Ríkisfjármálastefna stóra hindrunin á leið flokkanna fimm

Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er lykilmaður í þingflokki Viðreisnar. Katrín Jakobsdóttir er formaður Vinstri grænna og verðandi forsætisráðherra, náist að mynda fimm flokka ríkisstjórn.
Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, er lyk­il­maður í þing­flokki Við­reisnar. Katrín Jak­obs­dóttir er for­maður Vinstri grænna og verð­andi for­sæt­is­ráð­herra, náist að mynda fimm flokka rík­is­stjórn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í við­ræðum Vinstri grænna, Pírata, Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sam­fylk­ing­ar­innar um myndun nýrrar rík­is­stjórnar hafa ekki komið upp sýni­leg vanda­mál sem eigi að koma í veg fyrir að flokk­arnir fimm nái sam­stöðu um Evrópu-, sjáv­ar­út­vegs- og stjórn­ar­skrár­mál. Þó á eftir að útfæra stefnu í öllum þessum mála­flokkum og því gæti sú staða breyst, sér­stak­lega hvað varðar sjáv­ar­út­vegs­mál. Heim­ildir Kjarnans herma að erf­ið­ast sé talið að ná saman um rík­is­fjár­mála­stefnu, þar á meðal skatta­mál. Þar sé mesta bilið milli Vinstri grænna ann­ars vegar og Við­reisnar hins vegar. Viðreisn vill ein­falda skatt­kerfið, inn­leiða reglur um hámarks­aukn­ingu rík­is­út­gjalda á ári og stunda öguð rík­is­fjár­mál á meðan að Vinstri græn leggja mikla áherslu á að auka félags­legan jöfnuð í gegnum skatt­kerfið og með auknum útgjöldum til vel­ferð­ar­mála.

Þegar ákveðið var að for­svars­menn flokk­anna fimm myndu hitt­ast um helg­ina til að kanna grund­völl fyrir stjórn­ar­myndun láu fyrir aug­ljósir átaka­punktar. Þeir helstu voru auð­linda­mál, skatta­mál og stjórn­ar­skrár­mál auk þess sem ekki lá skýrt fyrir hvort sátt væri um að setja spurn­ing­una um áfram­hald­andi við­ræður um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gekk vel að ræða þessi mál á fundi flokk­anna fimm á laug­ar­dag, sem alls 15 manns tóku þátt í. Þ.e. þrír frá hverjum flokki.

Í gær fund­aði svo Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og verð­andi for­sæt­is­ráð­herra gangi form­legar við­ræður eftir, með for­svars­mönnum Pírata, Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sam­fylk­ingar til þar sem farið var yfir mögu­legt verk­lag ef af form­legum við­ræðum yrði.

Í kjöl­far fund­ar­ins fór hver for­svars­maður til fundar við sinn þing­flokk þar sem ákvörðun var tekin um hvort að hefja ætti form­legar við­ræður. Klukkan 18 í gær var svo send út til­kynn­ing um að flokk­arnir fimm ætl­uðu að hefja slíkar.

Mál­efna­hópar flokk­anna verða nú skip­aðir og þeir munu á næstu dögum fara yfir mál­efna­grund­völl hugs­an­legs sam­starfs. Sú vinna mun hefj­ast í dag og hóp­arnir munu funda á nefnd­ar­sviði Alþingis.

Katrín greindi frá því í útvarps­þætt­inum Í Bítinu í morgun að hún hafi upp­lýst Guðna Th. Jóhann­es­son, for­seta Íslands, um stöðu mála í gær­kvöldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár