Landaður afli 25 prósent minni núna en í mars í fyrra

Landaður afli íslenskra skipa í mars var 118.448 tonn sem er 25% minni afli en í mars 2018. Aflasam­drátt­ur­inn skýrist nær ein­göngu af minni loðnu­afla en engin loðna veidd­ist í mars sam­an­borið við tæp 82 þús­und tonn í mars 2018.

Landaður afli íslenskra skipa í mars var 118.448 tonn sem er 25 pró­sent minni afli en í mars 2018. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Aflasam­drátt­ur­inn skýrist nær ein­göngu af minni loðnu­afla en engin loðna veidd­ist í mars sam­an­borið við tæp 82 þús­und tonn í mars 2018.

Rúmlega þre­földun í kolmunna­afla nær ekki að vega upp afla­brest­inn í loðnu en kolmunna­afli í mars var rúm 64 þús­und tonn. Botn­fisk­afli nam 52 þús­und tonnum í febr­úar og minnk­aði um 2 pró­sent miðað við sama mánuð 2018.

Afli metinn á föstu verðlagi 15,6% minni

Heild­ar­afli á 12 mán­aða tíma­bili frá apríl 2018 til mars 2019 var tæp­lega 1.306 þús­und tonn sem er aukn­ing um 6 pró­sent miðað við sama tíma­bil ári fyrr. Aukn­ingin er vegna meiri botn- og flat­fisk­afla og sam­dráttur í upp­sjáv­ar­afla er minni en vænta má vegna meiri kolmunna­afla.

Afli í mars, met­inn á föstu verð­lagi, var 15,6 pró­sent minni en í mars 2018.

Beðið eftir loðnu í mars

[links]Fram kom í frétt Kjarnans í byrjun mars síð­ast­lið­ins að hring­inn í kringum landið hefðu ell­efu fiski­mjöls­verk­smiðjur og níu hrogna­vinnslur með alls um þús­und starfs­menn beðið eftir loðnu.

Útflutn­ings­verð­mæti loðnu nam 17,8 millj­örðum króna í fyrra. Á þriðja árs­fjórð­ungi síð­asta árs nam lands­fram­leiðsla síð­ustu fjög­urra árs­fjórð­unga 2.766 millj­örðum króna og er því um að ræða um 0,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu sem þjóð­ar­búið verður af, að öllu öðru óbreyttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár