Ástráður skipaður ríkissáttasemjari

Félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur skipað Ástráð Har­alds­son í emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara til næstu fimm ára.

Nýi sátti
Nýi sátti Ástráður Har­alds­son hefur verið skip­aður rík­is­sátta­semj­ari. Mynd: Ríkissáttasemjari

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, hefur skipað Ástráð Har­alds­son í emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara til fimm ára frá og með 18. júlí. Frá þessu er sagt í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu í dag.

Embættið var aug­lýst þann 2. júní í kjöl­far þess að að Aðal­steinn Leifsson sagði sig frá emb­ætt­inu, en Ástráður hafði verið settur í emb­ættið tíma­bundið frá 1. júní.

Umsókn­ar­frestur var til og með 19. júní og alls bár­ust sex umsóknir um emb­ættið. Umsækj­endur metnir af ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd sem félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra skip­aði, en nefndin var skipuð full­trúum sam­taka aðila vinnu­mark­að­ar­ins og ráð­herra.

Tveir umsækjendur þóttu mjög vel hæfir

Nefndin skil­aði álits­gerð sinni 10. júlí og var nið­ur­staða hennar að tveir umsækj­endur væru mjög vel hæfir til að gegna emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara.

Í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að það hafi verið mat félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra að af þeim tveimur umsækj­endum sem nefndin taldi mjög vel hæfa til að gegna emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara upp­fylli Ástráður best þær kröfur sem gerðar eru til þess sem gegnir emb­ætt­inu.

Auk Ástráðs sótt­ust þau Aldís Guðný Sig­urð­ar­dóttir, lektor við við­skipta­deild HR og for­stöðu­maður MBA-náms, Hilmar Már Gunn­laugs­son lyfja­fræð­ingur, Maríanna Hugrún Helga­dóttir for­maður og fram­kvæmda­stjóri Félags íslenskra nátt­úru­fræð­inga, Muhammad Abu Ayub vakt­stjóri og Skúli Þór Sveins­son sölu­maður, eftir emb­ætt­inu.

Ástráður Har­alds­son lauk emb­ætt­is­prófi í lög­fræði við Háskóla Íslands árið 1990. Hann öðl­að­ist hér­aðs­dóms­lög­manns­rétt­indi árið 1991 og var skip­aður hæsta­rétt­ar­lög­maður árið 1995. Hann starf­aði svo sem lög­maður í á þriðja ára­tug áður en hann tók við emb­ætti hér­aðs­dóm­ara í jan­úar árið 2018.

Til við­bótar hefur hann verið próf­dóm­ari í vinnu­rétti auk þess sem hann hefur sinnt stunda­kennslu í vinnu­rétti. Hann hefur einnig haft aðkomu að emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara í störfum sínum, en hann var í hluta­starfi sem aðstoð­ar­sátta­semj­ari við emb­ætti rík­is­sátta­semj­ara frá árinu 2019 þar til hann tók við emb­ætti dóm­ara við Félags­dóm árið 2022. Hann var settur rík­is­sátta­semj­ari í deilu Samtaka atvinnu­lífs­ins og Eflingar í febr­úar og mars árið 2023 eftir að Aðal­steinn Leifsson sagði sig frá þeirri deilu, auk þess sem hann hefur verið settur rík­is­sátta­semj­ari frá 1. júní 2023, sem áður segir.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár