Lífeyrissjóðir vilja bætur frá Kaupþingi vegna Arion kaupa

Þrátt fyrir að við­ræðum við líf­eyr­is­sjóði um aðkomu að kaupum á Arion banka hafi ekki verið rift fyrr en 19. mars var skrifað undir drög að kaupum á bank­anum 12. febr­úar. Þá var hægt að miða við níu mán­aða upp­gjör Arion við ákvörðun á kaup­verði.

Skrifað var undir drög að kaup­samn­ingi milli þriggja vog­un­ar­sjóða og Goldman Sachs ann­ars vegar og Kaup­þings hins vegar um kaup á 29,18 pró­sent hlut í Arion banka þann 12. febr­úar síð­ast­lið­inn. Það var gert svo að hægt yrði að miða kaupin við níu mán­aða upp­gjör Arion banka, þar sem eigið fé bank­ans var lægra en í árs­upp­gjör­inu, og upp­hæðin sem þyrfti að greiða fyrir hlut­inn gæti því verið lægri. Til þess að slíkt væri mögu­legt þurfti að skrifa undir fyrir 13. febr­úar.

[links]

Í Morg­un­blað­inu í dag er greint frá því að þrátt fyrir und­ir­skrift­ina 12. febr­úar hafi við­ræðum við íslenska líf­eyr­is­sjóði um aðkomu að kaup­unum verið haldið áfram allt fram til 19. mars, þegar skyndi­lega var til­kynnt um kaup vog­un­ar­sjóð­anna og Goldman Sachs á sunnu­dags­eft­ir­mið­degi. Í kjöl­farið var við­ræðum við þá slitið. Í blað­inu segir að líf­eyr­is­sjóð­irnir sem um ræðir – stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins – hafi krafið Kaupþing um bætur vegna þess að ekk­ert varð af kaupum þeirra í Arion banka. Þeir telja sig hafa orðið fyrir veru­legu fjár­hags­legu tjóni vegna útlags kostn­aðar í formi kaupa á ráð­gjaf­ar­þjón­ustu.

Icora Partners og lög­manns­ins Þórarins V. Þór­ar­ins­sonar. Auk þess hafi því fylgt kostn­aður að sjóð­irnir hefðu verið byrj­aðir að losa fé til að geta greitt kaup­verðið í ljósi þess að fyrir lá að það þyrfti að greið­ast hratt ef næð­ist saman. Líf­eyr­is­sjóð­irnir höfðu látið verð­meta Arion banka og sam­kvæmt því verð­mati hefði átt að greiða 52,5 millj­arða króna fyrir 29,18 pró­sent hlut­inn. Það er 3,7 millj­örðum króna meira en þeir 48,8 millj­arðar króna sem sjóð­irnir þrír og Goldman Sachs greiddu fyrir hann.

Miðuðu við níu mánaða uppgjörið til að lækka verð

Frá því í febr­úar hefur legið fyrir að fram undan væru tíð­indi varð­andi eign­ar­haldið á Arion banka. Stærstu eig­endur Kaup­þings, vog­un­ar­sjóðir með höf­uð­stöðvar í New York, voru að reyna að fá íslenska líf­eyr­is­sjóði með sér í að kaupa helm­ings­hlut í bank­an­um. Lagt var upp með að þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Gildi, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og LSR, myndu leiða kaupin fyrir hönd líf­eyr­is­sjóð­anna og taka stærstan hlut. Hug­myndin var að líf­eyr­is­sjóð­irnir myndu taka 25-30 pró­sent hlut í Arion banka en vog­un­ar­sjóð­irnir 20-25 pró­sent hlut.

[adspot]

19. mars varð svo ljóst að líf­eyr­is­sjóð­irnir kæmu ekki að kaup­unum í þess­ari umferð. Þá var skyndi­lega til­kynnt að vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital, Och-ZiffCapital og Attestor Capital hefðu ásamt fjár­fest­inga­bank­anum Goldman Sachs keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka á 48,8 millj­arða króna í lok­uðu útboði. Fjár­fest­arnir fá einnig kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar á verði sem hefur ekki verið upp­gef­ið, en er sagt hærra en það sem þeir greiddu í þess­ari lotu.

Samkvæmt stöð­ug­leika­sam­komu­lagi kröfu­hafa Kaup­þings við íslensk stjórn­völd þurfti að greiða að minnsta kosti 0,8 krónur fyrir hverja krónu af eigin fé Arion banka þegar hann yrði seldur. Annars gæti íslenska ríkið stígið inn í við­skiptin. Ástæða þess að þetta ákvæði var sett inn er sú að koma átti í veg fyrir að helstu kröfu­hafar Kaup­þings seldu sér Arion á hrakvirði til að mæta tíma­mörk­unum sem íslenska ríkið hafði sett um kaupin, en bank­ann þurfti að selja fyrir jánú­ar­lok 2018. Tækist það ekki rynni hann til rík­is­ins eins og hinir tveir stóru bank­arnir.

Afkoma Arion banka fyrir árið 2016 var til­kynnt 13. febr­úar síð­ast­lið­inn. Skrifað var undir drög að sam­komu­lagi um kaup vog­un­ar­sjóð­anna þriggja og Goldman Sachs dag­inn áður. Ástæðan er sú að þá gátu þeir miðað við eigið fé Arion banka sam­kvæmt níu mán­aða upp­gjöri árs­ins 2016, sem var 207 millj­arðar króna, en þurftu ekki að miða við eigið féð í árs­lok, sem var 211 millj­arðar króna. Ef skrifað hefði verið undir samn­inga t.d. 14. febr­úar hefði kaup­verðið þýtt að greitt hefði verið 79,3 krónur á hverja krónu af eigin fé Arion banka, og ríkið hefði getað stigið inn í við­skiptin í kjöl­farið. Þegar miðað var við níu mán­aða upp­gjörið er kaup­verðið 80,7 krónur á hverja krónu af eigin fé, og þar með rétt yfir mörk­unum sem ríkið setti. Haldi þessi við­skipti mun íslenska ríkið því ekki geta stigið inn í þau.

Héldu sig í námunda við öll mörk

Þetta eru ekki einu mörkin sem kaup­end­urnir pössuðu sig á að vera alveg í námunda við. Þeir tveir sjóðir sem keyptu stærsta hlut­inn keyptu báðir 9,99 pró­sent í Arion banka. Ástæða þess var sú að ef þeir keyptu yfir tíu pró­sent myndu þeir telj­ast virkir eig­endur og þyrftu í kjöl­farið að und­ir­gang­ast mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á því hvort þeir væru hæfir til að halda á slíkum hlut í kerf­is­lega mik­il­vægum banka.

Þótt gefin hafi verið upp nöfn þeirra vog­un­ar­sjóða sem voru að kaupa hlut í íslenskum við­skipta­banka, og nafn fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs, þá liggur ekk­ert fyrir um hverjir það eru sem voru að kaupa Arion banka. Þ.e. hverjir séu allir end­an­legir eig­endur þess fjár­magns sem verið er að nota.

Rýr svör við spurningum ráðherra

Þann 3. apríl síð­ast­lið­inn var greint frá því að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi hafið und­ir­bún­ing að því að gera mat á hæfi þriggja nýrra eig­enda í Arion banka, sem hafa gefið til kynna að þeir ætli að auka hlut sinn og þar með fara með virkan eign­ar­hlut í bank­an­um. Þessir hlut­hafar eru TCA New Sidecar III, Trinity Invest­ments DAC og Sculptor Invest­ments.

Þetta kom fram í svari fjár­mála­eft­ir­lits­ins við bréf Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra, sem sendi eft­ir­lit­inu bréf með ell­efu spurn­ingum um nýja eig­endur í bank­an­um. Fjár­mála­eft­ir­litið sagði í svari sínu að það sé mat þess að eng­inn hinna nýju hlut­hafa fari nú með virkan eign­ar­hlut í bank­anum og þess vegna hafi ekki verið fram­kvæmt neitt mat á hæfi þeirra. Eft­ir­litið svar­aði mörgum spurn­ingum ráð­herra ekki nema með þeim orð­u­m.

Í svari Fjár­mála­eft­ir­lits­ins kom fram að allir nýju hlut­haf­arnir eða aðilar þeim tengdir hafi verið meðal kröfu­hafa Kaup­þings við gerð nauða­samn­ings félags­ins og fara nú með hlut í félag­inu. Eft­ir­lit­inu sé kunn­ugt um það að í ein­hverjum til­vikum hafi verið stofnuð sér­stök fyr­ir­tæki eða sjóðir til að halda utan um kaupin á hluta­bréf­un­um.

Fjár­mála­eft­ir­litið svar­aði hins vegar ekki spurn­ingu ráð­herr­ans um það hvort fyr­ir­tækin eða sjóð­irnir hafi haft með sér form­legt sam­starf við kaupin og hvort þá þurfi ekki að skoða þau sem eig­anda virks eign­ar­hlut­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár