Lagabreytingar til að sporna gegn skattsvikum í gegnum aflandsfélög

Bjarni Bene­dikts­son hefur lagt fram frum­varp sem á að sporna gegn skattsvikum í gegnum aflands­fé­lög. Frum­varpið er við­bragð við upp­lýs­ingum úr Panama­skjöl­unum. Starfs­hópur á að vinna gegn nýt­ingu skatta­skjóla.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem á að sporna við skattsvikum vegna eign­ar­halds í lág­skatta­ríkjum. Frum­varpið er við­bragð við upp­lýs­ingum sem fram hafa komið um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum, einkum í gegnum Panama­skjölin.

Upp­lýs­ingar um mögu­leg und­an­skot frá skatti „kalla á taf­ar­laus og afdrátt­ar­laus við­brögð af hálfu íslenskra stjórn­valda,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. Með frum­varp­inu er miðað að því að búa svo um að þrengt sé að þeim kostum og leiðum sem hægt er að nota til að fara á svig við skatta­lög.

Í frum­varp­inu eru lagðar til eft­ir­far­andi breyt­ingar:

  • Tak­mörkun á taps­frá­drætti félaga í lág­skatta­ríki.
  • Tak­mörkun á sam­runa og skipt­ingu yfir landa­mæri.
  • Flutn­ingar lög­heim­ilis eða eigna til ríkja sem telj­ast lág­skatta­ríki verði tak­mark­aðir veru­lega.
  • End­ur­skoðun á CFC-ákvæð­inu, sem fjallar um skatt­lagn­ingu aðila sem eiga beina eða óbeina eign­ar­að­ild að félögum, sjóðum eða stofn­unum sem eru heim­il­is­föst í lág­skatta­ríkjum, í átt til frek­ari skýr­ingar.
  • End­ur­skoðun á upp­lýs­inga­skyldu fjár­mála­stofn­ana og lög­manna.
  • Heimild til end­ur­á­kvörð­unar skatts lengd úr sex árum í tíu ár vegna tekna og eigna í lág­skatta­ríkjum sem ekki hefur verið gerð full­nægj­andi grein fyrir í skatt­skilum.
  • Fyrn­ing­ar­tími sakar lengdur úr sex árum í tíu ár vegna tekna í lág­skatta­ríkjum.
  • Aukið aðgengi inn­heimtu­manna að upp­lýs­ingum um eigna­stöðu gjald­enda.
  • Efling áhættu­stjórn­unar og aukin grein­ing­ar­vinna – grein­ing­ar­deild toll­stjóra.
  • Hert við­ur­lög vegna rangrar upp­lýs­inga­gjafar við inn­flutn­ing.

Stofna starfshóp gegn nýtingu skattaskjóla

Bjarni hefur einnig skipað starfs­hóp til að gera til­lögur að breyt­ingum sem eiga að mynda frek­ari aðgerða­á­ætlun stjórn­valda gegn skattaund­anskotum og nýt­ingu skatta­skjóla almennt. Í hópnum eiga meðal ann­ars sæti Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri, Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri og Snorri Olsen toll­stjóri. Einnig eiga sæti lög­fræð­ingar hjá for­sætis- og fjár­mála­ráðu­neyti, rík­is­skatt­stjóra og toll­stjóra og við­skipta­fræð­ingur hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra.

Hópurinn á að skila skýrslu með til­lögum sínum fyrir lok júní til Bjarna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár