Árni Páll tilkynnir ákvörðun um formannsframboð í dag

Árni Páll Árnason til­kynnir á blaða­manna­fundi í dag hvort hann ætli að bjóða sig fram til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar á næsta lands­fundi.

Árni Páll Árnason hefur verið formaður Samfylkingarinnar síðan 2013.
Árni Páll Árnason hefur verið for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar síðan 2013. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur boðað til blaða­manna­fundar á Alþingi í dag klukkan 15. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mun hann þar til­kynna fjöl­miðlum ákvörðun sína varð­andi hvort hann ætli að gefa kost á sér til end­ur­kjörs sem for­maður flokks­ins á kom­andi lands­fundi. Fram kom í úttekt Kjarnans í síð­ustu viku að Árni Páll ætlar að gefa kost á sér áfram til þing­mennsku í kom­andi kosn­ingum.

Ákveðið var að flýta lands­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í ljósi slaks fylgis flokks­ins í skoð­ana­könn­unum. Hann verður hald­inn í byrjun júní næst­kom­andi og verður ný for­ysta kjörin. Þeir sem hafa boðið sig fram til for­manns flokks­ins eru Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður, Magnús Orri Schram, fyrr­ver­andi þing­maður, Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, og Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, bæj­ar­full­trúi á Sel­tjarn­ar­nesi og starfs­maður í félags­mið­stöð.

Katrín Júl­í­us­dóttir vara­for­maður hefur ákveðið að hætta á þingi eftir þetta kjör­tíma­bil. Sema Erla Serdar, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður flokks­ins í Kópavogi, hefur boðið sig fram í emb­ættið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár