Kallað eftir því að ÁTVR aðgreini tekjur af tóbaki og áfengi

Fyr­ir­spurn liggur fyrir á Alþingi þar sem farið er fram á að ÁTVR sund­ur­liði tekjur af tóbaks- og áfeng­is­sölu. ÁTVR hefur ekki viljað gera það hingað til. Í árs­reikn­ingi má þó sjá að allt bendir til þess að tóbaks­sala sé að nið­ur­greiða áfeng­is­sölu.

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar, beindi í vik­unni skrif­legri fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þar sem hann bað um aðgrein­ingu á afkomu Áfengis- og tóbaks­versl­unar rík­is­ins (ÁTVR) af ann­ars vegar sölu áfengis og hins vegar sölu tóbaks. Fyr­ir­tækið heyrir beint undir ráðu­neytið en er ekki með stjórn yfir sér, eins og mörg önnur rík­is­fyr­ir­tæki.

Í fyr­ir­spurn Þor­steins er óskað eftir sund­ur­liðun fyrir árin 2013 til 2018. Hann spurði Bjarna einnig af því hvort ráð­herr­ann ætl­aði að beita sér fyrir því að ÁTVR myndi fram­vegis gefa gleggri mynd af afkomu fyr­ir­tæk­is­ins með því að greina á milli afkomu þess af sölu tóbaks ann­ars vegar og áfengis hins vegar.

Ástæða þess að fyr­ir­spurnin er lögð fram er sú að í gegnum tíð­ina hefur ÁTVR ekki viljað upp­lýsa um hver beinn kostn­aður af tóbaks­sölu hefur verið. Það hefur meðal ann­ars komið fram í svari við fyr­ir­spurnum frá Kjarn­anum um málið.

Hins vegar er hægt að sjá umfang tóbaks­söl­unnar að ein­hverju leyti í árs­reikn­ingum fyr­ir­tæk­is­ins.

Umdeild skýrsla

Árið 2014 fengu aðilar sem studdu frum­varp um að afnema ein­okun rík­is­ins á smá­sölu áfengis fyr­ir­tækið Clever Data til að vinna skýrslu fyrir sig um rekst­ur­ ÁTVR.

[adspot]Nið­ur­stöður voru þær að ekki væri eig­in­legur hagn­aður af starf­semi ÁTVR á föstu verð­lagi árs­ins 2014. Ein helsta ástæða þess sé sú að langtum meiri rekstr­ar­hagn­aður væri af sölu tóbaks en sölu áfeng­is, enda væri tóbak­inu ein­ungis dreift í heild­sölu á meðan að áfengið er selt í versl­unum sem ÁTVR á og rekur út um allt land.

ÁTVR brást hart við þess­ari nið­ur­stöðu, hafn­aði henni og sagði hana byggja á vanga­veltum sem ættu sér litla stoð í raun­veru­leik­anum. „ÁTVR hefur aldrei verið rekin með tapi frá því að áfeng­is­gjöld og tóbaks­gjöld voru aðskilin frá rekstr­ar­tekj­u­m versl­un­ar­inn­ar,“ sagði í til­kynn­ingu sem rík­is­fyr­ir­tækið sendi frá sér í maí 2015.

Hagnaður 1,1 milljarður árið 2018

Í árs­reikn­ingum ÁTVR er hægt að sjá ákveðnar stærðir í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Þar kemur fram að rekstr­ar­tekjur ÁTVR voru 35,3 millj­arðar króna á árinu 2018 og juk­ust um rúman millj­arða króna á milli ára. Frá árinu 2013 hafa rekstr­ar­tekjur ÁTVR auk­ist um 6,7 millj­arða króna. Sala tóbaks skil­aði 9,4 millj­örðum króna í kass­ann 2018 en sala áfengis 25,8 millj­örðum króna.

Alls var 1,1 millj­arðs króna hagn­aður af rekstri ÁTVR í fyrra, sem var 256 millj­ónum krónum minni hagn­aður en árið áður. Fyr­ir­tækið greiddi eig­anda sínum einn millj­arð króna í arð vegna þessa.

Af tekjum ÁTVR runnu alls 25,1 millj­arðar króna til rík­is­sjóðs vegna tóbaks­gjalds (5,6 millj­arðar króna), áfeng­is­gjalds (13,4 millj­arðar króna), virð­is­auka­skatts (5,1 millj­arður króna) og arð­greiðslu (einn millj­arður króna). Það þýðir að um 71,1 pró­sent allra tekna ÁTVR­ renna í rík­is­sjóð. Allar þessar tekjur myndu skila sér þangað óháð því hver það væri sem seldi áfengi og tóbak, utan arð­greiðsl­unn­ar.

Um 1,5 milljarða hagnaður af tóbaki eftir laun og vörugjöld

Tó­baks­salan fer fram í gegnum mjög hag­kvæma mið­læga ­tó­baks­sölu þar sem vörur eru að mestu pant­aðar raf­rænt og sóttar á sama stað. Engin tóbaks­smá­sölu­verslun er rekin heldur er ein­ungis um heild­sölu að ræða.

Sala tóbaks útheimtir því mun minna umstang en áfeng­is­salan, sem fer fram í 51 versl­unum víðs vegar um land­ið, þar af 14 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og vef­búð á net­inu. Árið 1986 rak ­fyr­ir­tækið 13 versl­an­ir. Fjöldi þeirra hefur því næstum fjór­fald­ast á 30 árum.

Vöru­notkun tóbaks var 7,8 millj­arðar króna árið 2018 og af henni var 5,6 millj­arðar króna tóbaks­gjald sem greið­ist til rík­is­ins. Þeg­ar vöru­gjöld hafa verið dregin frá tekjum ÁTVR af tóbaks­sölu stendur eftir 1,65 millj­arða króna hagn­aður, eða vel rúm­lega sá hagn­aður sem féll til vegna heild­ar­starf­semi ÁTVR á árinu 2018. Það er 538 millj­ónum krónum meira en end­an­legur hagn­aður ÁTVR á því ári.

[adspot]Í árs­skýrslu ÁTVR kemur fram að alls vinni sjö manns í nef­tó­baks­fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins tólf við heild­sölu og dreif­ingu tóbaks. Alls var kostn­aður ÁTVR vegna launa og launa­tengdra gjalda á árinu 2018 um 2,8 millj­arðar króna og árs­verk voru 354. Það þýðir að árlegur kostn­aður við hvert árs­verk er um 7,9 millj­ónir króna. Þau 19 árs­verk sem eru í tóbaks­hluta fram­leiðsl­unnar ættu því að kosta um 150 millj­ónir króna á ári.

Það þýðir að um 1,5 millj­arðar króna hagn­aður stendur eftir af tóbaks­söl­unni eftir að búið er að gera ráð fyrir tóbaks­gjaldi og launa­kostn­aði þeirra sem starfa beint við tóbaks­dreif­ingu, eða -fram­leiðslu. Það er upp­hæð sem er tæp­lega 400 millj­ónum krónum yfir heild­ar­hagn­aði ÁTVR á árinu 2018.

Þó verður að gera ráð fyrir því tóbaks­salan sé ábyrgð fyrir ein­hverjum við­bót­ar­kostn­aði vegna skrif­stofu­halds og ann­arra sam­eig­in­legra kostn­að­ar­þátta í rekstri ÁTVR. Fyr­ir­tækið hefur hins vegar ekki, líkt og áður sagði, verið til­búið að sund­ur­liða þann kostnað.

Neftóbaksframleiðsla rúmlega fjórfaldast

Mesti upp­gang­ur­inn í tóbaks­sölu ÁTVR á und­an­förnum árum hefur verið í sölu á nef­tó­baki, sem fyr­ir­tækið bæði fram­leiðir og selur í heild­sölu. Í jan­úar 2002 var fín­korna munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi og frá þeim tíma hefur ÁTVR setið eitt að lög­legri sölu á slíku tóbaki hér­lendis.

[links]Í árs­reikn­ingi 2018 segir í for­mála Ívars J. Arndals, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, að á því ári hafi verið fram­leidd 45 tonn af nef­tó­baki og að fram­leiðslan hafi marg­fald­ast á síð­ustu árum. Til sam­an­burðar var árleg sala af íslensku nef­tó­baki, oft kall­aður „Ruddi“, ríf­lega tíu tonn. Fram­leiðslan, og salan hefur því rúm­lega fjór­fald­ast á tveimur ára­tugum.

Ívar segir í for­mál­anum að kann­anir Land­læknis á notkun nef­tó­baks sýni að not­endur séu sífellt að verða yngri og notk­unin sé að breyt­ast. „Fleiri og fleiri setja nef­tó­bakið í munn en sala á munn­tó­baki er ólög­leg á Íslandi. Framtíð nef­tó­baks­ins er í höndum stjórn­valda en heil­brigð­is­ráðu­neytið er að vinna að nýrri stefnu­mótun í tóbaks­málum.“

Þessi aukna neysla á nef­tó­baki hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­­­­ar, bæði vegna hækk­­­­unar á tóbaks­­­­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­­­­spurn­­­­ar. Sala á íslenska nef­tó­bak­inu jókst um 19 pró­sent á árinu 2018. Á sama tíma varð þriggja pró­senta sam­dráttur í sölu á sígar­ettum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár