Íslensk stjórnvöld sendu þrjú börn á götuna í París

Eftir að íslensk yfir­völd sendu Seibel-fjöl­skyld­una úr landi, án þess að taka hæl­is­um­sókn hennar til með­ferðar, er lík­legt að hún verði fyrir refs­ingu í Úsbekistan. Mann­rétt­inda­sam­tök hafa ítrekað gagn­rýnt stjórn­völd í Úsbekistan fyrir skipu­lögð mann­rétt­inda­brot gegn þegnum sínum.

Rúmlega tólf hund­ruð manns hafa nú skrifað undir áskorun til stjórn­valda um að veita Seibel-fjöl­skyld­unni, sem send var úr landi þann 26. apríl síð­ast­lið­inn, hæli á Íslandi. Hjónin Irena og Vladimir Seibel flúðu hingað til lands vegna trú­ar­of­sókna í heima­land­inu, Úsbekistan, í ágúst á síð­asta ári ásamt börnum sínum þremur, Milinu, níu ára, og tví­burunum Samir og Kemal, sem eru sex ára. Fyrir rúmum mán­uði var þeim síðan vísað úr landi án þess að umsókn þeirra um hæli væri tekin til með­ferðar. Þau höfðu þá búið á land­inu í átta mán­uði, börnin þrjú gengið í skóla, stundað íþróttir og lært íslensku. Líklegt er að þeim verði refsað fyrir að hafa reynt að skipta um búsetu­land.

Það eru starfs­menn Akurs­skóla í Innri-Njarðvík sem standa fyrir und­ir­skrifta­söfn­un­inni en börnin voru öll nem­endur við skól­ann. Þá hófu starfs­menn­irnir einnig söfnun handa fjöl­skyld­unni og hafa sent henni pen­inga til Frakk­lands fyrir mat og skjóli. 

„Ef það hefði ekki verið fyrir aðstoð vina okkar og kenn­ara á Íslandi þá værum við á göt­unni,“ segir Irina í sam­tali við Stundina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár