Kalla eftir athugasemdum svo unnt sé að leiðrétta ef við á

Aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­al­ans segir að óánægja bak­varða með lágar álags­greiðslur hafi verið rædd á fundi fram­kvæmda­stjórnar í dag. Var ákveðið að kalla eftir athuga­semdum frá stjórn­endum svo unnt væri að gera leið­rétt­ingar ef við á.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans. Mynd: Lögreglan

Fram­kvæmda­stjórn Land­spít­al­ans hefur kallað form­lega eftir athuga­semdum frá stjórn­endum deilda spít­al­ans vegna óánægju heil­brigð­is­starfs­fólks úr bak­varða­sveit­inni með álags­greiðslur sem greiða á út á morgun. Bak­verðir komu flestir til starfa á heil­brigð­is­stofn­unum er far­ald­ur­inn stóð sem hæst en nokkrir þeirra hafa í dag lýst opin­ber­lega yfir von­brigðum með að fá mjög lága álags­greiðslu.

Einn bak­varð­anna, svæf­ing­ar­hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn Arna Rut O. Gunn­ars­dóttir, lýsti því í sam­tali við Kjarnann í dag að hún teldi þá upp­hæð sem hún fær „nið­ur­lægj­andi“ og engan veg­inn end­ur­spegla hennar fram­lag á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans. Arna Rut er búsett á Akureyri. Hún starf­aði um ára­bil á Sjúkra­hús­inu á Akureyri en skipti um starfs­vett­vang árið 2018. Er far­aldur COVID-19 bloss­aði upp hér á landi ákvað hún þegar í stað að skrá sig í bak­varða­sveit­ina og vegna sér­þekk­ingu hennar var hún beðin að koma til starfa á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans í Fossvogi, sem hafði verið helguð sjúk­lingum með COVID-19. Hún vann margar og langar vaktir, alls yfir 170 vinnu­stundir í apríl er far­ald­ur­inn stóð sem hæst.

Í miðjum far­aldr­inum var þegar farið að ræða um það að greiða heil­brigð­is­starfs­fólki sér­staka umbun vegna álags­ins. Einn millj­arður króna var svo settur inn í fjár­auka­lög og átti hann að greiða því starfs­fólki sem stóð í fram­lín­unni í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. Ákveðið var að 750 millj­ónir myndu renna til starfs­manna Land­spít­al­ans og Sjúkra­húss­ins á Akureyri en afgang­ur­inn til heilsu­gæsl­unnar og ann­arra heil­brigð­is­stofn­ana í land­inu.

[links]Síðar til­kynnti Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, að allt starfs­fólk sjúkra­húss­ins fengi greitt vegna álags­ins en mis­mikið eftir því á hvaða deildum það vinnur. Og á hvaða tíma. Þannig var ákveðið að upp­hæðin færi eftir við­veru starfs­manns í mars og apríl. Þeir sem unnu náið við umönnun COVID-sjúk­linga gátu fengið allt að 250 þús­und krónur.

Þar sem Arna er ekki fastur starfs­maður og hafði því ekki unnið á spít­al­anum í mars fékk hún allt aðra upp­hæð: 26.938 krónur. Útborgað: 16.100 krónur.

Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­al­ans, segir við Kjarnann að málið hafi verið rætt á fundi fram­kvæmda­stjórnar sjúkra­húss­ins í dag. Á þeim fundi var ákveðið að kalla eftir athuga­semdum frá stjórn­endum svo unnt væri að gera leið­rétt­ingar ef við á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár