Enginn fær að vita hver var að kaupa íslenskan viðskiptabanka

Vog­un­ar­sjóð­irnir sem keyptu hlut í Arion banka í gær gættu þess að eiga bara 9,99 pró­sent hlut. Ef þeir hefðu átt 0,01 pró­sent í við­bót væru þeir virkir eig­endur og um þá gilda mun strang­ari reglur. Ekkert liggur fyrir um hverjir eru end­an­legir eig­endur.

Annan sunnu­dag­inn í röð bár­ust stór­fréttir. Á þeim fyrri var til­kynnt um mikla losun hafta og nýtt sam­komu­lag við aflandskrónu­eig­endur. Í gær var til­kynnt um að þrír vog­un­ar­sjóðir og Goldman Sachs-bank­inn hefðu saman keypt 29,18 pró­sent hlut í íslenskum banka, Arion banka.

Frá því í febr­úar hefur legið fyrir að fram undan væru tíð­indi varð­andi eign­ar­haldið á Arion banka. Stærstu eig­endur Kaup­þings, vog­un­ar­sjóðir með höf­uð­stöðvar í New York, voru að reyna að fá íslenska líf­eyr­is­sjóði með sér í að kaupa helm­ings­hlut í bank­anum. Lagt var upp með að þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Gildi, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og LSR, myndu leiða kaupin fyrir hönd líf­eyr­is­sjóð­anna og taka stærstan hlut. Hug­myndin var að líf­eyr­is­sjóð­irnir myndu taka 25-30 pró­sent hlut í Arion banka en vog­un­ar­sjóð­irnir – Taconic Capital og Och-Ziff Capital og jafn­vel fleiri – 20-25 pró­sent hlut.

Í lok síð­ustu viku var orðið nokkuð ljóst að lík­urnar á aðkomu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna, sem ætl­uðu sér að greiða fyrir sinn hlut með rík­is­skulda­bréfum, var í besta falli í upp­námi. Morg­un­blaðið greindi þá frá því að for­svars­menn sjóð­anna hefðu ekki fengið að sjá áreið­an­leika­könnun sem gerð hafði verið á rekstri og efna­hag Arion banka.

Það varð svo ljóst á sunnu­dag að líf­eyr­is­sjóð­irnir kæmu ekki að kaup­unum í þess­ari umferð. Þá var skyndi­lega til­kynnt að vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital, Och-Ziff Capital og Attestor Capital hefðu ásamt fjár­fest­inga­bank­anum Goldman Sachs keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka á 48,8 millj­arða króna í lok­uðu útboði. Fjár­fest­arnir fá einnig kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar á verði sem hefur ekki verið upp­gefið, en er sagt hærra en það sem þeir greiddu í þess­ari lotu.

Ekkert vitað hverjir þetta eru

Þótt gefin hafi verið upp nöfn þeirra vog­un­ar­sjóða sem voru að kaupa hlut í íslenskum við­skipta­banka, og nafn fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs, þá liggur ekk­ert fyrir um hverjir það eru sem voru að kaupa Arion banka. Þ.e. hverjir séu end­an­legir eig­endur þess fjár­magns sem verið er að nota.

Fyrir því eru for­dæmi hér­lendis að vog­un­ar­sjóðir megi eiga fjár­mála­fyr­ir­tæki, án þess að til­greint sé hverjir end­an­legir eig­endur þeirra séu. Það var til að mynda leynd yfir eig­endum Straums fjár­fest­inga­banka, sem voru lengi vel faldir á bak við dótt­ur­fé­lag þýska bank­ans Deutsche Bank í Hollandi. Þrátt fyrir það fékk Straumur fjár­fest­inga­banka­leyfi árið 2011. Lands­menn fengu hins vegar ekki að vita hverjir áttu bank­ann.

Í upp­hafi árs 2017 var vog­un­ar­sjóð­ur­inn Burlington Loan Mana­gement, dótt­ur­fé­lag Davidson Kempner, metin hæfur til að fara með 100 pró­sent virkan eign­ar­hlut í fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Lýsingu.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið 31. jan­úar síð­ast­lið­inn var­aði Jón Þór Sturlu­son, aðstoð­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þó við því að of víð­tækar álykt­anir væru dregnar um for­dæm­is­gildi þeirra ákvörð­unar. Stutta svarið er að ef þetta væri við­skipta­banki þá þurfa ekki endi­lega sömu við­mið að gilda,“ sagði Jón Þór aðspurður um for­dæm­is­gildið. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans í febr­úar sagði Fjár­mála­eft­ir­litið þó að erlendir vog­un­ar­sjóðir megi eiga hlut í íslenskum við­skipta­banka svo lengi sem ákveðin skil­yrði séu upp­fyllt.

Og frá og með deg­inum í gær þá eiga þeir stóran hlut í slíkum.

Ekki mjög opið né gagnsætt

Ef það var eitt þema sem var mjög ríkj­andi í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýrrar rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar þá var það að nú myndi allt verða opið og gegn­sætt. Vinnu­brögð í opin­berri stefnu­mótun og stjórn­sýslu áttu að vera opin og gagnsæ. Stjórn­ar­hættir áttu að verða gagn­sæir. Áhersla yrði lögð á opið og gagn­sætt sölu­ferli eigna. Og þegar kæmi að fram­tíð banka­kerf­is­ins – ríkið á tvo banka að nán­ast öllu leyti og 13 pró­sent hlut í Arion banka – þá yrði áhersla „lögð á opið og gagn­sætt ferli þar sem gætt verður að sem mestri dreif­ingu eign­ar­halds.“

[links]

Varðandi söl­una á Arion banka er þó fátt opið og gagn­sætt. Hlutur Kaup­þings var seldur í lok­uðu ferli sem virð­ist fyrst og síð­asta hafa staðið hlut­höfum félags­ins til boða. Nánast engin gögn hafa verið birt opin­ber­lega um þessi risa­stóru kaup. Og það liggur auð­vitað ekk­ert fyrir um hverjir eru end­an­legir eig­endur þeirra aðila sem til­greindir hafa verið sem kaup­endur.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði á Alþingi þann 27. febr­úar að Seðla­banki Íslands hefði kannað hvort ein­hverjir aðrir standi að baki vog­un­ar­sjóð­unum sem hafa nú keypt stóran hlut í Arion banka en til­greint var. „Ég taldi það vera afar mik­il­vægt að vita hvort þetta væru raun­veru­lega þessir aðilar, sem allir eru erlendir, eða hvort þarna stæðu ein­hverjir íslenskir aðilar að baki. En mér er sagt að svo sé ekki.“

Það er vert að minn­ast á að Seðla­banki Íslands hefur ekki þótt standa sig að öllu leyti sem skildi þegar kemur að því að kanna upp­runa þeirra sem eiga við­skipti við hann.

Starfs­hópur sem vann skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum, sem birt var fyrr á þessu ári, velti því meðal ann­ars upp hvort að fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans hafi orðið til þess að hluti af fjár­­­magn­inu frá aflands­­svæð­um, sem orðið hafi til með ólög­­mætum hætti, hafi skilað sér Íslands með geng­is­af­slætti í gegnum fjár­­­fest­ing­­ar­­leið­ina.

[adspot]

Orð­rétt segir í skýrsl­unni: „Miðlun upp­­lýs­inga um fjár­­­magns­flæði inn og út úr land­inu, t.d. aflandskrónur sem fluttar hafa verið til lands­ins og eins þátt­­taka í fjár­­­fest­ing­­ar­­leið Seðla­­bank­ans er ekki til stað­­ar. Sér í lagi hefur skatt­yf­­ir­völdum ekki verið gert við­vart af hálfu Seðla­­bank­ans þegar um grun­­sam­­legar fjár­­­magnstil­­færslur er að ræða.“

Þá greindi Kjarninn frá því nýverið að í ákæru gegn meintum fjársvik­ara megi sjá hvernig hann nýtti sér fjár­magns­höftin til að hagn­ast. Maðurinn bjó til sýnd­ar­við­skipti til að koma hund­ruð millj­óna út úr höft­unum og kom síðan aftur til baka með pen­ing­anna í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­bank­ans. Seðla­bank­inn gerði engar athuga­semdir við hátt­erni manns­ins á meðan að á því stóð, þrátt fyrir að hann eigi að gera kröfu um réttar upp­lýs­ingar um upp­runa alls fjár­magns sem kom með þessum hætti inn í íslenskt efna­hags­líf.

Goldman Sachs ekki talinn líklegur til að kaupa banka

Í til­kynn­ingu sem send var út í gær vegna kaupanna á 29,18 pró­sent hlut í Arion banka var látið hljóma sem svo að Goldman Sachs, einn þekkt­asti fjár­fest­inga­banki heims, væri sjálfur að kaupa hlut í Arion banka. Við­mæl­endur Kjarnans sem starfa á alþjóð­legum fjár­mála­mark­aði segja þetta í besta falli hlægi­lega fram­setn­ingu. Goldman Sachs sé alls ekki að kaupa hlut í Arion banka. Að minnsta kosti ekki til að vera lang­tíma­fjár­festir.

Það sem sé að eiga sér stað sé að Goldman Sachs, í gegnum sér­stakt eign­ar­halds­fé­lag (e. Special Purpose Vehicle) sé að „fronta“ kúnna eða kúnna­hóp hjá sér í þessum við­skiptum. Ef þau yrðu rakin til end­an­legs eig­anda yrði sá ekki Goldman Sachs. Þessu neitar þó Kaupþing. Almanna­tengsla­full­trúar félags­ins segja að fyrir liggi yfir­lýs­ing um að Goldman Sachs sé að kaupa á eigin reikn­ing.

Þegar það er skoðað hvað Goldman Sachs raun­veru­lega gerir þá sést að kaup á íslenskum við­skipta­banka, eða fyr­ir­tækjum yfir höfuð, er alls ekki eitt af þeim verk­efnum sem bank­inn ein­beitir sér að í starf­semi sinni.

Enda er kaup­and­inn á 2,6 pró­sent hlutnum í Arion banka sem er eyrna­merktur Goldman Sachs í til­kynn­ingu kaup­enda í eigum félags sem heitir ELQ Inver­stors II Ltd.

Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar vog­un­ar­sjóð­anna sem eru stærstir í kaup­unum á Arion banka um að þeir ætli sér að vera lang­tíma­fjár­festar og að ekki þurfi að setja alla vog­un­ar­sjóði undir sama skamm­tíma­gróða­hatt­inn þá er fátt sem bendir til þess í fyrra atferli, eða í yfir­lýstri stefnu sjóð­anna, um að það eigi við þá. Á heima­síðu Och-Ziff Capital Mana­gement Group, sem hefur nú keypt 6,6 pró­sent hlut í Arion banka, er birt yfir­lit yfir stefnu sjóðs­ins og þau verk­efni sem hann ein­beitir sér að. Erfitt er að sjá að lang­tíma­eign í íslenskum við­skipta­banka falli undir nokkra af þeim stefnum sem hann birtir þar. Och-Ziff er alræmdur sjóður. Í sept­em­ber í fyrra sam­þykkti hann t.d. að greiða um 23 millj­arða króna í sekt vegna þess að dótt­ur­fé­lag hans í Afríku, OZ Africa, hafði mútað hátt­settum emb­ætt­is­mönnum í Kongó og Líbýu til að liðka fyrir við­skiptum sjóðs­ins þar.

Kaupendur eru seljendur

Kaup­end­urnir eru allt aðilar sem eru ráð­andi innan Kaup­þings, eign­ar­halds­fé­lags­ins sem stofnað var utan um rest­ina af eignum hins fallna banka eftir að samd­ist um slit hans. Þeir eru að kaupa eignir sem þeir áttu áður óbeint. Og það er ástæða fyrir því.

Í fyrsta lagi eru við­mæl­endur Kjarnans allir sam­mála um að verðið sem verið sé að greiða fyrir Arion banka sé mjög lágt. Eigið fé bank­ans var 211 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Verðið sem verið er að greiða fyrir hlut­ina núna er 0,79 krónur á hverja krónu af eigin fé. Fram­tíð­ar­kaup á 21,9 pró­sentum til við­bótar mun vænt­an­lega ýta kaup­verð­inu yfir 0,8 krónur á hverja krónu af eigin fé bank­ans, enda má kaup­verðið ekki vera lægra sam­kvæmt ákvæði sem sett var inn þegar samið var um stöð­ug­leika­fram­lög frá kröfu­höfum gömlu bank­anna.

Sölu­and­virðið verður allt nýtt til að greiða inn á skulda­bréf rík­is­sjóðs sem var hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi Kaup­þings sem sam­þykkt var við nauða­samn­inga félags­ins.

Gangi kaupin eftir í takt við þetta plan mun íslenska ríkið ekki geta gengið inn í við­skiptin sam­kvæmt þeim skil­málum sem samið var um. Þ.e. ákvæði sam­komu­lags­ins sem gert var við kröfu­hafa Kaup­þings vegna stöð­ug­leika­fram­laga verður þar með virt.

Í öðru lagi mun þetta flýta því að Kaupþing geti greitt meira út til hlut­hafa sinna. Á fyrri hluta árs­ins 2016 var mótuð stefna innan Kaup­þings sem sner­ist um að koma sem mestu af eignum félags­ins í verð sem fyrst. Gangi það eftir fá starfs- og stjórn­ar­menn Kaup­þings mjög háa bónusa. Á fjórða árs­fjórð­ungi í fyrra einum saman var inn­flæði tekna vegna þessa 115,3 millj­arðar króna. Stærsta salan er auð­vitað salan á 87 pró­sent hlutnum í Arion banka. Eða að minnsta kosti hluta hans.

Í þriðja lagi eru þeir að veðja á að krónan muni halda áfram að styrkj­ast, líkt og hún hefur gert á ofsa hraða á und­an­förnum mán­uðum. Það mun tryggja þeim geng­is­hagnað. Vog­un­ar­sjóðir þekkja það að veðja á íslensku krón­una. Það gerðu margir þeirra af miklum moð fyrir hrun og þótt aðferð­irnar séu öðru­vísi nú þá er veð­málið slíkt hið sama.

Verða ráðandi eigandi en komast hjá mati FME

Með kaup­unum sem til­kynnt var um í gær verður eng­inn þeirra fjög­urra sem keyptu hlut virkur eig­andi í Arion banka. Til þess þarf, sam­kvæmt lögum, að eiga yfir tíu pró­sent hlut í fjár­mála­fyr­ir­tæki. Bæði Taconic og Attestor keyptu 9,99 pró­sent, sem er 0,01 pró­senti undir þeim mörkum.

Sam­an­dregið þurfa þeir því ekki að und­ir­gang­ast mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á hæfi virks eig­anda. Slíkt mat grund­vall­ast á ýmsum þáttum em skil­greindir eru í lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Á meðal þeirra atriða sem til­greind eru í lög­unum og þurfa að vera í lagi eru orð­spor aðil­ans, reynsla hans, fjár­hags­legt heil­brigði, hvort ætla megi að eign­ar­haldið tor­veldi eft­ir­lit og hvort ætla megi að það leiði til pen­inga­þvættis eða fjár­mögn­unar hryðju­verka. Auk þess kemur til sér­stakrar skoð­unar hvort vafi leiki á því hver sé raun­veru­legur eig­andi virks eign­ar­hlutar.

Nýti þessir aðilar við­bót­ar­kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut í Arion banka verða þeir saman meiri­hluta­eig­endur í Arion banka með 51,08 pró­sent eign­ar­hlut. Þeir munu því vera með yfir­ráð yfir Arion banka, kjósi þeir svo. Við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja til starf­semi sjóð­anna segja það öruggt að þessir aðilar séu að vinna saman að öllu leyti. Þ.e. ekki sé hægt að líta á hvern og einn þeirra sem sjálf­stæða fjár­festa heldur verði að horfa á þá sem eina heild. Auk þess hafi ekki verið kannað með neinum hætti hvort þeir fjár­munir sem standi á bak við fjár­fest­ingar aðil­anna á Íslandi séu að ein­hverju eða öllu leyti komnir frá sömu ein­stak­ling­unum eða fyr­ir­tækj­unum.

Viðskiptabanki troðfullur af íslenskum innstæðum

En hvaða máli skiptir það hverjir eiga íslenska við­skipta­banka? Það skiptir meðal ann­ars máli vegna þess að allir íslensku við­skipta­bank­arnir voru end­ur­reistir með handafli rík­is­ins til að halda á inn­stæðum, sem það tryggði í banka­hrun­inu. Íslenska ríkið hefur sýnt það í verki að það tryggir inn­stæður og tryggir greiðslu­miðlun ef illa fer. Og því er nokk­urs konar rík­is­á­byrgð á starf­sem­inni til staðar. Áhrif þess að láta íslenska við­skipta­banka fara á haus­inn eru talin of mikil. Þeir eru of stórir til að falla. Enn þann dag í dag, átta og hálfu ári eftir hrunið, eru íslensku bank­arnir að mestu fjár­magn­aðir með inn­stæåðum íslenskra ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Arion banki er með lægsta hlut­fall inn­stæðna af heild­ar­fjár­mögnun sinni. Samt heldur bank­inn á 412 millj­örðum króna af inn­stæðum frá við­skipta­vinum sínum. Það er helm­ingur af skuldum hans. Auk þess er Seðla­banki Íslands þrauta­vara­lán­veit­andi íslensku bank­anna – þótt hann hafi ekki alltaf getað staðið undir því hlut­verki – og sá aðili sem sér til þess að þeir fái þá fyr­ir­greiðslu sem þeir þurfa lendi þeir í vand­ræðum.

En mestu skiptir að íslenska fjár­mála­kerfið – sem hefur sögu­lega sýnt getu sína til að valda ótrú­legum sam­fé­lags­legum skaða hér­lendis í verki – sé í eigu aðila sem hafa hags­muni íslensks sam­fé­lags að leið­ar­ljósi í starf­semi sinni. Síðast þegar bankar voru einka­væddir var það meðal ann­ars gert með aðkomu þýska einka­bank­ans Hauck &Auf­häuser. Nú stendur yfir rann­sókn sem, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, snýst meðal ann­ars um hvort Kaupþing, sem var sam­ein­aður Bún­að­ar­bank­anum skömmu eftir að söl­una á bank­an­um, hafi fjár­magnað Hauck &Auf­häuser, sem seldi sig fljót­lega aftur út.

Í það skiptið voru full­yrð­ingar þeirra sem komu að við­skiptum hins erlenda aðila um að hann væri í alvöru áhuga­samur um að kaupa í íslenskum við­skipta­banka látnar nægja. Það kemur í ljós á næstu dögum hvort sömu skýr­ingar verði keyptar nú þegar erlendir vog­un­ar­sjóðir segj­ast hafa áhuga á lang­tíma­eign­ar­haldi á Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár