Verið að „skrúfa saman“ ríkisstjórn þar sem veikur meirihluti er talinn styrkleiki

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur fengið form­legt stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­set­anum. Hún segir þetta ekki vera tím­ann til að leysa úr öllum heims­ins ágrein­ings­málum heldur að ná saman um stóru lín­urnar og breytt vinnu­brögð.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, er með stjórnarmyndunarumboðið og er líklegust til að verða næsti forsætisráðherra þjóðarinnar.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er með stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið og er lík­leg­ust til að verða næsti for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjórir flokkar hafa komið sér saman um myndun rík­is­stjórnar á Íslandi. Flokk­arnir eru Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Fram­sókn­ar­flokkur og Píratar. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, verður næsti for­sæt­is­ráð­herra ef flokk­arnir fjórir ná að klára við­ræður sínar með jákvæðri nið­ur­stöðu. Hún fékk í dag stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð hjá for­seta Íslands og því geta form­legar við­ræður haf­ist.

Katrín sagði við það til­efni að form­legar við­ræður muni hefj­ast á morgun og lögð verði áhersla á að vinna hratt. Línur ættu að skýr­ast á næstu dögum. „Það liggur fyrir skuld­bind­ing af allra hálfu um að reyna að skrúfa saman rík­is­stjórn þess­ara flokka.“

Óform­legar við­ræður hafa staðið yfir nán­ast frá því að úrslit kosn­ing­anna lágu fyrir um síð­ustu helgi. Kraftur kom í þær í gær þegar fundað var fram eftir kvöldi. Formenn og annað for­ystu­fólk úr flokk­unum hitt­ist síðan í Alþing­is­hús­inu í morgun og fund­uðu fram yfir hádegið. Þaðan var skila­boðum komið til Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands, að allir fjórir flokk­arnir væru til­búnir í að láta reyna á myndun rík­is­stjórnar.

Veikleikinn talinn styrkleiki

Takist að mynda þá rík­is­stjórn verður hún með minnsta mögu­lega meiri­hluta á þingi, 32 þing­menn gegn 31. Hún verður líka með minni­hluta atkvæða á bak við sig. Vinstri græn, Sam­fylk­ing, Framsókn og Píratar hafa sam­tals 95.874 atkvæði á bak við sig. Hinir fjórir flokk­arnir sem yrðu í stjórn­ar­and­stöðu fengu 97.502.

Í þeim við­ræðum sem staðið hefur verið lögð áhersla á, sér­stak­lega af hálfu Vinstri grænna, að það sé fremur styrk­leiki en veik­leiki að meiri­hlut­inn sé svona lít­ill. Það geri það að verkum að flokk­arnir fjórir þurfi að vanda sig mjög vel. Ekkert svig­rúm verði fyrir fyr­ir­greiðslu eða fúsk og sterkt traust þurfi að mynd­ast milli þeirra sem að stjórn­ina komi strax frá byrjun.

Þess vegna hafi tek­ist að sann­færa hina flokk­anna um að það væri fólgin áhætta í því að taka inn fimmta flokk­inn. Þá yrði sam­setn­ingin flókn­ari og meiri væru­kærð gæti fylgt stærri meiri­hluta.

Þá er það mark­mið í sjálfu sér hjá stórum hluta þeirra sem að við­ræð­unum koma að halda Sjálf­stæð­is­flokknum, þeim flokki sem stýrt hefur Íslandi í þrjú af hverjum fjórum árum frá stofnun hans, frá völdum.

Fínni blæbrigðin lögð til hliðar

Mál­efna­lega hefur gengið vel að ná saman um þá hluti sem flokk­arnir eru sam­mála um. Þ.e. útgjalda­aukn­ingu í heil­brigð­is­mál, stór­sókn í mennta­málum og mikla inn­spýt­ingu í fjár­fest­ingu í innviðum á borð við vega­kerfið. Katrín ítrek­aði þetta á Bessa­stöðum í dag. Þar sagði hún að áherslur sínar yrðu á að ráð­ast í upp­bygg­ingu í þessum þremur mála­flokkum. Auk þess vill hún að jafn­rétt­is­mál og loft­lags­mál verði sett í önd­vegi. Katrín lagði enn fremur áherslu á að rík­is­stjórnin, verði hún að veru­leika, legði sig fram við að skapa aukna sam­stöðu um mál og beitti sér fyrir breyttum vinnu­brögðum á Alþingi.

Katrín sagði að nú væri ekki tím­inn í íslensku sam­fé­lagi til að leysa úr öllum heims­ins ágrein­ings­málum. Allir flokk­arnir gerðu sér grein fyrir því að þeir þyrftu að leggja ein­hver sinna stefnu­mála til hliðar til að hægt yrði að ná saman.

Fyrir liggur að flokk­arnir eru ósam­mála þegar kemur að mörgum fínni blæ­brigðum stjórn­mál­anna. Þannig er Sam­fylk­ingin til að mynda með þá yfir­lýstu stefnu að ganga í Evr­ópu­sam­bandið á meðan að bæði Vinstri græn og Framsókn eru alfarið á móti því. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með það á stefnu­skrá sinni að banna verð­trygg­ingu hús­næð­is­lána og að hús­næð­islið­ur­inn verði fjar­lægður úr vísi­tölu neyslu­verðs. Enginn hinna flokk­anna er með það á stefnu­skrá sinni.

Vinstri græn voru með það á stefnu­skrá sinni í aðdrag­anda kosn­inga að leggja á eigna­skatta og hátekju­skatt á þá sem hafa 25 millj­ónir króna og yfir í árs­tekjur auk þess sem flokk­ur­inn hefur talað fyrir því að lagður verði á auð­legð­ar­skattur á þá sem mest eiga. Við­mæl­endur Kjarnans segja að Vinstri græn séu til­búin að draga veru­lega úr þessum kröfum ef aðrar leiðir skili þeim mark­miðum að auka tekjur rík­is­sjóðs til fjár­fest­inga í þeim málum sem vænt­an­leg rík­is­stjórn hefur þegar náð saman um.

Þá virð­ist nokkuð breið sam­staða milli flokka að falla frá fyr­ir­hug­aðri hækkun á virð­is­auka­skatti á ferða­þjón­ustu og horfa þess í stað á að leggja á komu­gjöld.

Mik­il­vægt verður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn að ná því í gegn að reynt verði að grípa inn í það ferli sem þegar er hafið hvað varðar Arion banka með þeim hætti að ríkið geti nýtt sér for­kaups­rétt til að eign­ast meiri­hluta í bank­anum. Í kjöl­farið vill flokk­ur­inn end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið. Engin sér­stök and­staða er hjá hinum þremur flokk­unum við þessi áform þótt blæ­brigða­munur sé á áherslum hvað þetta mál­efni varðar.

Yrði konustjórn á móti karlægri andstöðu

Náist að klára myndun rík­is­stjórn­ar­innar þá mun meiri­hlut­inn verða skip­aður 16 konum og 16 körlum. Katrín Jak­obs­dóttir verður nær örugg­lega for­sæt­is­ráð­herra og aðrir for­menn eða ígildi for­manns, Sigurður Ingi Jóhanns­son, Logi Ein­ars­son og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, myndu sitja í stjórn­inni. Þá má telja nær öruggt að Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, muni taka sæti í rík­is­stjórn­inni en óljós­ara er hverjir úr hinum flokk­unum myndu gera það. Ráðu­neyt­is­skipt­ing hefur þegar verið reifuð á óform­legum fundum flokk­anna en ekk­ert liggur end­an­lega fyrir í þeim málum. Engum dylst þó að Lilja Alfreðs­dóttir hefur mik­inn áhuga á að verða fjár­mála­ráð­herra. Þá hafa Píratar þá stefnu að ráð­herrar eigi ekki að sitja á þingi. Því má búast við að ef saman næst muni þeir þing­menn Pírata sem setj­ast í rík­is­stjórn segja af sér þing­mennsku og vara­menn þeirra taka við stöðum þeirra.

Í stjórn­ar­and­stöðu yrðu fjórir flokkar: Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Mið­flokk­ur­inn, Flokkur fólks­ins og Viðreisn. Af þeim 31 þing­manni sem yrði í and­stöðu yrðu átta konur og 23 karlar. Viðreisn væri eini flokk­ur­inn í stjórn­ar­and­stöðu sem væri með jafnt kynja­hlut­fall.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár