Um þúsund starfsmenn bíða eftir loðnu

Loðna hefur enn ekki fund­ist þrátt fyrir tölu­verða leit en ell­efu fiski­mjöls­verk­smiðjur og níu hrogna­vinnslur um land allt með alls um þús­und starfs­menn bíða nú eftir henni.

Hringinn í kringum landið eru ell­efu fiski­mjöls­verk­smiðjur og níu hrogna­vinnslur með alls um þús­und starfs­menn sem bíða eftir loðnu. Þetta segir Gunnþór Ingvason, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, í sam­tali við Aust­ur­frétt. „Hjá okkur eru þetta um 150 starfs­menn með sjó­mönnum,“ segir hann.

Loðna hefur ekki enn fund­ist þrátt fyrir mikla leit. Í frétt Aust­ur­fréttar um málið segir að reyna eigi til þrautar um helg­ina þegar Polar Amaroq, skip græn­lensks dótt­ur­fé­lags Síld­ar­vinnsl­unnar, og Ásgrímur Hall­dórs­son frá Höfn láta úr höfn. Fyr­ir­hugað sé að Ásgrímur fari með­fram suð­ur­land­inu en Polar norður fyrir.

„Við ætlum að skoða vest­ur­göngu og áfram upp með Norð­ur­landi. Við vitum að loðnan hefur oft komið í tölu­verðu magni upp að Norð­ur­landi seint. Hoffell náði til dæmis tveimur full­fermistúrum fyrir norðan í fyrra eftir 14. mars,“ segir Gunnþór.

Halda í vonina

Loðnu­ver­tíð­inni hefur lokið um miðjan mars en Gunnþór bendir að sé horft lengra aftur í tím­ann hafi þekkst að loðna væri veidd og hrogn úr henni unnin framundir lok mán­að­ar­ins.

„Ef ég á að vera heið­ar­legur þá er ég orð­inn vondaufur en við höldum í von­ina. Þrátt fyrir allt er eftir miklu að slægj­ast því hrogna­tíðin er verð­mæt­ust. Við trúum að eitt­hvað af birt­inga­myndum fyrri tíðar verði uppi á ten­ingnum,“ segir hann.

Áhrifin allnokkur á hagvöxt

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur ekki gefið út neinn upp­hafs­kvóta á loðnu á þess­ari ver­tíð og stefnir því í að engar loðnu­veiðar verði heim­il­aðar, sam­kvæmt Hagsjá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans. Verandi næst mik­il­væg­asta útflutn­ings­fisk­teg­undin á eftir þorsk­inum munu áhrif þess verða all­nokkur á lands­fram­leiðslu og þar með á hag­vöxt.

Útflutn­ings­verð­mæti loðnu nam 17,8 millj­örðum króna í fyrra. Á þriðja árs­fjórð­ungi síð­asta árs nam lands­fram­leiðsla síð­ustu fjög­urra árs­fjórð­unga 2.766 millj­örðum króna og er því um að ræða um 0,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu sem þjóð­ar­búið verður af, að öllu öðru óbreyttu.

„Sú veiði­regla sem stuðst er við til ákvörð­unar á umfangi veiða gerir ráð fyrir að veiða upp að því marki að skilin séu eftir um 400 þús­und tonn af kyn­þroska loðnu hverju sinni. Nýjasta mat á þeim stofni frá rann­sókn­ar­leið­angri sem far­inn var 4.-15. jan­úar var að stofn kyn­þroska loðnu væri 214 þús­und tonn,“ segir í Hag­sjánni.

Loðna veidd samfleytt frá 1963

Þær mæl­ingar sem gerðar voru í byrjun febr­úar gáfu ekki von um að veiði­ráð­gjöf verði breytt. Hluti af óviss­unni um mat á stærð stofns­ins liggur, sam­kvæmt Hagsjá, í því að ganga loðn­unnar hefur breyst á síð­ustu árum sem talið er að rekja megi meðal ann­ars til hlýn­unar sjávar í kringum landið.

„Verði það nið­ur­staðan að ekki verði veidd nein loðna mun það sæta tölu­verðum tíð­indum enda hefur loðna verið veidd hér við land sam­fleytt frá árinu 1963. Þó komið hafi ver­tíðir með mjög litlum veiðum hefur það aldrei farið svo að ekki hafi orðið nein veiði. Af slæmum ver­tíðum má helst nefna árið 2009 þegar veidd voru 15 þús­und tonn og árið 1982 þegar veiðar námu ein­ungis rúm­lega 13 þús­und tonnum. Þegar mest lét námu veiðar 1,3 milljón tonnum árið 1997 en segja má að mestu veið­arnar hafi verið á tíma­bil­inu 1996-2002 þegar með­al­veiðar árs­ins námu 976 þús­und tonnum. Frá árinu 2002 hafa veiðar leitað niður á við og verið að með­al­tali 190 þús­und tonn síð­ustu 5 ár,“ segir í Hagsjá hag­fræði­deildar Lands­bank­ans.

Hefur áhrif á tekjur sjómanna

Gunnþór segir að loðnan sé um 40 pró­sent útflutn­ings­tekna hjá fyr­ir­tækjum í upp­sjáv­ar­fiski. Hún hafi verið 35 pró­sent af þeirra tekjum miðað við áætlun en þau hafi reyndar ekki verið með mik­inn loðnu­kvóta inni í þeim.

?„Ég geri ekki lítið úr áhrifum þess, ef ekki finnst loðna, á umfang fyr­ir­tækj­anna en þau draga saman í fjár­fest­ingum og fara í gegnum þetta. Hjá sjó­mönnum get ég trúað að þetta sé 30 pró­sent tekju­lækkun. Hlut­falls­lega þyngsta höggið er hins vegar fyrir starfs­fólkið sem fer á milli staða og treystir á ver­tíðar. Loðnu­brestur kemur víða niður, það má reikna með að Fjarða­byggð verði af 200 til 250 millj­ónum í tekjur,“ segir hann.

Skip Síld­ar­vinnsl­unnar hafa verið að veiða kolmunna sem gengur vestur fyrir Bret­landseyjar til að hrygna og sem leitar svo aftur norður þegar líður að sumri. „Það hefur gengið upp og ofan. Sigl­ingin er löng og veið­arnar kostn­að­ar­samar því svæðið er erfitt og tíð­ar­farið hefur verið það einnig,“ segir Gunnþór við Aust­ur­frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár