Björgvin Páll gefur til kynna að hann íhugi framboð fyrir Framsókn í Reykjavík

Lands­liðs­mark­vörður í hand­bolta viðrar fram­boð til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík í dag og segir að „X við B fyrir Björgvin og börnin“ hljómi vel.

Björgvin Páll Gústafsson er best þekktur sem handboltamarkvörður, en hann hefur einnig beitt sér í málefnum barna með ADHD í skólakerfinu á undanförnum árum.
Björgvin Páll Gúst­afs­son er best þekktur sem hand­bolta­mark­vörður, en hann hefur einnig beitt sér í mál­efnum barna með ADHD í skóla­kerf­inu á und­an­förnum árum. Mynd: EPA

Björgvin Páll Gúst­afs­son hand­bolta­mark­vörður sagði frá því í löngu máli á sam­fé­lags­miðlum í morgun að þjóð­þekktur ein­stak­lingur hefði komið að máli við sig á dög­unum og skorað á hann um að gefa kost á sér til þess að verða borg­ar­stjóra­efni í Reykja­vík. Af færslu hans má lesa að fram­boðið, ef af verði, yrði fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

„En er ég efni í næsta borg­ar­stjóra í Reykja­vík? Ég hrein­lega veit það ekki... Ef ég tæki slag­inn þá væri það einna helst til þessa að taka þátt í bylt­ingu er kemur að mál­efnum barna. Það að merkja X við B, fyrir Björgvin og börnin er eitt­hvað sem hljómar alla­vega vel,“ segir í nið­ur­lagi færsl­unnar frá Björg­vini Páli.

Hann segir í færslu sinni að mað­ur­inn sem hringdi og hvatti hann til að gefa kost á sér þekki vel til ástríðu Björg­vins Páls fyrir mál­efnum barna. „Það skrýtna er að þessi hug­mynd hljóm­aði ein­hverra hluta vegna ekki svo galin og ég er virki­lega hrærður yfir þeirri trú sem þessi góði vinur hefur á mér,“ segir í færslu Björg­vins Páls.

[adspot]

„Hausinn fór eðli­lega á fullt og ég hugs­aði afhverju við­kom­andi héldi að ég gæti orðið góður borg­ar­sjtjóri. Gæti það verið vegna minnar sýnar á hvernig má auka vellíðan barna, bæta skóla­kerfin okkar og hlúa betur að for­eldrum. Eða var það mín saga og mín reynsla sem fékk hann til þess að velta þess­ari hug­mynd upp,“ segir Björgvin Páll, sem í færslu sinni rekur að hann sé „ekki bara hand­bolta­kall“ heldur líka „líka 6 ára strák­ur­inn sem beit kenn­ar­inn minn, 8 ára strák­ur­inn sem var tekin með hníf í skól­anum og lagðir inná BUGL, 12 ára strák­ur­inn sem fékk umsögn í sveit um að ég væri barn sem erfitt væri að elska, 13 ára strák­ur­inn sem heyrði kennar­ann minn segja „Hann verður aldrei neitt þessi”, strák­ur­inn sem skóla­kerfið brást, strák­ur­inn sem fékk aldrei grein­ing­una mína og lyfin mín, ég er strák­ur­inn sem ólst upp við erf­iðar aðstæður, strák­ur­inn sem íþrótt­irnar björg­uðu“ og fleira til.

„Því meira sem ég hugsa þetta því meiri trú hef ég á því að þetta gæti smollið,“ segir einnig í færslu Björg­vins um þetta mögu­lega fram­boð, sem eins og áður segir virð­ist hugsað fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Framsókn stillir upp eftir afhroð árið 2018

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á í dag ekki einn ein­asta borg­ar­full­trúa eftir að hafa fengið ein­ungis fengið 1.870 atkvæði og þar með 3,2 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018. Fá nöfn hafa til þessa verið nefnd til sög­unnar í bolla­legg­ingum fjöl­miðla um mögu­lega upp­still­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, en fyrir liggur að flokk­ur­inn mun stilla upp á lista í borg­inni.

Þó hefur nafni Hrannars Pét­urs­sonar, aðstoð­ar­manns Lilju Alfreðs­dóttur ráð­herra, skotið upp koll­inum í þeirri umræðu, auk þess sem athygli hefur vakið að Karl Garð­ars­son fyrr­ver­andi alþing­is­maður flokks­ins hefur á und­an­förnu miss­eri stigið inn í opin­bera umræðu um skipu­lags­mál í Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár