Loka aðstöðu leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli

Isavia lofar aðgerðum til að betrumbæta þjón­ustu leigu­bíla við Kefla­vík­ur­flug­völl og koma í veg fyrir ógagn­sæja verð­lagn­ingu. Tekið er fram að aðstöðu leigu­bíl­stjóra sé lokað vegna við­halds­skorts sem flug­völl­ur­inn sem eig­andi hennar ber alfarið ábyrgð á.

Kefla­vík­ur­flug­völlur hefur ákveðið að loka aðstöðu leigu­bíls­stjóra við völl­inn frá og með þriðju­deg­inum 10. júní.

Deilur hafa staðið um aðstöð­una, meðal ann­ars vegna kergju um bæna­hald leigu­bíl­stjóra þar inni. Fjölda leigu­bíls­stjóra hefur verið vísað frá flug­vell­inum vegna brota á reglum.

„Leigu­bíl­stjórar hafa haft aðgang að afdrepi við leigu­bíla­svæðið, þ.e. geymslu­skúr þar sem einnig eru sal­erni og setu­að­staða,“ segir í tölvu­pósti frá Isavia til leigu­bíl­stjóra.

„Í kjöl­far umræðu um nýt­ingu á þessu afdrepi var fyr­ir­komu­lag aðstöð­unnar tekið til skoð­unar. Fyrsta skrefið í þeirri vinnu var úttekt á hús­næð­inu sem leiddi í ljós að ástand þess er bág­borið. Því hefur verið ákveðið að loka afdrep­inu.

Rétt er að það komi skýrt fram í þessum pósti að ástæða lok­un­ar­innar er bág­borið ástand afdreps­ins sem ræðst ein­göngu af við­halds­skorti sem við sem eig­andi aðstöð­unnar berum ábyrgð á.“

Leigu­bíl­stjórum er héðan af bent á að nota sal­ern­is­að­stöðu í flug­stöð eins og aðrir þjón­ustu­að­ilar á flug­vell­inum gera. Leigu­bíl­stjórar munu einnig hafa áfram aðgengi að mötu­neyti í flug­stöð­inni sem er opið öllum starfs­mönnum.

Vegna ábend­inga frá gestum flug­vall­ar­ins um leigu­bíla­þjón­ustu og „ógagn­sæja verð­lagn­ingu“ verður einnig hafin vinna við að betrumbæta leigu­bíla­þjón­ustu, verð­lagn­ingu og umgjörð hennar. Starfs­fólk á vegum vall­ar­ins er nú á vöktum á háanna­tíma til að hjálpa not­endum leigu­bíla og upp­lýsa þá um rétt­indi sín.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár