt í heimi, með 2.313 stig og körfu­bolti með 1.372 stig. Hand­bolti er með 65 stig, tæp þrjú pró­sent þeirra stiga sem fót­bolti fékk og tæp fimm pró­sent af þeim sem körfu­bolti fékk. Þó að big­gest­globals­ports.com, eða aðrar sam­bæri­legar síður, séu eng­inn end­an­legur mæli­kvarði þá gefa þær góða vís­bend­ingu um stöðu hand­bolt­ans á heims­vísu. Þar er hann jaðar­í­þrótt.

Þrátt fyrir að íslenskir hand­bolta­menn hafi löngum verið í efsta klassa í heim­inum þá eru launa­kjör þeirra langt frá því sem t.d. íslenskir knatt­spyrnu­menn fá. Á lista tíma­rits­ins Áramóta, sem Við­skipta­blaðið gefur út í lok hvers árs, um launa­hæstu íþrótta­menn þjóð­ar­innar kom í ljós að 13 efstu voru knatt­spyrnu­menn. Raunar voru 17 af 20 hæst­laun­uðu íþrótta­mönnum þjóð­ar­innar knatt­spyrnu­menn. Tveir þeirra spila hand­bolta, þeir Aron Pálm­ars­son (42 millj­ónir króna í árs­tekjur) og Guðjón Valur Sig­urðs­son (48 millj­ónir króna í árs­tekjur). Óumdeilt er að bæði Aron og Guðjón Valur eru á meðal bestu hand­bolta­manna í heimi. Þeir eru samt sem áður með lægri árs­laun en Rúrik Gíslason (50 millj­ónir króna í árs­laun), sem spilar í þýsku annarri deild­inni í knatt­spyrnu.

Það tekur Gylfa Sig­urðs­son, tekju­hæsta íþrótta­mann íslensku þjóð­ar­innar, tvo mán­uði og átta daga að þéna það sem Aron og Guðjón Valur þéna til sam­ans á einu ári. Gylfi spilar með liði sem er í harðri botn­bar­áttu í ensku deild­inni. Sex knatt­spyrnu­menn þéna meira en tvisvar sinnum þá upp­hæð sem hand­bolta­stjörn­urnar þéna á ári. Fyrir utan Gylfa spila þeir í Grikk­landi, hjá miðl­ungs­liði í Frakk­landi, miðl­ungs­liðum í Kína og í ensku B-deild­inni. Enginn þeirra er að leika með bestu knatt­spyrnu­liðum heims. Þeir eru raunar langt frá því. Bæði Aron og Guðjón Valur kom­ast hins vegar í raun ekki mikið lengra á sínum ferli en í þau lið sem þeir leika með núna.

Það hefur tekist illa að verja stöðu íslensks handbolta. Jafn illa og Björgvini Páli tókst að verja skot Króata í gær á bakvið lélega íslenska vörn.
Það hefur tek­ist illa að verja stöðu íslensks hand­bolta. Jafn illa og Björg­vini Páli tókst að verja skot Króata í gær á bak­við lélega íslenska vörn.

Auðvitað eru laun ekki end­an­legur mæli­kvarði á árangur. Þessi sam­an­burður er heldur ekki gerður til þess að gera lítið úr hand­bolta­mönnum sem náð hafa frá­bærum árangri, heldur til að sýna fram á að best laun­uðu hand­bolta­menn ver­aldar eru að þéna svipað og franska knatt­spyrnu­liðið Guingamp eða hið jap­anska Urawa Red Diamonds borgar leik­mönnum sínum að með­al­tali á ári.

Umgjörð og iðkendur

Ljóst er að íslenska deild­ar­keppnin í hand­bolta hefur gengið í gegnum mikið hnign­un­ar­skeið sem staðið hefur yfir árum saman. Í ung­dómi grein­ar­höf­undar voru úrslita­leikir í íslenskum hand­bolta risa­stórt mál. Þeir eru það því miður ekki lengur.

Þótt nýlegar áhorf­enda­tölur séu ekki aðgengi­legar sýn­ist manni á þeim leikjum sem sýndir eru í sjón­varpi, og í þeim sjón­varps­fréttum sem enn eru sagðar af deild­ar­keppn­inni, að aðsókn sé dræm. Umgjörðin í kringum deild­ina er líka, að því er virð­ist, ekk­ert sér­stök. Á sama tíma hefur verið lagt mikið í að bæta alla umgjörð í kringum knatt­spyrnu og körfu­bolta hér­lendis. Stöð 2 Sport á til að mynda hrós skilið fyrir hvernig hún hefur umbylt umfjöllun um körfu­bolta á þessu tíma­bili með metn­að­ar­fullri þátta­gerð í formi Domino’s Körfu­bolta­kvölda og langt er síðan að umgjörðin, að minnsta kosti í kringum úrvalds­deild karla í knatt­spyrnu, tók stór­stígum fram­förum. Það hefur ekki gerst í hand­boltaum­fjöllun.

Samkvæmt nýj­ustu tölum sem aðgengi­legar eru á heima­síðu Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­bands Íslands, frá árinu 2013, er knatt­spyrna lang­vin­sælasta íþrótt sem stunduð er á Íslandi. Skráðir iðk­endur hjá Knatt­spyrnu­sam­bandi Íslands (KSÍ) voru 20.715 og KSÍ býst við að um tíu þús­und til við­bótar hið minnsta stundi knatt­spyrnu í allskyns hópum.

Skráðir hand­bolta­iðk­endur voru 7.344 í lok árs 2013, aðeins fleiri en körfu­bolta­iðk­endur, sem voru 6.639 tals­ins. Athygli vekur hins vegar hand­bolti er mun vin­sælli hjá konum en körlum. Rúmlega 45 pró­sent fleiri konur æfa hand­bolta en körfu­bolta. Tæplega 200 fleiri karl­menn æfa hins vegar körfu­bolta en hand­bolta.

Eru sumir íslenskir handboltamenn feitir?

Iðkendur þurfa þó ekk­ert að vera margir ef þeir eru góðir. En eru íslenskir hand­bolta­menn sem eru að koma upp nógu góðir? Um það eru skiptar skoð­anir og grein­ar­höf­und skortir yfir­sýn til að meta það.

Það hefur þó vakið athygli að umræða hefur lengi verið um að lík­am­legt ástand hand­bolta­manna í íslensku deild­inni sé ein­fald­lega ekki nógu gott. Þeir hafa verið sagðir hreint út sagt feitir. Íþrótta­f­rétta­mað­ur­inn Guðjón Guð­munds­son (Gaupi), sem hefur yfir­burð­ar­þekk­ingu á hand­bolta, gagn­rýndi þetta til að mynda í sam­tali við vef­inn sport.is fyrir rúmum tveimur árum. Þar sagði hann: „Það sem skelfir mig er lík­am­legt atgervi leik­manna í mörgum liðum. Rass­síðir og með bumbu, það sæmir ekki þjóð sem er og hefur verið með eitt besta lands­lið heims síð­ustu ár. Hvað eru menn að æfa? Hvað eru menn að borða?[...] Höldum við áfram á sömu braut er stutt í fallið og menn skulu hafa það í huga að sé þjálfunin ekki í lagi þá er voð­inn vís. Aðvör­un­ar­bjöllur hringja lát­laust. Takið ykkur taki. Þetta er til skammar.“ Kannski reynd­ist Gaupi sann­spár, að ekki væri langt í fallið.

Ljóst er að gagn­rýnin hefur að minnsta kosti hreyft við hand­bolta­hreyf­ing­unni. Hand­knatt­leiks­sam­band Íslands (HSÍ) sá sig að minnsta kosti knúið til að ráð­ast í sér­stakt átak til að stuðla að betri lík­am­legri upp­bygg­ingu íslensks hand­bolta­fólks. Fyrsta skrefið sem stigið var í þá átt var sér­stakt nám­skeið sem haldið var í sept­em­ber í fyrra.

Ein áhuga­verð­asta sagan um íslenska hand­boltalands­liðið sem spurst hefur út er þegar töfra­mað­ur­inn og einn besti hand­bolta­maður heims­sög­unnar, Ólafur Stef­áns­son, reyndi að fá lands­liðs­fyr­ir­liða körfu­boltalands­liðs­ins, Hlyn Bær­ings­son, í íslenska hand­boltalands­liðið. Hug­myndin var að Hlynur yrði not­aður í varn­ar­leik íslenska lands­liðs­ins. Hlynur er frá­bær íþrótta­maður, með frá­bæra fóta­vinnu, mik­inn lík­am­legan styrk og yfir­burð­ar­leikskiln­ing á sinni íþrótt. En hann hafði aldrei keppt í hand­bolta áður þegar þessi bón var lögð fram. Samt hafði Ólafur trölla­trú á að Hlynur gæti styrkt íslenska hand­boltalands­liðið til muna. Og lík­lega hefur hann rétt fyrir sér. En í því liggur líka vandi hand­bolt­ans.

Sér ein­hver það fyrir sér að Aron Einar Gunn­ars­son, eða Hlynur Bær­ings­son sjálfur, myndu reyna að telja ein­hvern sem hefði aldrei spilað þeirra íþróttir á að hefja sinn feril í þeim með knatt­spyrnu- eða körfu­boltalands­lið­inu á stór­móti? Nei, það myndi aldrei ger­ast.

Skilnaður milli þjóðar og handbolta

Það virð­ist því vera við ramman reip að draga fyrir þjóðar­í­þrótt­ina. Þjóðin virð­ist vera að missa áhuga á henni og sá við­skiln­aður verður mun hrað­ari ef sá magn­aði árangur sem hand­boltalands­liðið hefur náð á und­an­förnum tveimur ára­tugum mun ekki eiga sér fram­halds­líf.

Á allra næstu árum mun hand­bolta­ferli stærsta hluta „Strák­anna okkar“ sem hefur ekki enn lagt skóna á hill­una ljúka. Eini sýni­legi fram­tíð­ar­lands­liðs­maður Íslands sem er í sama klassa og þeir sem unnu til verð­launa á stór­mót­unum 2008 og 2010 er Aron Pálm­ars­son. Á sama tíma er ljóst að vin­sældir knatt­spyrnu, og að ein­hverju leyti körfu­bolta, sem vin­sæl­ustu hóp­í­þrótta­greina Íslands og heims­ins eru síst að fara að dvína. Þær munu áfram laða til sín nýja iðk­endur og áhan­gendur.

Saman munu þessir kraftar; verri árangur, slæ­leg umgjörð, minni áhugi og jað­ar­setn­ing hand­bolta sem íþróttar, gera það að verkum að gull­ald­ar­skeið hand­bolt­ans verður góð minn­ing um tíma sem var. Í fram­tíð­inni mun hann ekki skipa jafn fyr­ir­ferð­ar­mik­inn sess. Sem er miður að mörgu leyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár