Heilsugæsla í London sendi út upplýsingar um 800 HIV smitaða sjúklinga

Heilsu­gæslu­stöð í London hefur beðist afsök­unar á því að hafa óvart greint frá nöfnum og tölvu­póst­föngum tæp­lega 800 ein­stak­linga sem eru með HIV-veiruna. Heilsu­gæslu­stöðin sendi út frétta­bréf í gær til 780 manns sem eru með HIV. Í stað þess að senda hverjum og einum póst eða fela við­tak­endur voru allir við­tak­endur sýni­legir í póst­inum.

Heilsu­gæslan baðst fljótt afsök­unar og heitir því að rann­saka hvernig á því stóð að þetta gerð­ist. Þetta er talið vera eitt stærsta per­sónu­vernd­ar­brot af þessu tagi sem nokkurn tím­ann hefur átt sér stað í Bret­landi.

Guardian greinir frá mál­inu og hefur eftir Elliot Herman, sem er 38 ára og frá London, að í tölvu­póst­inum sem hann fékk hafi meðal ann­ars verið að finna nöfn vina hans sem hefðu aldrei greint opin­ber­lega frá því að þeir væru með HIV. „Það er ekki erfitt að leita eftir þessum nöfnum á Facebook og fá upp reikn­ing­ana þeirra og per­sónu­legar upp­lýs­ingar,“ segir hann við Guardian. „Ef upp­lýs­ingar um mig væru á þessum lista væri ég reiður og von­svik­inn yfir því að heilsu­gæslan sé með svo lélegt kerfi að þetta geti gerst.“ Hann hefur sent form­lega kvörtun vegna máls­ins.

Heilsu­gæslu­stöðin, sem er á Dean Street í London, sér­hæfir sig í kyn­heil­brigði og með­höndlun HIV. Á heima­síðu hennar kemur fram að stefnt sé að því að bjóða upp á þjón­ustu í hæsta gæða­flokki, meðal ann­ars með því að nota tækn­ina og bjóða fólki að panta tíma og fá nið­ur­stöður í tölvu­pósti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár