Kanna hvaða áhrif COVID-19 faraldurinn muni hafa á borgina og íbúa hennar

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri telur að Reykja­vík­ur­borg hafi úr mjög sterkri stöðu að spila varð­andi kom­andi þreng­ingar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins en hann segir að sam­staðan skipti nú miklu máli því margir óvissu­þættir séu til staðar varð­andi ástandið.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar kynnti þá grein­ing­ar­vinnu sem farið hefur fram hjá neyð­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar á borg­ar­ráðs­fundi í fyrra­dag, en sér­stök umræða var á fund­inum um hættu­stig almanna­varna vegna COVID-19 að beiðni borg­ar­stjóra. Til­gangur grein­ing­ar­vinn­unnar er, sam­kvæmt Degi, und­ir­bún­ingur fyrir þá áætl­un­ar­gerð sem þarf til þess að bregð­ast við efna­hags- og fjár­hags­legum áhrifum af COVID-19.

„Þar er teymi undir for­ystu fjár­mála­stjóra, Halldóru Kára­dóttur, og var það sett niður strax vegna þess að við vitum, þátt fyrir að við vitum ekki allt um far­ald­ur­inn, að bæði far­ald­ur­inn sjálfur og við­brögðin við honum munu hafa víð­tækar og nei­kvæðar efna­hags­legar afleið­ingar í för með sér um allan heim, ekki síst í sam­fé­lagi sem byggir eins mikið á ferða­þjón­ustu og hið íslenska. Það má eig­in­lega segja að fyr­ir­séð sé að fyrstu áhrifin verða á ferða­þjón­ust­una og í tengdum greinum – en einnig geta verið áhrif af nauð­syn­legum tíma­bundnum sótt­varn­ar­að­gerðum. Þetta áfall á hag­kerfið kemur inn í stöðu þar sem vart hefur orðið við kólnun, eins og við höfum rætt hér og ræddum í tengslum við fjár­hags­á­ætlun seint á síð­asta ári,“ sagði Dagur á fund­inum.

Fram kom á glærum, sem borg­ar­stjóri birti um leið og hann kynnti málið í borg­ar­stjórn, að neyð­ar­stjórnin hefði falið teym­inu undir for­ystu fjár­mála­stjóra að hefja nauð­syn­lega grein­ingu til að und­ir­búa ákvarð­anir og áætl­ana­gerð. Sér­stakur starfs­hópur yrði enn fremur skip­aður til þess að skipu­leggja frek­ari við­brögð Reykja­vík­ur­borgar við efna­hags­legum afleið­ingum COVID-19 far­ald­urs­ins á þeim grunni.

Uppfæra fjárhagsáætlun fyrir næstu 3 til 5 ár

Verkefni starfs­hóps­ins er að meta mögu­leg skamm­tíma- og lang­tíma efna­hags­á­hrif far­ald­urs­ins á rekstur og fjár­hag borg­ar­innar. Að lista upp og greina mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir og að vinna efna­hags­lega við­bragðs­á­ætlun. Þá mun starfs­hóp­ur­inn gera aðgerð­ar­á­ætlun sem tryggir órofna þjón­ustu og starf­semi Reykja­vík­ur­borgar.

Hópurinn mun jafn­framt greina og meta áhrif aðgerða hins opin­bera og leggja drög að við­brögðum borg­ar­innar og gera áætlun um mark­aðsá­tak eftir að far­aldr­inum lýkur. Þá mun hann upp­færa fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir næstu þrjú til fimm ár.

Dagur sagði að um far­aldra af þessu tagi og nýjar veirur sem kynntar eru til sög­unnar hefði verið sagt að það eina sem hægt er að slá föstu væri að það er óvissa. „Óvissa um hvernig hún er, hvernig hún þró­ast og hvort að þetta verði einn far­aldur eða bylgjur og svo fram­vegis. Og þess vegna skiptir mjög miklu máli að binda sig ekki við ein­hverja eina spá eða álit ein­hverra, hversu vísir eða spakir þeir geta verið um að hlut­irnir muni þró­ast í ein­hverja ákveðna eina átt, heldur verður að gera sér grein fyrir öllum þeim mögu­legum sviðs­myndum sem munu koma upp varð­andi áhrif á fjár­mál og efna­hags­mál og öðrum þræði búa sig undir allt sem gæti gerst,“ sagði borg­ar­stjór­inn.

Markmiðið ekki að „spá“ fyrir um rétta framtíð

Samkvæmt Degi var fyrsta verk­efni teymis neyð­ar­stjórn­ar­innar að teikna upp þessar sviðs­myndir til þess að gefa inn­sýn inn í hvernig hag­kerfið gæti þró­ast á kom­andi miss­erum og hvaða áhrif það hefði á borg­ar­sjóð. Markmið sviðs­mynd­anna væri ekki að „spá“ fyrir um rétta fram­tíð heldur að átta sig á því hvaða drif­kraftar væru ráð­andi og hvaða aðgerðir þyrfti að vera búið að grípa til.

Dagur benti á að þetta hefði borgin einnig gert í og eftir hrunið 2008.

„Það sem við vitum og á í raun við um allar sviðs­mynd­irnar sem við erum að gera er að það er ljóst að efna­hags­leg áhrif af kór­ónu-far­aldr­inum verða veru­leg. Hér var sagt að fólk gerði sér kannski ekki grein fyrir því hversu alvar­legt þetta yrði, hversu alvar­legt höggið fyrir efna­hags­lífið – og ég tek undir það. Það sem ég heyri innan úr atvinnu­líf­inu varð­andi upp­sagnir og bráða­að­gerðir, það hve lausafé er að þorna fljótt upp hjá fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ust­unni en líka fleirum, að það er af stærð­argráðu sem við erum ekki alveg búin að ná utan um. En þetta er umtals­vert,“ sagði Dagur.

Hins vegar væri óljóst hversu lang­vinn þau áhrif yrðu. „Við vitum að þau verða mikil en hversu lang­vinn vitum við ekki.“

Reynsla af efna­hags­á­föllum í tengslum við far­sóttir erlendis gæfi til kynna að snöggur við­snún­ingur gæti vel átt sér stað en borgin þyrfti þó líka að vera við­búin því að við­snún­ing­ur­inn tæki lengri tíma.

Verður að koma til móts við fólk í krappri stöðu

Dagur sagði enn fremur að sam­staða skipti miklu máli og að í raun hefði borgin úr mjög sterkri stöðu að spila. „En hún verður auð­vitað ekki sterk ef við spilum þessu úr hönd­unum á okkur. Þannig að við þurfum líka að gæta ábyrgðar og vera á traustum grunni. Það er það sem er óþægi­legt í stöð­unni; við vitum ekki allt um stöð­una í atvinnu­líf­inu – það er verið að kort­leggja það – þó við vitum grunn­stærð­irnar í fjár­málum hins opin­bera. Það sem við vitum hins vegar er að rík­is­stjórn og Alþingi hafa verið ein­huga um að grípa til afger­andi aðgerða til þess að fleyta atvinnu­líf­inu í gegnum þetta. Það skiptir veru­legu máli og það skiptir líka veru­legu máli að koma til móts við fólk í krappri stöðu, bæði þá sem gætu misst vinn­una en líka hina sem geta orðið fyrir tekju­falli. Og síðan þessa fjöl­mörgu ein­yrkja og fólk sem treystir á í raun við­burði eða annað slíkt sem urðu fyrir þessu fyrsta höggi ásamt ferða­þjón­ust­unni,“ sagði Dagur.

Hann telur einnig skipta miklu máli að þegar ástandið byrjar að batna að borgin verði til­búin með áætl­anir til þess að auka eft­ir­spurn, hvort sem það sé í ferða­þjón­ustu eða á fjár­fest­ing­ar­hlið­inni, í menn­ing­ar­líf­inu eða borg­ar­líf­inu. „Þarna er borgin býsna sterk en svo er það hitt sem við fáum ekki um öllu ráðið – hvernig hlutir þró­ast í umheim­inum. Hvort eft­ir­spurnin bragg­ast hratt í Evrópu, Ameríku eða öðrum helstu við­skipta­löndum. Við erum, sér­stak­lega þegar kemur að ferða­þjón­ustu, háð því líka. Þannig að hafi það ein­hvern tím­ann gilt þá gildir það líka sann­ar­lega núna að heim­ur­inn er á sama báti hvað þetta varðar og hvernig úr þessu spil­ast. En við þurfum að vinna heima­vinn­una okkar og standa okkar vakt,“ sagði Dagur enn fremur.

Dagur bað um sérstaka umræðu um ástandið vegna COVID-19 á borgarstjórnarfundi í gær, 17. mars.
Dagur bað um sér­staka umræðu um ástandið vegna COVID-19 á borg­ar­stjórn­ar­fundi í gær, 17. mars.

Erum rétt að átta okkur á umfanginu

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, for­maður borg­ar­ráðs og borg­ar­full­trúi Við­reisnar, segir í sam­tali við Kjarnann að neyð­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar sé búin að hitt­ast dag­lega síðan fyrir þar síð­ustu helgi – og jafn­vel tvisvar á dag.

Hún segir að neyð­ar­stjórnin sé að skoða hvaða áhrif far­ald­ur­inn muni hafa á fólk, fyr­ir­tæki og stofn­anir í borg­inni. Farið verður yfir málið á borg­ar­ráðs­fundi á morgun og segir Þórdís Lóa að mik­il­vægt sé að eiga sam­tal á dýpt­ina. „Þetta er langt ferða­lag sem við erum að fara í og erum við á fyrstu stigum þess að átta okkur á umfang­inu. Eins og sótt­varna­læknir og yfir­lög­reglu­þjónn segja þá erum við í fyrsta fasa í þessu ferða­lagi,“ segir hún.

Engar töfralausnir til staðar

Þórdís Lóa telur að í því sam­bandi séu engar töfra­lausnir við því ástandi sem upp er komið og framundan er. Hún segir enn fremur að það sé ágætis sam­staða í borg­ar­stjórn og að áherslan sé á að taka vel á þeim mál­efnum sem fyrir framan þau eru og að vinna hratt og vel.

„Mér finnst að allir í borg­ar­stjórn ættu að sýna ábyrgð og vilja til að tala saman um málið af yfir­vegun. Við ættum að fara að for­dæmi sótt­varna­læknis og leyfa vís­ind­unum og fræð­unum að teyma okkur áfram. Við erum öll um borð í þessu skipi hvort sem við viljum það eða ekki. Við eigum því að berj­ast saman að halda því á floti,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið undanfarið ár