Platforstjórar senda póst

Vitað er um mörg til­vik þar sem svindl­arar hafa náð að plata starfs­menn danskra fyr­ir­tækja og stofn­ana. Upphæðin sem svindl­arar hafa kom­ist yfir á und­an­förnum tólf mán­uðum nemur um það bil 200 millj­ónum danskra króna, tæp­lega 3,2 millj­arðar króna.

Starfsmenn danska ríkislistasafnsins í Kaupmannahöfn eru á meðal þeirra sem hafa verið plataðir.
Starfs­menn danska rík­is­lista­safns­ins í Kaup­manna­höfn eru á meðal þeirra sem hafa verið plat­aðir.

Hvað gerir starfs­maður „á gólfi“ þegar séf­finn sendir tölvu­póst og fyr­ir­skipar milli­færslu sem allra fyrst, nánar til­tekið strax? Mikið sé í húfi og málið þoli enga bið, ann­ars geti mik­il­væg við­skipti runnið út í sand­inn. Starfs­mað­ur­inn bregst vita­skuld við og milli­færir á stund­inni, án þess að spyrja spurn­inga. Sem hann hefði kannski betur gert. 

Fyrir nokkrum dögum greindu danskir fjöl­miðlar frá því að í vetr­ar­frí­inu svo­nefnda, um miðjan febr­úar, hefðu starfs­menn Danska Rík­is­lista­safns­ins í Kaup­manna­höfn fengið fyr­ir­skip­anir um að milli­færa sam­tals kr. 805.000.- (12,8 millj­ónir íslenskar) af banka­reikn­ingi safns­ins Í tölvu­bréfum sem starfs­menn­irnir fengu frá „safn­stjór­anum“, sem virt­ist vera í Englandi kom fram að mikið lægi á að þetta gengi sem allra greið­ast, ann­ars myndi safnið missa af tæki­færi sem „ekki byð­ist aftur“. Tölvu­bréfin, sem voru nokkur, voru öll mjög áþekk og alltaf getið sér­stak­lega um hraða afgreiðslu. Pen­ing­ana átti að milli­færa á nokkra mis­mun­andi banka­reikn­inga, í að minnsta kosti fimm löndum. Starfs­menn Rík­is­lista­safns­ins brugð­ust hratt og vel við þessum fyr­ir­mælum „safn­stjór­ans“ og áður en vetr­ar­frís­vikan var liðin höfðu áður­nefndar kr. 805.000.- verið lagðar inn á banka­reikn­ing­ana eins og um var beðið.

[adspot]

Safnstjórinn á kontórnum

Á föstu­degi, síð­asta virka degi vetr­ar­frís­ins mætti einn starfs­maður Danska Rík­is­lista­safns­ins safn­stjór­anum, Mikkel Bogh, á gang­inum við kaffi­stofu starfs­fólks­ins. Starfs­mað­ur­inn hafði orð á því að von­andi hefðu þessir pen­ingar sem safn­stjór­inn bað um að fá yfir­færða skilað sér í tæka tíð. Safn­stjór­inn rak upp stór augu og spurði hvaða pen­inga starfs­mað­ur­inn væri að meina. „Varst þú ekki í Englandi“ spurði starfs­mað­ur­inn. „Kontór­inn minn hefur aldrei heitið neitt, og allra síst England“ svar­aði safn­stjór­inn, „en á kontórnum hef ég verið alla vik­una eins og venju­lega.“ Starfs­mað­ur­inn kikn­aði í hnjálið­unum. „Safn­stjór­inn“ sem hafði sent fyr­ir­skip­an­irnar um milli­færsl­urnar, í nafni Mikkels Bogh, var sem sé svindl­ari sem kunni sitt fag og ástæða þess að hann valdi vetr­ar­frís­vik­una hugs­an­lega sú að þá eru margir í fríi. Safn­stjóri Rík­is­lista­safns­ins hafði reyndar ætlað að vera í fríi þessa viku en það breytt­ist svo á síð­ustu stundu og hann var í vinn­unni.

Ekki einsdæmi

Frétt­irnar af svindlinu hjá Rík­is­lista­safn­inu vöktu mikla athygli og brátt kom í ljós að þetta mál er síður en svo eins­dæmi. Mál af þessu tagi rata sjaldn­ast í fjöl­miðl­ana, bæði vegna þess að for­svars­menn fyr­ir­tækja og stofn­ana kæra sig lítt um að segja frá því að þeir hafi verið „plat­aðir upp úr skónum“ og danska lög­reglan telur að slíkar fréttir hafi „aug­lýs­inga­gildi“ fyrir aðra svindl­ara eins og einn yfir­manna lög­regl­unnar komst að orði í við­tali.

200 milljónir á einu ári

Samkvæmt upp­lýs­ingum lög­regl­unnar er vitað um mörg til­vik þar sem svindl­arar hafa náð að plata starfs­menn danskra fyr­ir­tækja og stofn­ana. Upphæðin sem svindl­arar hafa kom­ist yfir á und­an­förnum tólf mán­uðum nemur um það bil 200 millj­ónum danskra króna (tæp­lega 3,2 millj­arðar íslenskir). Aðferð­irnar sem svindl­ar­arnir nota eru nokkrar.

Sú sem notuð var í til­viki Rík­is­lista­safns­ins, sem sé að senda fyr­ir­mæli sem ekki verður betur séð en séu frá fram­kvæmda­stjór­anum, er algeng. Svindl­ar­arnir virð­ast, í mörgum til­vikum, hafa upp­lýs­ingar um hvenær fram­kvæmda­stjór­inn er ekki á staðnum (eins og til stóð með safn­stjór­ann) og láta líta svo út að hann sé að senda fyr­ir­mæli til starfs­manna í fyr­ir­tæk­inu. Önnur aðferð er að senda reikn­inga, sem eru nákvæmar eft­ir­lík­ingar ekta reikn­inga. Stórt plast­fram­leiðslu­fyr­ir­tæki á Jótlandi fékk „reikn­ing“ sem virt­ist vera frá fyr­ir­tæki sem plast­fram­leið­and­inn skiptir mikið við, fær þaðan marga slíka reikn­inga í hverri viku. Eft­ir­lík­ingin var svo vel gerð að ekki var nokkur leið að átta sig á að um svindl væri að ræða, nema rann­saka málið sér­stak­lega. Sem ekki var gert í þessu til­viki.

Tals­maður lög­regl­unnar sagði að þegar um mikil við­skipti sé að ræða, kannski marga reikn­inga í hverri viku, sé ákveðin hætta á „sjálf­virkni í afgreiðsl­unni“ eins og hann komst að orði. Reikn­ingur frá fyr­ir­tæki sem að jafn­aði er ekki skipt við myndi vekja meiri athygli og athug­aður betur.

Athygli svindlara hefur beinst að Danmörku

Kim Aarenstrup yfir­maður þeirrar deildar lög­regl­unnar, sem rann­sakar tölvu­af­brot sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að tala afbrota eins og lýst var hér að framan hafi þre­fald­ast á árunum 2009 – 2015 og síðan fjölgað til muna á síð­ast­liðnu ári.

Kim Aarenstrup segir að svo virð­ist sem athygli netaf­brota­manna hafi ein­hverra hluta vegna beinst í auknum mæli að Danmörku. Skýr­ing­una kvaðst hann ekki vita, kannski séu Danir ógætn­ari en margir aðrir í þessum efnum.

Hvað er til ráða?

Áður­nefndur yfir­maður í lög­regl­unni telur eina ráðið til að láta ekki gabb­ast af svindl­ur­unum sé aukið eft­ir­lit, og árvekni, innan fyr­ir­tækja og stofn­ana. Til dæmis með því að ganga úr skugga um að reikn­ingar sem ber­ist séu ekta, það sé hægt að gera með sím­tali eða tölvu­pósti. Ef um sé að ræða vörur þurfi starfs­menn að stað­festa að þeir hafi mót­tekið þær.

Sama gildi um unnið verk, þar þurfi stað­fest­ingu á því að vinnan hafi farið fram. Almenn­ingur þurfi líka að gæta sín, til dæmis ekki að ganga frá við­skiptum í gegnum síma eða á net­inu nema þekkja til við­kom­andi fyr­ir­tækis. „Við kærum okkur ekki um að Danmörk verði gósen­land netsvindl­ara, eða svindl­ara yfir­leitt“ sagði Kim Aarenstrup yfir­maður rann­sókn­ar­deildar tölvu­af­brota dönsku lög­regl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár