Forsætisráðherra Grikklands lofar þjóðaratkvæðagreiðslu um skuldasamning

Ef skulda­sam­komu­lag Grikkja við Evr­ópu­sam­bandið verður ekki í sam­ræmi við kosn­inga­lof­orð Syriza lofar for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, Alexis Tsipras, því að sam­komu­lagið verði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Tsipras seg­ist vera hand­viss um að kom­ist verði að sam­komu­lagi áður en að næsta gjald­daga á end­ur­greiðslum lána kemur þann 12. maí. Hann sagði þó að ef hann sæti uppi með sam­komu­lag sem gengur lengra en hann og Syriza hafi lofað, þá muni almenn­ingur ákveða fram­haldið.

Við­ræð­urnar sem nú standa yfir snúa að 7,2 millj­arða evra neyð­ar­láni til Grikkja, sem á að duga þeim fram yfir sum­arið. Enn er mjög langt til lands í þessum við­ræðum. Flestir sér­fræð­ingar segja að ef ekki semst á næst­unni muni Grikkir þurfa að fresta end­ur­greiðslum á núver­andi lánum sínum í júní og júlí.

Loforð um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu vekur upp margar spurn­ingar í fjár­mála­heim­inum, og ljóst er að ef af verður þarf slík atkvæða­greiðsla að ganga hratt fyrir sig, þar sem ríkið er ein­fald­lega að verða uppi­skroppa með lausafé. Það er ekki ljóst hvernig grískur almenn­ingur myndi kjósa. Syriza vann kosn­inga­sigur í vetur á harðri afstöðu gegn nið­ur­skurðar- og aðhalds­að­gerðum og slík við­horf hafa verið mjög vin­sæl. Hins vegar er ástandið nú þannig að samn­ings­af­staða stjórn­valda verður sífellt óvin­sælli. Og þótt grískur almenn­ingur sé mót­fall­inn nið­ur­skurð­ar­að­gerð­unum sem hafa fylgt neyð­ar­lánum, þá er hann ennþá mjög fylgj­andi því að halda evr­unni. Ef útlit er fyrir að ríkið þyrfti að yfir­gefa evru­svæðið ef samn­ingum er hafnað gæti það því haft tals­verð áhrif á úrslitin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár