Guðmundur Ingi: „Því miður hefur ríkisstjórnin skitið upp á bak“

Þing­maður Flokks fólks­ins segir rík­is­stjórn­ina hafa klúðrað veiru­vörnum. Hann segir for­mann flokks­ins hafa haft rétt fyrir sér þegar hún tal­aði fyrir sam­bæri­legum aðgerðum í Kast­ljósi fyrir um ári síðan en hún hafi verið „höfð að háði og spotti fyrir.“

Forseti Alþingis sá ástæðu til þess að gera alvarlegar athugasemdir við orðfæri Guðmundar Inga á þingi í dag en hann sagði ríkisstjórnina hafa skitið upp á bak.
Forseti Alþingis sá ástæðu til þess að gera alvar­legar athuga­semdir við orð­færi Guð­mundar Inga á þingi í dag en hann sagði rík­is­stjórn­ina hafa skitið upp á bak. Mynd: Bára Huld Beck

„Flokkur fólks­ins segir lokum öllu núna strax,“ sagði Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, á þingi í dag. Guð­mundur var harð­orður í garð rík­is­stjórn­ar­innar í ræðu sinni sem Guð­mundur hélt undir fund­ar­liðnum Störf þings­ins. Hann sagði klúður rík­is­stjórnar í vörnum gegn kór­ónu­veirunni vera komið í ljós.

„Því miður hefur rík­is­stjórnin skitið upp á bak í COVID mál­inu og það bæði í bólu­efna­mál­inu og þá sér­stak­lega í vörnum gegn veirunni á landa­mærum,“ sagði Guð­mundur um aðgerðir gegn kór­ónu­veirunni. Þá sagði hann landa­mærin „míg­leka“ og að þau hafi gert það í langan tíma.

Forseti þings­ins, Stein­grímur J. Sig­fús­son sá ástæðu til að gera alvar­legar athuga­semdir við orð­færi Guð­mundar Inga að ræðu lok­inni. „Forseti verður að hvetja hátt­virtan þing­mann til þess að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi með orð­bragði sem er í húsum hæft,“ sagði Stein­grímur meðal ann­ars.

Flokkur fólksins hafi haft rétt fyrir sér í heilt ár

Guð­mundur sagð­ist vilja að rík­is­stjórnin gripi til harð­ari aðgerða vegna veirunnar og að hingað til hafi vinnu­brögð rík­is­stjórn­ar­innar verið óboð­leg og hún horft of mikið til með­al­hófs. „Hvað næst? Rauður dreg­ill fyrir brasil­ísku veiruna á Aust­fjörðum því þar grass­erar hún um borð í skipi með súrál. Það gagn­ast ekki rík­is­stjórn­inni að vera áfram með­al­hófs­súr yfir gangi mála eða álku­leg yfir að hafa verið of sein að loka landa­mær­unum fyrir bresku veirunni, því betra er seint en aldrei,“ sagði Guð­mundur.

Guð­mundur vís­aði í við­tal Kast­ljóss við Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, sem tekið var fyrir um ári síðan þar sem Inga kall­aði eftir því að landa­mær­unum yrði lokað. „Flokkur fólks­ins segir lokum öllu núna strax. Inga Sæland, for­maður flokks­ins, sagði þetta fyrir ári síðan í Kast­ljósi og var höfð að háði og spotti fyrir. En miðað við stöð­una í dag þá höfðum við í Flokki fólks­ins rétt fyrir okkur, allan tím­ann, já full­kom­lega rétt fyrir okkur,“ sagði Guð­mundur.

Inga Sæland tók í sama streng á Facebook síðu sinni fyrr í dag þar sem hún sagði rík­is­stjórn­ina van­hæfa og að hún ætti að „pakka saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár