Rósa krefst svara um af hverju RÚV segir ekki frétt

Rósa Guð­bjarts­dótt­irr krafð­ist úr pontu Alþingis í dag þess að RÚV skýrði af hverju ekki hefði verið fjallað um sýknu­dóm yfir Stein­þóri Gunn­ars­syni, fyrr­ver­andi starfs­manni Lands­bank­ans. Atburða­rásin sem á end­anum varð til þess að mál hans var tekið upp að nýju hófst á frétt RÚV.

Rósa Guð­bjarts­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks og bæj­ar­full­trúi Hafn­ar­firði, krafð­ist þess á Alþingi í morgun að frétta­stofa Rík­is­út­varps­ins gerði grein fyrir því af hverju ekki hafi verið fjallað um mál Stein­þórs Gunn­ars­sonar, sem var for­stöðu­maður verð­bréfa­miðl­unar Lands­bank­ans fyrir hrun. Steinþór var í apríl á þessu ári sýkn­aður af ákæru um mark­aðs­mis­notkun en hann hafði áður verið dæmdur bæði í hér­aði og Hæsta­rétti.

„Að mínu mati þarfn­ast þess afstaða RÚV skýr­inga. Hvers vegna þótti ekki ástæða til að segja þessa stóru frétt um rétt­ar­ríkið og sýknu­dóm ein­stak­lings sem barist hafði fyrir rétti sínum í á annan ára­tug. Hverra erinda gengur frétta­stofan? Hvernig getum við treyst fréttaftutn­ingi RÚV ef slíkt er látið kyrrt liggja? Þögnin er æpandi,“ sagði Rósa í ræðu­stól á Alþingi þar sem hún ræddi störf þings­ins. 

Steinþór steig fram í við­tölum í bæði Við­skipta­blað­inu og Morg­un­blað­inu nýverið, þar sem hann rakti bar­áttu sína fyrir dóm­stólum. Þar lýsti hann sér­stakri …

Kjósa
-12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár