Þeir sem keyptu í Arion banka eiga 66 prósent í Kaupþingi

Vog­un­ar­sjóð­irnir þrír og Goldmans Sachs, sem geta geta eign­ast rúman helm­ing í íslenska við­skipta­bank­anum Arion banka, eiga 2/3 hluta í selj­and­anum, Kaup­þingi. Því eru þeir að kaupa eign af sjálfum sér.

Kaupþing ehf. er eignarhaldsfélag utan um eftirstandandi eignir hins fallna banka, og í eigu fyrrverandi kröfuhafa hans.
Kaupþing ehf. er eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir hins fallna banka, og í eigu fyrr­ver­andi kröfu­hafa hans.

Þeir fjórir aðilar sem hafa keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka af Kaup­þingi ehf. eiga sam­tals 66,31 pró­sent hlut í Kaup­þingi. Langstærsti ein­staki eig­andi Kaup­þings eru sjóðir í stýr­ingu Taconic Capital með 38,64 pró­sent eign­ar­hlut.

Næst stærsti eig­and­inn er lúx­em­borgískt félag tengd vog­un­ar­sjóðnum Och-Ziff Capital Mana­gement Group með 14,21 pró­sent eign­ar­hlut. Þriðji stærsti hóp­ur­inn eru sjóðir í stýr­ingu hjá Attestor Capital, sem eiga 8,63 pró­sent hlut. Fjár­fest­inga­bank­inn Goldman Sachs og sjóður í stýr­ingu hans eru síðan skráðir fyrir 4,83 pró­sent hlut. Þetta kemur fram í svari Kaup­þings við fyr­ir­spurn Kjarnans um eign­ar­hald á félag­inu.

Kaupþing ehf. er eign­ar­halds­fé­lag utan um þær eignir sem kröfu­hafar fallna bank­ans Kaup­þings héldu eftir í kjöl­far þess að íslensk stjórn­völd sömdu um að heim­ila þeim að slíta þrota­búi bank­ans gegn greiðslu stöð­ug­leika­fram­laga. Langstærsta ein­staka eignin sem Kaupþing átti var 87 pró­sent hlut í íslenska við­skipta­bank­anum Arion banka. Eigið fé hans var 211 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

[links]

Á sunnu­dag var til­kynnt að Taconic, Och-Ziff, Attestor og Goldman Sachs hefðu keypt sam­tals 29,18 pró­sent hlut í Arion banka af Kaup­þingi á 48,8 millj­arða króna. Verðið sem greitt var fyrir er um 0,8 krónur á hverja krónu af bók­færðu eigin fé Arion banka.

Þegar samið var um stöðu­leika­fram­lög setti íslenska ríkið inn ákvæði þess efnis að það gæti gengið inn í við­skipti með hluti í Arion banka ef gengið yrði lægra en 0,8 af bók­færðu eigin fé bank­ans. Í því sam­komu­lagi var líka samið um að Kaup­­þing þurfi að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­­lok 2018. Ef það myndi ekki tak­ast myndi rík­­is­­sjóður leysa bank­ann til sín.

Í við­skipt­unum sem til­kynnt var um á sunnu­dag felst því að eig­endur ⅔ hluta Kaup­þings voru að kaupa stóran hluta í Arion banka á eins lágu verði og mögu­legt var fyrir þá án þess að virkja ákvæði sem gerði íslenska rík­inu kleift að ganga inn í kaupin.

Til við­bótar á þessi hópur kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut í Arion banka til við­bótar. Nýti þeir hann, en lík­legt er að þeir geri það síðar á þessu ári, verða vog­un­ar­sjóð­irnir þrír og Goldman Sachs beinir eig­endur að meiri­hluta í Arion banka.

Vantar 0,01 prósent til að teljast virkir eigendur

Ekki hefur verið til­greint hverjir eru end­an­legir eig­endur þeirra sjóða sem munu saman verða ráð­andi eig­endur Arion banka nýti þeir kaup­rétt sinn. Tveir þeirra, Taconic og Attestor, halda sem stendur á 9,99 pró­sent hlut. Til að Fjár­mála­eft­ir­litið meti hæfi aðila til að fara með virkan eign­ar­hluta í fjár­mála­fyr­ir­tæki, meðal ann­ars út frá orð­spori, þurfa þeir hins vegar að eiga í minnsta lagi tíu pró­sent hlut. Því mun eft­ir­litið ekki fara yfir hæfi þeirra vog­un­ar­sjóða sem keyptu í Arion banka um liðna helgi. Að minnsta kosti ekki fyrr en þeir nýta kaup­rétt sinn og eign­ast meira í bank­anum.

[adspot]

Í fréttum sem Fjár­mála­eft­ir­litið hefur birt hefur þó komið fram að kaupum vog­un­ar­sjóð­anna þriggja á hlutum í Arion banka fylgi ekki atkvæð­is­réttur. Eft­ir­litið hefur hins vegar ekki „upp­lýs­ingar um þetta atriði“ varð­andi Goldman Sachs.

Hafa fjóra daga til að birta lista yfir eigendur

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, var þrá­spurður um eign­ar­haldið á vænt­an­legum eig­endum í Arion banka á Alþingi í gær. Þar sagð­ist hann hafa óskað eftir því við for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að upp­lýst verði um end­an­lega eig­endur í Arion banka og að það væri óvið­un­andi fyrir Íslend­inga að vita ekki hverjir standi þarna á bak við.

[box]Fjár­mála­eft­ir­litið sendi frá sér frétt í gær þar sem það vakti athygli á því að fjár­mála­fyr­ir­tækjum beri að til­greina nöfn og hlut­falls­legt eign­ar­hald allra þeirra sem eiga umfram eitt pró­sent hluta­fjár á heima­síðu sinni. „Sé lög­að­ili eig­andi hluta­fjár umfram eitt pró­sent skal jafn­framt koma fram hvaða ein­stak­lingur eða ein­stak­lingar séu raun­veru­legir eig­endur við­kom­andi lög­að­ila.“

Jón Þór Sturlu­son, aðstoð­ar­for­stjóri eft­ir­lits­ins, sagði í tíu­fréttum RÚV í gær að Arion banki hefði fjóra daga til að upp­fylla þessa skyldu.

Tíu stærstu eigendur Kaupþings opinberaðir

Það hefur hins vegar ekki gengið vel hingað til að fá upp­lýs­ingar um end­an­lega eig­endur vog­un­ar­sjóða sem eign­ast hafa hluti í íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum. End­ur­reistur Straumur fjár­fest­ing­ar­banki fékk á sínum tíma fjár­fest­inga­banka­leyfi frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu án þess að þurfa að greina frá hverjir end­an­legir eig­endur hans voru. Eina sem vitað var um það var að dótt­ur­fé­lag Deutsche Bank í Hollandi hélt utan um hlut­deild­ars­kirteini þeirra.

Þá komst Fjár­mála­eft­ir­litið að þeirri nið­ur­stöðu fyrr í ár að vog­un­ar­sjóð­ur­inn Burlington Loan Mana­gement, í eigu Davidson Kempner, mætti fara með virkan eign­ar­hlut í fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Lýsingu.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Kaup­þings um hverjir væru stærstu eig­endur þess félags. Í svari félags­ins kemur fram yfir­lit yfir tíu stærstu hlut­hafa Kaup­þings í lok árs 2016. Á þeim lista eru end­an­legir eig­endur hins vegar ekki til­greindir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár