Bjarni: Salan á Arion tímamót í uppgjörinu við bankahrunið

Fjórir erlendir aðilar, þar af þrjú sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki, hafa keypt 29,18 pró­sent í Arion banka. Núver­andi for­sæt­is­ráð­herra er ánægður en fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra alls ekki.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru samherjar í ríkisstjórn á síðasta kjörtímabili. Nú eru þeir algjörlega ósammála um hvort salan á Arion banka til vogunarsjóða séu góðar eða slæmar fréttir.
Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son voru sam­herjar í rík­is­stjórn á síð­asta kjör­tíma­bili. Nú eru þeir algjör­lega ósam­mála um hvort salan á Arion banka til vog­un­ar­sjóða séu góðar eða slæmar fréttir. Mynd: Birgir Þór

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir það mikil tíma­mót í upp­gjör­inu við banka­hrunið að erlendir aðilar vilja eign­ast hlut í íslenskum banka. Í gær var greint frá því að þrjú sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki, sem reka fjár­fest­inga- og vog­un­ar­sjóði, hafi ásamt Goldman Sachs keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka.

Um er að ræða stærstu erlendu fjár­fest­ingu í íslensku fjár­mála­kerfi frá upp­hafi. Allir fjórir aðil­arnir voru umsvifa­miklir í kröfu­hafa­hópi Kaup­þings og voru því að kaupa eign sem var óbeint áður í þeirra eigu.

[links]Bjarni segir í Morg­un­blað­inu í dag að kaupin sýni ótví­rætt traust á aðstæðum hér­lendis og að það séu sann­ar­lega góðar fréttir að hingað vilji koma öfl­ugir erlendir aðilar sem vilji ger­ast lang­tíma­fjár­festar í íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækjum. „Auðvitað á eftir að koma í ljós hvað þessir til­teknu aðilar eru að hugsa og hversu lengi þeir hafa hugsað sér að fjár­festa hér en við­skiptin sem slík eru mikið styrk­leika­merki fyrir íslenskt efna­hags­líf.“

Hann segir þar enn fremur að það sé ekki sér­stakt kapps­mál að erlendir fjár­festar komi hingað til lands og kaupi upp fjár­mála­fyr­ir­tæki en hins vegar sé mik­il­vægt að stuðla að dreifðu eign­ar­haldi margra traustra lang­tíma­fjár­festa.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, er ekki jafn ánægður með við­skiptin og eft­ir­maður hans. Í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­kvöldi segir Sig­mundur Davíð að vog­un­ar­sjóðir og „sjálf erki­tákn­mynd alþjóða- fjár­mála­kerf­is­ins, Goldman Sachs, eign­ast Arion­banka (30%). Rík­is­stjórnin algjör­lega óund­ir­búin og stefnu­laus um fram­tíð fjár­mála­kerf­is­ins. Hefur þó e.t.v. fengið að fylgj­ast með þessu á fundum í New York.“

Þar vísar hann í nýlega fundi sem emb­ætt­is­menn úr for­sætis- og fjár­mála­ráðu­neyt­inu áttu með full­trúum þeirra aflandskrónu­eig­enda sem höfðu ekki viljað fara út þegar þeim bauðst að gera það sum­arið 2016.

[adspot]

Sig­mundur Davíð rifjar upp að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi sagt að yfir­taka vog­un­ar­sjóðs­ins Burlington Loan Mana­gement, í eigu Davidson Kempner, á íslenska fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Lýsingu væri ekki for­dæm­is­gef­andi og spyr hvað muni ger­ast nú?

„Rennur þetta í gegn og klár­ast umræðu­laust með sam­stilltum frétta­til­kynn­ingum eftir kvöld­fréttir á sunnu­degi? Sumum hefur þótt það merki um „para­noju" þegar bent er á að þessir aðilar beiti ýmsum ráðum til að hámarka hags­muni sína á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár