Ólíklegt að samkomulag um Grikkland náist í dag - verið að undirbúa að Grikkir yfirgefi evruna

Fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna funda í dag í Brussel um skulda­mál Grikkja. Þeir hafa týnst til fund­ar­ins einn af öðrum síð­ustu mín­útur, ásamt Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóra Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins.

Grikkir lögðu í gær fram sína til­lögu um fram­leng­ingu á lána­sam­komu­lagi við ESB og AGS með breyt­ingum. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins tók vel í til­lög­una og sagði hana góða byrjun en Þjóð­verjar voru ósáttir og sögðu til­lög­una langt frá því að vera full­nægj­andi.

Fyrir dag­inn í dag var talað um að ná þyrfti sam­komu­lagi um fram­tíð­ina á þessum fundi en sam­kvæmt Bloomberg er mjög ólík­legt að það ger­ist. Frétta­stofan hefur það eftir emb­ætt­is­manni innan Evr­ópu­sam­bands­ins, og segir að það þýði að áfram verði fundað á sunnu­dag eða mánu­dag. Talið er lík­legt að reynt verði að semja sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu um fram­haldið og fundum verði haldið áfram á næstu dögum.

This is the moment for a historic political decision for the fut­ure of #Europe pic.twitter.com/vdBcv10UXk

— Alexis Tsipras (@tsipras_eu) February 20, 2015

Við kom­una til Brussel í dag sagði Yanis Varoufakis, fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, að grísk stjórn­völd hefðu gengið mjög langt í við­leitni sinni til að ná sam­komu­lagi.

Varoufakis arri­ves at the eurogroup hop­ing for a deal: "The Greek govern­ment has gone not the extra mile, but the extra 10 miles." — Jennifer Rankin (@JenniferMerode) February 20, 2015

Wolfgang Schaeuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, sagði hins vegar að málið snérist um traust. „Við þurfum að styrkja traustið á fram­tíð þessa evr­ópska sam­runa­verk­efnis fólks í öllum Evr­ópu­ríkjum. Það er hið raun­veru­lega verk­efni og það er það sem við erum að vinna að með öllum okkar mætti.“

Þýska stór­blaðið Der Spiegel segir frá því að Seðla­banki Evrópu sé að und­ir­búa sig undir það að Grikkir yfir­gefi evru­sam­starfið. Verið er að teikna upp sviðs­myndir og meta hvernig beri að taka á evru­svæði án Grikk­lands.

Angela Merkel Þýska­landskansl­ari og Francois Hollande Frakk­lands­for­seti fund­uðu í París í dag og héldu blaða­manna­fund í kjöl­farið. Merkel sagði þar að það væri sam­eig­in­legt mark­mið allra evru­ríkj­anna að halda Grikk­landi inni í evru­sam­starf­inu. Til þess þyrftu Grikkir þó að gera stór­vægi­legar umbætur á til­lögum sínum að lausn. „Grikk­land er á evru­svæð­inu og verður að vera áfram á evru­svæð­inu,“ sagði Hollande.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár