Frankenstein og konan að baki sturlaða vísindamannsins

Nú líður að hrekkja­vöku og þá er ekki úr vegi að fræð­ast um eitt fræg­asta skrímsli hryll­ings­bók­mennt­anna og kon­una sem skap­aði sagna­heim­inn. Kjarninn kann­aði merki­legt lífs­hlaup höf­und­ar­ins Mary Shelley og sögu.

Boris Karloff í hlutverki skrímslisins árið 1931.
Boris Karloff í hlut­verki skrímsl­is­ins árið 1931.

Nú líður að hrekkja­vöku en hún er 31. októ­ber næst­kom­andi. Margir munu þó halda upp á hana fyrr, klæða sig upp, horfir á The Night­mare Before Christmas og hlusta á Tom Waits. Börn á Íslandi munu einnig ganga á milli húsa til að biðja um gott eða grikk og eru vinnu­staðir farnir að halda dag­inn hátíð­legan.

Franken­stein er eitt þekktasta nafn innan hryll­ings­bók­mennt­anna en sá mis­skiln­ingur er oft uppi að skrímslið beri nafnið. Svo er ekki því vís­inda­mað­ur­inn bak við skrímslið og skap­ari þess heitir þessu fræga nafni.

Skáldsagan Franken­stein: eða hinn nýi Pró­mó­þeus eða ein­fald­lega Franken­stein, eins og hún er venju­lega kölluð, er löngu orðin klassík og hver ein­asta kyn­slóð kynn­ist sög­unni í ein­hverju formi í gegnum kvik­myndir, lög, sjón­varps­þætti og popp­menn­ing­una. Kona að nafni Mary Shelley skrif­aði sög­una korn­ung á 19. öld og átti hún væg­ast sagt við­burða­ríkt líf.

[adspot]

Hver var Frankenstein?

Ekki er þó víst að allir þekki upp­runa sög­unnar enda hefur skrímslið sjálft öðl­ast eigið líf í vissum skiln­ingi.

Sagan fjallar um ungan vís­inda­mann að nafni Viktor Franken­stein sem skapar furðu­skepnu með væg­ast sagt umdeildum aðferðum. Frá­sögnin fer fram í bréfa­skriftum eins og vin­sælt var í þess­ari teg­und bók­mennta en sagan um Drakúla er til að mynda skrifuð á sama formi.

Vísindamaðurinn með þráhyggjuna

Sagan hefst á því að segja frá bréfa­skrifum enskra systk­ina, Roberts Walton og Mar­grétar Saville. Hann er á leið á Norð­ur­heim­skautið á skipi sínu en hún er heima á Englandi. Hann finnur mann sem er nærri dauða en lífi og er þar á ferð aðal­sögu­hetjan, Viktor Franken­stein. Hann segir Walton sögu sína.

Viktor byrjar að segja frá æsku sinni. Hann er fæddur í Napolí og af ríkum ættum. Hann átti tvo bræður, þá Ernest og Williams. Hann var alltaf heill­aður af heimi efna­fræð­innar og hald­inn þrá­hyggju að læra gamlar úreltar kenn­ingar sem ein­blína á að líkja eftir undrum nátt­úr­unnar. For­eldrar hans ætt­leiða dóttur sem Viktor verður síðar ást­fang­inn af.

Áður en Viktor fer í háskóla í Þýska­landi deyr móðir hans sem hefur þau áhrif að hann kaf­færir sig í vinnu og rann­sóknir. Hann skarar fram úr í skóla og í gegnum rann­sóknir sínar tekst honum að lífga dauðan lík­amsvef við. Hann fær þrá­hyggju vegna þessa og tekst á end­anum að lífga heila mann­eskju við. En fal­legur draumur hans breyt­ist fljótt í martröð. Til verður hræði­leg skepna, rúm­lega tveggja metra há, með gul augu og með skinn sem varla þekur vöðvana og æðarnar á skrímsl­inu.

Fólk hataði skrímslið vegna útlits þess

Í fát­inu flýr Viktor áður en skrímslið vaknar. Hann leitar á náðir vinar síns en verður veikur og tekur það hann fjóra mán­uði að jafna sig. Þegar hann snýr heim á ný kemst hann að því að bróðir hans William var myrtur og grunar hann skrímslið um verkn­að­inn. Fóstra hans er aftur á móti sak­felld fyrir morðið og Viktor getur ekk­ert gert til að koma í veg fyrir það.

Hann flýr upp í fjöll­inn bug­aður af sekt­ar­kennd og sorg þar sem skrímslið finnur hann. Það segir honum sög­una af fyrstu dögum sínum á lífi. Fólk var hrætt við það og hataði vegna þess hvernig það leit út sem lét það hræð­ast fólkið einnig. Skrímslið lærði að tala og lesa af sjálfs­dáðum og það gerði sér grein fyrir því hvernig það leit út.

Margir í valnum

[quote font="0" align="right“]Ég mun deyja og finna eigi til þess sem ég finn nú. Senn mun þessi brenn­andi eymd slokkna. Ég mun stíga víg­reifur upp frá kumli mínu og taka kvöl grimmra log­anna fagn­andi. Birta þess báls mun dofna; vind­arnir munu feykja ösku minni í hafið. Andi minn mun hvíla rór, en ef hann hugsar mun hann svo sann­ar­lega ekki hugsa á þessa leið. Vertu sæll![/quote]

Til að gera langa sögu stutta þá sór skrímslið þess eið að hefna sín á skap­ara sínum fyrir að koma því í heim sem hataði það. Það við­ur­kenndi að hafa drepið bróður Viktors og komið sök­inni yfir á fóstr­una.

Skrímslið heimt­aði að Viktor myndi búa til annað sköp­un­ar­verk, brúður fyrir það sjálft. Þau myndu hverfa út í hinn stóra heim og sam­þykkir Viktor bón þessa eftir að hafa verið ógnað af skrímsl­inu. Hann eyði­leggur þó á end­anum alla þá vinnu sem fór í að búa til brúð­ina eftir að hafa fengið efa­semdir um alls saman. Á end­anum, eftir að skrímslið nær að drepa ást­konu hans sem hann ætl­aði að gifast, þá eltir Viktor skrímslið á norð­ur­slóðir.

Sagan endar á bátnum hjá Walton þar sem Viktor deyr og skrímslið syrgir skap­ara sinn. Það hverfur síðan í sjó­inn og aldrei spyrst til þess aftur.

Í næst síð­ustu efn­is­grein­inni í bók­inni segir skrímslið við Walton: „Ég mun deyja og finna eigi til þess sem ég finn nú. Senn mun þessi brenn­andi eymd slokkna. Ég mun stíga víg­reifur upp frá kumli mínu og taka kvöl grimmra log­anna fagn­andi. Birta þess báls mun dofna; vind­arnir munu feykja ösku minni í hafið. Andi minn mun hvíla rór, en ef hann hugsar mun hann svo sann­ar­lega ekki hugsa á þessa leið. Vertu sæll!“

Með fyrstu vísindaskáldsögunum

Sagan er talin til vís­inda­skáld­sagna og er í raun ein af þeim fyrstu. Hún hefur haft mikil áhrif á popp­menn­ingu, hryll­ings­bók­menntir, kvik­myndir og fjöld­inn allur af bók­menntum hefur spunn­ist upp í kringum sög­una.

Í bók­inni fær skrímslið aldrei nafn og er í stað­inn kallað skepna, djöf­ull, skrímsli, óþokki og „það“. Það kallar sjálft sig frum­burð erf­iðis Viktors og talar um sig sem hinn fallna engil sem er vísun í Lúsífer.

En hefur sagan dýpri merk­ingu en ein­ungis um skrímsli og skap­ara þess? Bók­mennta­fræð­ingar hafa leikið sér að túlk­unum alla síð­ustu öld og enn eru skrif­aðar rit­gerðir og greinar um fyr­ir­bærið. Þrá­hyggja Viktors til að skapa líf og leika guð hefur verið mörgum rit­höf­undum inn­blást­ursefni og er í raun alda­gam­alt sagna­minni. Hann fór skrefi of langt og hefnd­ist hrapa­lega fyrir vikið.

Samdi söguna ung að árum

Höf­und­ur­inn, Mary Shelley, var ein­ungis 18 ára gömul þegar hún byrj­aði að skrifa sög­una og kom hún út rúmum tveimur árum síðar. Sú útgáfa var nafn­laus og gefin út í London 1. jan­úar árið 1818. Sagan var end­ur­út­gefin undir hennar nafni í annarri útgáfu árið 1823 í Frakk­landi.

Mary Shelley fædd­ist árið 1797 í Somers Town í London. Hún var dóttir femíníska heim­spek­ings­ins Mary Wollstonecraft og rit­höf­und­ar­ins William Godwin. Móðir hennar lést af barns­förum þegar hún fædd­ist og var Mary því skírð í höf­uðið á henni.

Mary ferð­að­ist víðs­vegar um Evrópu þegar hún var 17 ára gömul með við­komu í Gerns­heim í Þýska­landi, þorpi sem er rétt hjá Franken­stein-kast­al­anum. Í honum átti að hafa búið gull­gerð­ar­meist­ari tveimur öldum áður eða svo­kall­aður alkem­isti. Sú saga er sögð hafa haft áhrif á unga Mary.

Varð ólétt en missti barnið

Hún var á ferða­lagi með Percy Shelley, sem seinna varð eig­in­maður hennar, Lord Byron og John Polidori þegar þau ákváðu að kepp­ast um hver gæti samið bestu hryll­ings­sög­una. Hug­myndin átti að hafa komið til Mary í draumi um vís­inda­mann sem skap­aði líf og hrædd­ist síðan það sem hann bjó til.

Mary átti ham­ingju­sama æsku en faðir hennar var þó oft skuld­ugur og taldi sig ekki geta alið börnin upp eins síns liðs. Hann gift­ist því aftur en Mary kom sér­stak­lega illa saman við stjúp­móður sína sem og vini föður hennar. Hún var sögð með mikið skap og sögðu margir að hún hefði haldið upp á sín eigin börn fram yfir hans.

Mary var ást­kona Percy Shelley og varð hún ólétt árið 1814. Hann var þá enn giftur en voru þau ákveðin að vera saman þrátt fyrir storma­samt sam­band. Barnið fæddi hún fyrir tím­ann í byrjun árs 1815 en það lifði ekki af. Hún varð þung­lynd í fram­hald­inu en átti síðan annað barn sitt ári seinna. Þau gift­ust eftir að fyrri kona Percy tók sitt eigið líf ári seinna. Þá var Mary ólétt af þriðja barni þeirra sem fædd­ist seinna á árinu.

Leitaði huggunar í ritstörfin

Þau Mary og Percy trúðu á frjálsar ástir og á það að búa ekki of lengi á sama staðnum. Þau lásu, skrif­uðu og öfl­uðu sér þekk­ingar og umkringdu sig vinum sem þau bjuggu meðal ann­ars með.

Bæði börn Mary dóu með árs milli­bili árin 1818 og 1819. Það olli henni mik­illi van­líðan eins og gefur að skilja og lagð­ist hún í mikið þung­lyndi á ný. Eina huggun hennar voru rit­störf þangað til hún eign­að­ist fjórða barn sitt í nóv­em­ber 1819, Percy Florence Shelley. Þau bjuggu í fjöl­mörg ár á Ítalíu og leit Mary alla tíð á landið sem hálf­gerða para­dís.

Þremur árum síðar varð hún ólétt á ný en missti barnið og lést nærri því úr blóð­missi. Hjónin urðu alltaf fjar­læg­ari og fjar­læg­ari á þessum tíma og leit­aði Percy æ meira til ann­arra kvenna. Seinna um sum­arið sama ár drukkn­aði hann undan ströndum Livorno á Ítalíu.

Mary snéri aftur til Englands eftir and­lát eig­in­manns­ins með eina eft­ir­lif­andi son sinn og til­eink­aði líf sitt rit­störfum. Þau voru mjög náin og bjó hún hjá honum og eig­in­konu hans þegar hann var upp­kom­inn. Árið 1851 lést hún en grunur er um að hún hafi verið með heila­æxli. Hún skildi eftir sig fjölda hand­rita, bóka, smá­sagna og dag­bóka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár