Greiðslufall yfirvofandi hjá Reykjanesbæ ef ekki semst um skuldir

Reykja­nes­bær á nú í við­ræðum við kröfu­hafa um end­ur­skipu­lagn­ingu skulda sinna, en ef þær við­ræður skila ekki árangri getur komið til greiðslu­falls hjá bænum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bænum.

„Eins og fram hefur komið í til­kynn­ingum Reykja­nes­bæjar er fjár­hags­staða bæj­ar­fé­lags­ins alvar­leg. Bæj­ar­yf­ir­völd eiga í við­ræðum við kröfu­hafa um end­ur­skipu­lagn­ingu skuld­bind­inga bæj­ar­fé­lags­ins. Stefnt er að því að nið­ur­staða þeirra við­ræðna liggi fyrir á næstu vikum. Ef við­ræð­urnar skila ekki árangri getur komið til greiðslu­falls á skuld­bind­ingum bæj­ar­fé­lags­ins í fram­tíð­inni,“segir í til­kynn­ingu bæj­ar­fé­lags­ins.

Bærinn hefur verið í miklum vanda um langt skeið. Reykja­nes­bær er skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess, rúmir 40 millj­arðar króna, eru um 250 pró­sent af reglu­legum tekjum. Samkvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

Um síð­ustu ára­mót var fengin heim­ild til að leggja auka­á­lag ofan á hámarks­út­svar hjá bænum, sem þýðir að íbúar Reykja­nes­bæjar þurfa að greiða hærri skatta til sveit­ar­fé­lags­ins en nokk­urt annað sveit­ar­fé­lag á land­inu vegna afleitrar fjár­hags­stöðu. Þeir borga 15,05 pró­sent á meðan að hámarks­út­svar sam­kvæmt lögum er 14,52 pró­sent.

Til við­bótar hefur fast­eigna­skattur verið hækk­aður, fastri yfir­vinnu bæj­ar­starfs­manna sagt upp, föstum öku­tækja­styrkjum þeirra sagt upp, fagsviðum fækkað, öllum fram­kvæmda­stjórum sveit­ar­fé­lags­ins sagt upp.

Þörf á sársaukafullum aðgerðum


Ný bæj­ar­yf­ir­völd í Reykja­nesbæ fengu KPMG til að gera óháða úttekt á fjár­málum sveit­ar­fé­lags­ins eftir að þau tóku við stjórn bæj­ar­ins. Á grunni þeirrar úttekar var ný aðgerð­ar­á­ætlun til átta ára kynnt til sög­unnar, en henni er ætlað að ná skulda­hlut­fall­inu niður fyrir 150 pró­sent fyrir árið 2021. Kjarninn skrif­aði ítar­lega um þessi mál nýlega, en þau skrif má lesa hér.

Í fyrsta lagi þarf að auka fram­legð að lág­marki um 900 millj­ónir króna með aðgerðum í rekstri. Það þýðir auknar tekjur, til dæmis í gegnum þjón­ustu­gjöld og hækkun á útsvari, og lækkun rekstr­ar­kostn­aðar, til dæmis með upp­sögnum á starfs­fólki.

Í öðru lagi á að stöðva fjár­flæði frá A-hluta sveit­ar­sjóðs yfir til starf­semi sem til­heyrir B-hluta. Með öðrum orðum á að hætta að nota tekjur sveita­fé­lags­ins, lán­tökur eða eigna­sölur til að borga fyrir þann hluta sem til­heyrir B-hluta sveita­sjóðs. Í þessu felst meðal ann­ars að HS Veitur verði látnar greiða hámarks­arð, um 900 millj­ónir króna á ári.

Í þriðja lagi á að tak­marka fjár­fest­ingar A-hluta sveit­ar­fé­lags­ins við 200 millj­ónir króna á ári þar til fjár­hags­mark­miðum verður náð.

Í fjórða lagi á að mæta auk­inni greiðsl­ur­byrði næstu ára með end­ur­fjár­mögnun skulda og skuld­binda og skoða mögu­leika á frek­ari sölu eigna eða sam­ein­ingu B-hluta stofn­ana. Þær B-hluta stofn­anir sem eru mest byrði á Reykja­nesbæ eru Reykja­nes­höfn og Fast­eignir Reykja­nes­bæjar. Hvorug þeirra getur rekið sig án pen­inga frá A-hluta sveita­sjóðs­ins eins og staðan er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár