Buffett heldur áfram að einblína á innviði

Fjá­fest­inga­fé­lagið Berks­hire Hathaway, sem Warren Buffett stýrir enn sem stjórn­ar­for­maður og for­stjóri, er við það að kaupa Precisi­on Cast­parts (PC) fyr­ir um það bil 37,2 millj­arða Banda­ríkja­dala, sem jafn­gild­ir um 4.800 millj­örðum króna.


Warren Buffett just made his big­gest deal ever http://t.co/NpFmNwJ1HF


— TIME.com (@TIME) August 10, 2015

Fyr­ir­tækið er risi á heims­vísu í fram­leiðslu á ýmsum bún­aði sem snýr að olíu-, gas- og flug­iðn­aði, þar á meðal er fram­leiðsla á pípum sem not­aðar eru til olíu­flutn­inga.

Stærstu kaupin í sögunni

Þessi kaup verða þau stærstu í sögu Berks­hire Hathaway en upp­hæðin sem greidd er fyrir félagið jafn­gildir meira en tvö­faldri árlegri lands­fram­leiðslu Íslands. Á und­an­förnum tveimur mán­uður hefur mark­aðsvirði PC lækkað um 19,7 pró­sent. Lækkunin er meðal ann­ars rakin til erf­iðra mark­aðs­að­stæðna á olíu­mörk­uðum en heims­mark­aðs­verð á olíu hefur lækkað um tæp­lega 60 pró­sent á innan við ári, með til­heyr­andi hlið­ar­verk­unum á ýmsan iðnað sem á allt sitt undir olíu­vinnslu og olíu­sölu. Í þessum aðstæðum sér Buffett tæki­færi og lætur til skarar skríða í kjöl­far skarprar lækk­unar á mark­aðsvirð­inu.

Hvað býr að baki?


En hvað eru for­svars­menn Berks­hire að hugsa, með Buffett í broddi fylk­ingar, þegar kemur að þessum kaupum og raunar fleirum þar sem fjár­fest er í innviðum sam­fé­laga? Samkvæmt frá­sögn Wall Street Journal horfir Buffett til þess að fjár­fest­ingar í traustum innviðum, sem hafa langan líf­tíma, sem trausta fjár­fest­ingu fyrir stóran hluta þeirra lang­tíma­fjár­festa sem eru hlut­hafar í Berks­hire. Þó Buffett stjórni því sem hann vill hjá félag­inu, sem hann fjár­festi fyrst í árið 1962, sjö árum eftir stofnun þess, þá verður fjár­fest­inga­stefna félags­ins að taka mið af þörfum hlut­haf­anna.

Eftir hrunið á fjár­mála­mörk­uðum frá 2007 til 2009 og fall á fast­eigna­mark­aði hefur Buffett horft í meira mæli til fjár­fest­inga sem telj­ast til inn­viða. Næst­stærsta fjár­fest­ingin í sögu félags­ins voru kaup á lestar- og lestar­teina­frama­leið­and­anum Burlington Northern fyrir 26 millj­arða Banda­ríkja­dala árið 2009. Hugsunin að baki þeirri fjár­fest­ingu var svipuð og nú, sam­kvæmt frá­sögnum fjöl­miðla: kaupa traustar lang­tíma­eignir, sem hafa traustan rekstur og mögu­leika til þess að auka mark­aðsvirði á grunni hans.

Sterk vörumerki


En þrátt fyrir að lang­tíma­sýnin hafi verið á inn­viða­fjár­fest­ingar þá hefur Berks­hire einnig horft til þess að eiga eign­ar­hluti í þekktum alþjóð­legum fyr­ir­tækjum sem hafa sterk vöru­merki, sem geta staðið af sér skamm­tíma storma á mörk­uðum. Þannig á félagið stóra eign­ar­hluti í Coca Cola, IBM, Wells Fargo, Heinz og American Express, svo eitt­hvað sé nefnt.

Í fullu fjöri á níræðisaldri


Buffett, oft nefndur spá­mað­ur­inn frá Omaha, er fæddur í Nebraska þar sem höf­uð­stöðvar Berks­hire Hathaway eru. Hann er 84 ára gam­all en slær hvergi af þegar kemur að ákvörð­unum um fjár­fest­inga­stefnu og lyk­il­fjár­fest­ingar. Hann hefur minnkað dag­lega vinnu­skyldu sína tölu­vert en leggur þeim mun meira upp úr því að fylgj­ast vel með og hafa yfir­sýn á mörk­uðum og í rekstri Berks­hire. Heild­ar­eignir Buffetts eru metnar á 66,7 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 8.870 millj­örðum króna, sem gerir hann að einum af fimm rík­ustu ein­stak­lingum heims. Hann hyggst ráð­stafa þeim að stærstum hluta í þágu góð­gerð­ar­mála, en stærstur hluti eigna hans er þó bund­inn í hlutafé Berks­hire Hathaway.

Efna­hags­reikn­ingur þess félags er risa­vax­inn, en heild­ar­tekjur félags­ins námu tæp­lega 200 millj­örðum Banda­ríkja­dala í fyrra eða sem nemur tæp­lega 27 þús­und millj­örðum króna. Í ljósi stærðar félags­ins þarf það reglu­lega að fjár­festa til að koma pen­ingum sínum í arð­sama ávöxtun, og þar mun Buffett vafa­lítið halda áfram að láta til sín taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár