Skráðum kynferðisbrotum fjölgar

Til­kynn­ingar til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um kyn­ferð­is­brot voru 38 í júní. Þar af áttu 16 brot­anna sér stað í mán­uð­inum en 16 brot voru eldri. Brotunum fjölgar bæði miðað við sex og tólf mán­aða með­al­tal.

Brotum fjölgar
Brotum fjölgar Hegn­ing­ar­laga­brotum fjölg­aði í júní. Mynd: Pressphotos.biz

Hegn­ing­ar­laga­brotum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölg­aði í júní frá fyrri mán­uði og fjölgar þeim einnig miðað við bæði sex og tólf mán­aða með­al­tal. Alls voru skráð 801 hegn­ing­ar­laga­brot í síð­asta mán­uði, borið saman við 701 brot í maí. Fjöldi hegn­ing­ar­laga­brota það sem af er ári er öllu minni en með­al­tal síð­ustu þriggja ára, en það helg­ast þó einkum af því að fjöldi þeirra árið 2021 var mark­vert meiri en árin 2020 og 2022.

Flest brotin áttu sér stað á svæði lög­reglu­stöðvar 1, í Miðborg, Vesturbæ, Sel­tjarn­ar­nes, Háaleiti, Hlíðar og Laug­ar­dal. Alls bár­ust 117 til­kynn­ingar um ofbeld­is­brot í júní. Til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi fjölg­aði nokkuð á milli mán­aða og fóru úr 55 til­kynn­ingum í maí í 72 til­kynn­ingar í júní. Það sem af er ári hafa borist um tíu pró­sent færri til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi sam­an­borið við með­al­fjölda sama tíma­bils síð­ustu þrjú ár á undan.

164
kyn­ferð­is­brot hafa verið til­kynnt það sem af er ári

Alls bár­ust lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 38 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot í júní, um 16 þeirra til­kynn­inga voru vegna brota sem áttu sér stað í júní. Er þetta nokkur fjölgun til­kynn­inga miðað við með­al­tal síð­ustu sex og síð­ustu 12 mán­uði á undan. Hins vegar hafa, það sem af er ári, verið skráð um 14 pró­sent færri kyn­ferð­is­brot en voru skráð að með­al­tali á sama tíma­bili síð­ustu þrjú ár þar á undan. Alls hafa verið skráð 164 kyn­ferð­is­brot á fyrri helm­ingi árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra voru þau 190 tals­ins, 229 tals­ins árið 2021 en 153 árið 2020.

Alls bár­ust 25 beiðnir um leit að börnum og ung­mennum í júní. Ekki hafa borist fleiri beiðnir um leit að börnum og ung­mennum síðan í júní 2020 þegar 25 beiðnir bár­ust.

Skráðum fíkni­efna­brotum fjölg­aði á milli mán­aða og voru skráð þrjú stór­fellt fíkni­efna­brot í júní. Heilt yfir hafa þó verið skráð um 33 pró­sent færri fíkni­efna­brot á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en voru skráð að með­al­tali á sama tíma­bili síð­ustu þrjú ár á undan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár