Stundum er sælla að gefa en þiggja heilt óperuhús

Tíu ár eru síðan Óperu­húsið í Kaup­manna­höfn, Óperan, var tekið í notkun. Ekki er hægt að segja að friður og sátt hafi ríkt um þetta stóra hús og starf­sem­ina þar, deil­urnar hófust áður en byrjað var að byggja og þær standa enn. Sýn­inga­gestum fækkar ár frá ári.

Í grein sem danski óperu­söngv­ar­inn Stig Fogh Andersen skrif­aði og birt var í dag­blað­inu Politi­ken árið 1999, stakk hann upp á því að byggt yrði óperu­hús í Kaup­manna­höfn. Gamla Kon­ung­lega leik­húsið við Kóngsins Nýjatorg var þá eina húsið í borg­inni þar sem hægt var að svið­setja óperur, þótt það hafi á sínum tíma ekki verið byggt með slíkt í huga.

Ári eftir að grein óperu­söngv­ar­ans birt­ist í Politi­ken til­kynnti skipa­kóng­ur­inn (Arnold) Mærsk Mc-Kinney Möller að A.P. sjóð­ur­inn (í eigu Mærsk fjöl­skyld­unnar) ætl­aði að gefa dönsku þjóð­inni óperu­hús sem reist skyldi á Hólmanum gegnt Amal­íu­borg og Marm­ara­kirkj­unni. Þar var sjóð­ur­inn búinn að kaupa lóð (svæði er lík­lega rétt­ara orð) og borg­aði fyrir 120 millj­ónir danskra króna (ca. 2.5 millj­arðar íslenskir).

[quote font="0" align="right"]Í ágúst árið 2001 hófust fram­kvæmd­irnar. Þá hafði ekki verið gefið út bygg­inga­leyfi og eng­inn vissi hvernig húsið myndi líta út. [/quote]

Þótt Danir hafi á und­an­förnum ára­tugum van­ist rausn­ar­legum styrkjum og gjöfum af öllu mögu­legu tagi frá A.P. sjóðnum var öllum ljóst að þessi þjóð­ar­gjöf, eins og Óperan hefur stundum verið kölluð, tæki öllu fram í þeim efnum. Gjöfinni fylgdu þrjú skil­yrði: Óperan skyldi heyra undir Kon­ung­lega leik­húsið, húsið skyldi byggt á þessum til­tekna stað á Hólmanum og að gef­and­inn réði vali arki­tekts­ins.

Gröfurnar í gang þótt byggingarleyfið vantaði


Í ágúst árið 2001 hófust fram­kvæmd­irnar. Þá hafði ekki verið gefið út bygg­inga­leyfi og eng­inn vissi hvernig húsið myndi líta út. Þessu verk­lagi var mót­mælt, það breytti engu og stór­virkar vélar grófu ein­hverja stærstu holu sem sést hefur í Danmörku, eins og blöðin orð­uðu það.

Í októ­ber sama ár var til­kynnt að arki­tekta­stofa Hennings Larsen myndi ann­ast hönnun húss­ins. Enginn hafði neitt við valið á arki­tekt­inum að athuga, Henning Larsen (1925 – 2013) var í hópi þekkt­ustu arki­tekta Dan­merkur og teikni­stofa hans tekið þátt í hönnun margra þekktra bygg­inga, þar á meðal Hörpu í Reykja­vík.

Þegar Henning Larsen lagði fram teikn­ingar sínar kom í ljós að ekki veitti af stórri og djúpri holu því sam­kvæmt teikn­ing­unum yrði húsið sam­tals 41 þús­und fer­metrar á fjórtán hæðum, þar af fimm neð­an­jarðar. Mikill kraftur var í bygg­ing­ar­fram­kvæmd­unum, blöðin gerðu því skóna að Mærsk Mc-Kinney Möller vildi að verk­inu yrði lokið meðan hans nyti við en hann var að verða níræður þegar fram­kvæmd­irnar hófust.

Ráðríkur gefandi


Fljót­lega eftir að byrjað var að byggja lak það út, eins og sagt er, að Mærsk Mc-Kinney Möller vildi hafa sitt að segja um vinnu arki­tekt­anna. Þær leka­fréttir voru svo stað­festar þegar kynnt var nýtt og tals­vert breytt útlit fram­hliðar húss­ins, þeirrar sem snýr að Amali­en­borg.

Ekki voru allir jafn­hrifnir af þeirri breyt­ingu og í einu blað­anna mátti lesa „að vissu­lega væri Mærsk klár við­skipta­jöfur en hann ætti kannski að láta arki­tekt­ana ráða útliti Óper­unnar.“ Skipa­kóng­ur­inn og arki­tekt­inn deildu um fjöl­mörg önnur atriði og síðar var haft eftir Hennig Larsen að hann hefði gjarna viljað losna undan þessu verk­efni ef hann hefði getað.

Þekktir lista­menn voru fengnir til að gera skreyt­ingar, velja vegg­klæðn­ingar og svo fram­vegis. Þar á meðal Ólafur Elíasson (sem Danir kalla ætíð dansk-íslenskan lista­mann) sem gerði þrjá stóra ljósa­kúpla sem prýða and­dyrið.

[caption id="attachment_17197" align="aligncenter" width="599"] Arnold Mærsk Mc-Kinney Möller vildi hafa sitt að segja um útlit óperu­húss­ins. Afskipta­semi hans lagð­ist þungt á arki­tekt húss­ins. Mærsk Mc-Kinney Möller lést 16. apríl 2012, þá 98 ára gam­all.[/caption]

Stórt og dýrt


Húsið er eins og áður sagði um það bil 41 þús­und fer­metrar. Þar eru tveir salir, sá stærri, kall­aður Stóra sviðið, tekur 1500 – 1700 manns í sæti en sá minni Takk­elloftet (kaðla­loftið, veið­ar­færa­loftið) 180 manns. Í and­dyr­inu er veit­inga­staður en alls eru í hús­inu um það bil 1000 vist­ar­verur, stórar og smáar.

Arnold
Arnold

Heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu húss­ins, fyrir utan lóð­ina, nam 2,5 millj­örðum danskra króna árið 2005 (ca. 52 millj­arðar íslenskir). Óperu­húsið var tekið í notkun, með mik­illi við­höfn, þann 15. jan­úar 2005.

Eitt er að gefa, annað að þiggja


Í gjafa­bréfi A.P. Möller sjóðs­ins er skýrt tekið fram að húsið sé gjöf til dönsku þjóð­ar­innar, ekk­ert rekstrafé fylgdi með. Ekki kom til greina að afþakka svo höfð­ing­lega gjöf en hjá yfir­stjórn Kon­ung­lega leik­húss­ins byrj­uðu við­vör­un­ar­ljósin strax að blikka. Stjórn­inni var semsé ljóst að þótt hún fengi húsið í hend­urnar væri ekki nema hálf sagan sögð: það kostar stórfé að reka Óperuhús og tekjur af miða­sölu og öðru slíku geta aldrei staðið undir rekstr­inum.

Stjórn leik­húss­ins var komin með heilt óperu­hús á herð­arnar án þess að fjár­fram­lög til leik­húss­ins í heild ykjust að sama skapi. Í upp­hafi fékk Kon­ung­lega reyndar 100 millj­óna króna (rúma 2 millj­arða íslenska) auka­fjár­veit­ingu vegna Óper­unnar, svona til að koma henni almenni­lega úr spor­unum eins og einn þing­maður orð­aði það.

Stjórn­inni var vandi á höndum, til tals kom að loka gamla leik­hús­inu við Kóngsins Nýjatorg en þegar til kom reynd­ist ekki vilji til þess. Gamla leik­húsið er glæsi­leg bygg­ing (tekin í notkun 1874) og rúmar 1600 manns í sæti. Þegar þarna var komið sögu var líka verið að byggja nýtt leik­hús, Sku­espil­húsið, neðan við Nýhöfn­ina, það kom í stað Stærekass­ans svo­nefnda sem stendur við hlið gamla leik­húss­ins. Í dag rekur Kon­ung­lega því þrjú hús, Kon­ung­lega leik­húsið, Óperuna og Sku­espil­húsið.

[caption id="attachment_17201" align="aligncenter" width="599"] Frá form­legri opnun óperu­húss­ins í Kaup­manna­höfn, þann 15 jan­úar árið 2005.[/caption]

Frá formlegri opnun óperuhússins í Kaupmannahöfn, þann 15 janúar árið 2005.
Frá form­legri opnun óperu­húss­ins í Kaup­manna­höfn, þann 15 jan­úar árið 2005.

Á fyrsta heila starfs­ári Óper­unnar á Hólmanum (2006) voru áhorf­end­urnir 244 þús­und og sýn­ing­arnar 287. Þetta var mikil aukn­ing en 148 þús­und sóttu óperu­sýn­ingar í gamla leik­hús­inu árið 2004. Þessi aðsókn reynd­ist þó ekki fyr­ir­boði „ríf­andi gangs“ eins og stundum er kom­ist að orði, því síðan hefur sýn­inga­gestum fækkað ár frá ári og á síð­asta ári komu 152 þús­und gestir í húsið á 128 sýn­ingar. Þessar tölur tala sínu máli.

Framtíðin og fortíðin


Stjórn­endur Óper­unnar segja ástæð­urnar fyrir því að færri sæki sýn­ingar en áður þær að starf­sem­inni sé þröngur stakkur skor­inn og fjár­veit­ingar leyfi ekki meiri starf­semi, 100 millj­ón­irnar sem fylgdu með í upp­hafi hafi verið skornar við trog. Fækkað hefur verið í óperu­hljóm­sveit­inni og litla sviðið, Takk­elloftið, er lokað og óvíst hvenær þar verður breyt­ing á. Menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann, Marianne Jelved, hefur sagt að eins og nú sé ástatt í fjár­málum danska rík­is­ins séu ekki meiri pen­ingar í boði og þar við sitji.

Í til­efni þess að tíu ár eru frá því að Óperu­húsið var tekið í notkun hafa farið fram miklar umræður um starf­sem­ina og hvað sé framundan. Gagn­rýn­is­radd­irnar eru margar og áber­andi: verk­efna­valið sé íhalds­samt, það sé alltaf verið að sýna gamlar óperur, á síð­asta leik­ári var nýjasta óperan frá 1977 og meira en helm­ingur verk­anna eldri en 100 ára. Helm­ingur þeirra verka sem sýnd verða á þessu starfs­ári hafa verið sýnd áður í Óperunni.

Stjórn­endur segja að það sé ein­fald­lega þannig að óperu­gestir hér, eins og ann­ars staðar, vilji helst sjá þekkt verk jafn­vel þótt þeir hafi séð þau marg­sinnis áður.

Þótt Óperan sé áber­andi þar sem hún stendur er ekki að sama skapi auð­velt að kom­ast að henni, það var öllum ljóst frá upp­hafi. Húsið er ein­angrað, engir eiga leið þar hjá í dags­ins önn og þegar þessi pistla­skrif­ari var þar á ferð fyrir skömmu var ekki lif­andi sálu að sjá, hvorki utan dyra né innan. Gagn­rýnendur segja að þó húsið sé sýni­legt sé ekki hægt að segja það sama um starf­sem­ina, í könnun sem eitt dag­blað­anna gerði kom í ljós að eng­inn þeirra sem spurður var vissi nafn óperu­stjór­ans. Engin skipu­leg kynn­ing­ar­starf­semi fer fram, engar skóla­heim­sóknir, allt ein­fald­lega stein­dautt segir fólk.

Óperu­stjór­inn, Sven Muller, (byrj­aði 2012) tekur undir þá gagn­rýni að Óperan sé alltof ósýni­leg og því verði að breyta. Í blaða­við­tali vegna tíu ára afmæl­is­ins seg­ist hann, þrátt fyrir erf­ið­leik­ana nú um stundir, vera bjart­sýnn og viss um að brátt komi betri óperu­tímar. Undir þá ósk geta margir tekið en eins og í ljóð­inu um þá Snata og Óla er ekki gott að segja hvenær kakan og jólin koma hjá Óperunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár