„Stelpugengi“ stýrir neðanjarðarfjölmiðli í stríðshrjáðu Sýrlandi

Enab Baladi er neð­an­jarð­ar­fjöl­mið­ill í Sýrlandi sem var stofn­aður þegar stríðið hófst þar í landi. Erlendum fjöl­miðlum og hjálp­ar­starfs­mönnum hefur að mestu verið bannað að vera í Sýrlandi og eiga á hættu að vera teknir af lífi. Alþjóð­legir fjöl­miðlar hafa því flestir haldið frétta­rit­urum sínum á landa­mær­unum við Sýrland. Það hefur því verið mjög erfitt að fá sannar fréttir af því sem ger­ist í borg­ara­stríð­inu í Sýrlandi.

Til að bregð­ast við þessu ákvað hópur aðgerða­sinna sem hafði kynnst í mót­mælum gegn Bashar al-Assad, for­seta Sýrlands, að stofna neð­an­jarð­ar­blað til þess að halda Sýr­lend­ingum og öðrum upp­lýstum um stríðs­glæpi allra þeirra sem berj­ast í stríð­inu.

Nú er svo komið að um tutt­ugu manna hópur segir frá því sem ger­ist á stríðs­hrjáðum svæðum víðs vegar um landið. Allir skrifa undir dul­nefnum og nota hug­búnað til að fela IP-tölur tölvanna.

Meiri­hluti starfs­manna blaðs­ins eru konur, sem er mjög sér­stakt, enda nán­ast engar konur í rík­is­stjórn eða í stjórnum upp­reisn­ar­hópa. Íslamska ríkið stjórnar hluta lands­ins og þar eru rétt­indi kvenna mjög fótum troðin. Það er þó ekki eins­dæmi því konur hafa verið mjög áber­andi í litlum útgáfum sem þessum. Að sögn eins karl­kyns starfs­manna blaðs­ins, Jawad Sharbaji, eiga konur auð­veld­ari aðgang að heim­ilum fólks og auð­veld­ara með að ferð­ast um landið en karlar.

Yfir 370 þús­und manns fylgj­ast nú með Enab Baladi á Facebook og búið er að koma upp vef­síðu sem fær 200 þús­und heim­sóknir á mán­uði. Til að byrja með þurftu konur að dreifa blað­inu í skjóli nætur til þess að koma því á fram­færi. Það er raunar ennþá gert, blaðið er prentað í sjö þús­und ein­tökum tvisvar í mán­uði. Prent­unin fer fram í Tyrk­landi þar sem meiri­hluta blað­anna er nú dreift, en um tvö þús­und ein­tökum er smyglað inn í Sýrland.


People can be amazing, in the hardest of circumstances http://t.co/bteHny4yXw #EnabBaladi #women #Syria #journalism pic.twitter.com/WQC7QaXbwp


— gillo ball­ybay (@gilloballybay) May 10, 2015


Þrír ritstjórar myrtir


Kholoud Waleed, einn stofn­enda fjöl­mið­ils­ins og frétta­rit­stjóri, hefur nú tjáð sig um útgáf­una í fjöl­miðlum undir dul­nefni. Sjá má mynd­band með við­tali við hana hér að neðan, og hún er í við­tali í nýj­ustu útgáfu tíma­rits­ins Elle. „Við erum stelpu­gengið. Assad myndi drepa okkur, en hann finnur okkur ekki,“ segir hún meðal ann­ars í við­tali við blaðið.

Hún flúði frá heima­borg sinni Darayya sum­arið 2012, þegar ein­hver verstu fjöldamorð stríðs­ins fóru þar fram. Fregnir herma að útgöngu­leiðum úr borg­inni hafi verið lokað áður en eld­flauga­árásir hófust þar. Í kjöl­farið hafi svo her­menn gengið hús úr húsi og skotið fólk til bana.

Waleed flúði þá ásamt fjöl­skyldu sinni, og það var í eina skiptið sem útgáfa af Enab Baladi kom ekki út. Um leið og fjöldamorð­unum var lokið fór starfs­fólk blaðs­ins að segja frá því sem gerst hafði. En eftir því sem blaðið hefur vakið meiri athygli varð hættan meiri. Þrír karlar sem höfðu verið rit­stjórar á blað­inu voru myrtir. Nokkrar konur voru teknar fastar og sak­aðar um að vinna fyrir blaðið, en alls hafa átta starfs­menn verið hand­teknir og pynt­aðir. Þá ákvað Waleed að flýja burt úr land­inu, og nú er hún í flótta­manna­búðum í Tyrk­landi, þaðan sem hún rit­stýrir fréttum blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár