Neftóbakssala ÁTVR hefur dregist saman um 66 þúsund dósir það sem af er ári

Heild­sala ÁTVR á íslensku nef­tó­baki dróst saman um 32 pró­sent, eða 3,3 tonn, á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins miðað við söl­una á sama tíma­bili í fyrra. Inn­fluttir tóbaks­lausir ník­ótín­púðar virð­ast vera að sópa til sín mark­aðs­hlut­deild.

Heild­sala ÁTVR á íslensku nef­tó­baki dróst saman um 32 pró­sent á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins miðað við söl­una á sama tíma­bili í fyrra, sem nemur sam­drætti upp á tæp­lega 66 þús­und dollur.

Svo­kall­aðir nikótín­koddar, tóbaks­lausir púðar frá erlendum fram­leið­endum sem eru til notk­unar undir efri vör, virð­ast vera að taka stóran hluta af mark­aðnum, en vitað er að þrátt fyrir að íslenska nef­tó­bakið heiti nef­tó­bak og notkun munn­tó­baks sé ólög­leg á Íslandi fer stærstur hluti þess undir varir, aðal­lega ungra karl­manna.

Sam­drátt­ur­inn í heild­söl­unni hjá ÁTVR nemur um 3,3 tonnum það sem af er ári, en í jan­úar, febr­úar og mars seldi ÁTVR sam­an­lagt 7.066 kíló af íslensku nef­tó­baki í heild­sölu, sam­an­borið við 10.364 kíló á sama tíma­skeiði í fyrra. Sé ein­ungis horft til mars­mán­aðar dróst salan saman um 1,4 tonn, en 2.339 kíló seld­ust sam­an­borið við 3.729 kíló í mars árið 2019.

Fimmtíu grömm af tóbaki eru í hverri íslenskri nef­tó­baks­dollu og nemur þessi sam­dráttur því um 27.800 dollum ein­ungis í mars­mán­uði, en 65.960 dollum sé horft til fyrstu þriggja mán­aða árs­ins.

Einsýnt virð­ist að margir munn­tó­baks­neyt­endur séu að skipta íslenska „rudd­anum“ út fyrir sænsku ník­ótín­koddana, sem eru tóbaks­lausir. Fjölmörg vöru­merki hafa að und­an­förnu verið mark­aðs­sett hér á landi sem „alvöru val­kostir“ við íslenska nef­tó­bakið og fleiri tóbaks­vörur.

Á vef fyr­ir­tæk­is­ins Nico­land, sem flytur White Fox-nikó­tín­púð­ana til lands­ins, seg­ir til dæmis að á bak við fyr­ir­tækið standi „fólk sem hef­ur brenn­andi áhuga á að taka slag­inn við ís­lenska nef­tób­akið, rudd­ann, rett­urn­ar eða bölvað veipið“.

[links]

„Við þekkj­um það á eig­in skinni hvað er erfitt að losa sig við tób­akið og ekki einu sinni minn­ast á hversu dýrt það er,“ seg­ir á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins, en algeng verð á ník­ótín­kodda­dósum í versl­unum hér á landi er frá 950 og upp í 1.300 krónur. Oftast eru á bil­inu 16-24 koddar í hverri dós.

Telur þróunina að einhverju leyti jákvæða

„Um leið og það er jákvætt að munn­tó­bakið sé að minnka þá er þetta ný neysla sem við vitum ekk­ert um,“ segir Viðar Jensson, verk­efna­stjóri tóbaks­varna hjá emb­ætti land­læknis, í sam­tali við Kjarnann. Hann seg­ist þó hafa til­hneig­ingu til þess að halda að ník­ótín­kodd­arnir séu ekki jafn skað­legir heilsu fólks og íslenska nef­tó­bakið, sem sé í grunn­inn sama tóbakið og það sænska, og hafi að minnsta kosti 28 krabba­meins­vald­andi inni­halds­efni.

„Nýja hug­takið í tóbaks­varna­brans­anum er hins vegar „polly use“ og þá er átt við ungt fólk sem notar allt og fer úr einu í annað. Notar smá svona, smá rafrettur og reykir smá,“ segir Viðar. Hann segir ník­ótín­púð­ana þannig valda heil­brigð­is­yf­ir­völdum hér á landi nokkrum áhyggjum, enda sé það eflaust svo að ungt fólk sæki í þessa nýju vöru á mark­aði rétt eins og aðrar stað­kvæmd­ar­vörur við hefð­bundið tóbak, til dæmis rafrettur.

„Það er langt síðan við heyrðum af því að á fram­halds­skóla­böllum væru þessir púðar úti um allt, en rafrett­urnar hefðu minnkað,“ segir Viðar, en segir þó lítið hægt að álykta um notk­un­ina út frá því, þar sem gögn vanti.

Til stendur að bæta úr því, en fyr­ir­tækið Rann­sóknir og grein­ing, sem gerir reglu­lega kann­anir á tóbaksneyslu í grunn­skólum og fram­halds­skólum, mun að sögn Viðars sér­stak­lega spyrja út í nikótín­púð­ana næst þegar slíkar kann­anir verða fram­kvæmdar.

Ísland mun svo fljót­lega inn­leiða nýja til­skipun Evr­ópu­sam­band­ins um tóbaks­varnir og í kjöl­farið munu ník­ótín­kodd­arnir falla undir tóbaks­varn­ar­lög og sér­stök ákvæði verða sett um merk­ingar á þeim og til­kynn­ingar um inni­halds­lýs­ingar, sem Viðar segir jákvætt, en inn­leið­ingin þess­arar til­skip­unar hjá EFTA-ríkj­unum hefur taf­ist vegna mála­ferla í Noregi og Liectenstein.

70-80 prósent af neftóbaki fer undir varir en ekki í nef

Embætti land­læknis fór að sögn Viðar fyrst árið 2012 að skoða hversu mikil munn­tó­baks­notkun væri á Íslandi. Þá hafi það komið veru­lega á óvart að 70-80 pró­sent af öllu seldu íslensku nef­tó­baki virt­ist rata undir varir en ekki upp í nef.

Hlut­fallið hefur hald­ist svipað síðan þá, en kann­anir á þessu hafa verið fram­kvæmdar með þriggja ára milli­bili, síð­ast árið 2018. Samfara hefur sala nef­tó­baks­ins farið vax­andi ár frá ári og er sá sam­dráttur sem nú má merkja á tóbaks­söl­unni frá ÁTVR því óvenju­legur.

Munn­tó­baks­notkun hefur verið að aukast mikið und­an­farin ár, en sam­kvæmt nýlegum Talna­brunni emb­ættis land­læknis tóku 24 pró­sent ungra karl­manna á aldr­inum 18-34 ára tóbak í vör­ina og hið sama átti við um 11 pró­sent karla á aldr­inum 35-54 ára. Aukning meðal ungra kvenna á aldr­inum 18-34 ára hefur einnig orðið, en í fyrra tóku 9 pró­sent þeirra tóbak í vör­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár