Engin svör frá FME um eignarhald vogunarsjóða

Fjár­mála­eft­ir­litið hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Kjarnans um eign­ar­hald tveggja vog­un­ar­sjóða sem vilja eign­ast í Arion banka.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hefur engar upp­lýs­ingar birt um það hverjir eru enda­eig­endur vog­un­ar­sjóð­anna Taconic Capital og Och-Ziff Capital sem sækja nú fast að eign­ast beint 20 til 25 pró­sent hlut í Arion banka á móti sam­bæri­legri eign íslenskra líf­eyr­is­sjóða.

Eins og rakið var í ítar­legri frétta­skýr­ingu Kjarnans um fyr­ir­hug­aða sölu á eign­ar­hlutum í Arion banka þá er von­ast til þess innan Kaup­þings, sem á 87 pró­sent hlut í Arion banka, að hægt verði að ljúka söl­unni í apríl eða maí.

Ríkið á 13 pró­sent eign­ar­hlut í bank­anum.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til FME, 23. febr­úar, þar sem spurt var hverjir væru enda­eig­endur fyrr­nefndra sjóða og hvort FME hefði metið hvort þeir væru æski­legir.

Engin svör hafa borist, og ekki hefur eft­ir­litið heldur birt upp­lýs­ingar er varðar þessi atriði. Samkvæmt lögum hefur eft­ir­litið þetta hlut­verk, og hefur það komið þeim upp­lýs­ingum áleiðis, að vog­un­ar­sjóð­irnir geti talist hæfir eig­endur.

Mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins á hæfi virks eig­anda fjár­mála­fyr­ir­tækja grund­vall­ast á ýmsum þáttum sem skil­greindir eru í lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki. Á meðal þeirra atriða sem til­greind eru í lög­unum og þurfa að vera í lagi eru orð­spor aðil­ans, reynsla hans, fjár­hags­legt heil­brigði, hvort ætla megi að eign­ar­haldið tor­veldi eft­ir­lit og hvort ætla megi að það leiði til pen­inga­þvættis eða fjár­mögn­unar hryðju­verka. Auk þess kemur til sér­stakrar skoð­unar hvort vafi leiki á því hver sé raun­veru­legur eig­andi virks eign­ar­hlutar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár