Eigum heimtingu á að vita hvort það sé lundaflétta í gangi í Arion

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra segir að svör Fjár­mála­eft­ir­lits­ins við spurn­ingum hans séu ekki full­nægj­andi enda komi eig­in­lega ekk­ert nýtt þar fram. Nauð­syn­legt sé að fá upp­lýs­ingar, íslenskt sam­fé­lag eigi heimt­ingu á því.

Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra segir að svörin sem Fjár­mála­eft­ir­litið gaf honum varð­andi nýja eig­endur hluta­bréfa í Arion banka séu ekki full­nægj­andi. Það sé afar mik­il­vægt fyrir íslenskt sam­fé­lag að það komi skýr svör, því allir hugsi hvort það geti verið að ein­hver „lunda­flétta“ sé í gangi. Þar vísar ráð­herr­ann í aðferð­irnar við kaup á Bún­að­ar­bank­anum árið 2003, sem fjallað var um í nýrri skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

Þetta kom fram í kvöld­fréttum RÚV. Líkt og greint var frá í kvöld sendi Benedikt ell­efu spurn­ingar á eft­ir­litið í mars og svar eft­ir­lits­ins var birt af fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Benedikt sagði á RÚV í kvöld að starfs­menn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins séu greini­lega ekki komnir langt með að skoða þá sem keyptu hluta­bréfin í Arion banka. Aðeins komi fram að það séu dótt­ur­fé­lög til­greindra kaup­enda sem standi að kaup­unum líkt og komið hefur fram í fjöl­miðlum. „Þannig að það er eig­in­lega ekk­ert nýtt þarna,“ sagði ráð­herr­ann. Ítrekað sé bara að ekki sé farin í gang skoðun vegna þess að litið sé svo á að 9,99 pró­senta hlutur sé ekki virkur eign­ar­hlutur, en hann stofn­ast við 10 pró­senta eign.

„Ég held að það sé afar mik­il­vægt fyrir íslenskt sam­fé­lag að það komi skýr svör. Það er líka mik­il­vægt bæði fyrir þessa eig­endur og fyrir bank­ann að það sé ekki tor­tryggni í garð þess­ara aðili. Gæti það verið að þarna sé ein­hver lunda­flétta í gangi? Það hugsa allir þannig. Við eigum heimt­ingu á að vita það og verðum að skoða það strax,“ sagði Benedikt.

Hann geti hins vegar ekki gert mikið sem fjár­mála­ráð­herra. „Ég get ekki beitt mér öðru­vísi en að spyrja aftur og láta í ljósi þá ein­dregnu skoðun mína að íslenska þjóðin eigi rétt á að vita þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár