Áréttar að það sé „salur til rannsóknar en ekki ráðherra“

Símtöl dóms­mála­ráð­herra til lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru rædd í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Áslaug sagði sím­tölin ekki skrán­ing­ar­skyld þar sem hún hefði hringt til að afla sér upp­lýs­inga en ekki í form­legum erinda­gjörðum.

Símtöl Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra til Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á aðfanga­dag voru að mati Áslaugar óform­leg og því ekki skrán­ing­ar­skyld. Þetta sagði Áslaug í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Hún hafi með sím­töl­unum verið að afla sér upp­lýs­inga vegna sím­tala frá fjöl­miðlum og sagði hún slíka upp­lýs­inga­öflun ein­stakra starfs­manna og ráð­herra til að veita fjöl­miðlum réttar upp­lýs­ingar ekki falla undir ákvæði um skrán­ingu mála í reglum um skrán­ingu sam­skipta.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag beindi Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ingar, spurn­ingum til Áslaugar. Hann sagði að á tímum jarð­skjálfta, kór­ónu­veiru og mik­ils atvinnu­leysis þætti mörgum ef til vill ekki ástæða til að gera veður út af mann­fagn­aði á Þor­láks­messu þar sem fjár­mála­ráð­herra var við­staddur eða þá vegna sím­tölum dóms­mála­ráð­herra til lög­reglu­stjóra degi síðar.

Stormur í vatnsglasi eða gola í freyðivínsglasi?

„Ég hef heyrt Sjálf­stæð­is­menn tala um storm í vatns­glasi í þessu sam­bandi og mætti kannski allt eins tala um golu í freyði­víns­glasi. Algjört „smá­mál“ segja menn. En er það? Málið, það snýst um sjálf­stæði lög­regl­unnar. Það snýst um valda- og virð­ing­ar­röð. Það snýst um að allir borg­ara sitji við sama borð gagn­vart lög­unum,“ sagði Guð­mundur.

Hann sagði lög­reglu oft hafa gengið nærri fólki í við­kvæmri stöðu með dag­bók­ar­færslum sínum. Fyrst nú, þegar þess væri getið að ráð­herra hefði verið á stað þar sem sótt­varn­ar­reglur hefðu mögu­lega verið brotnar sæi ráð­herra til­efni til að „taka upp tólið“ og spyrja út í dag­bók­ar­skrif lög­regl­unnar. Guð­mundur spurði í kjöl­farið hvort að per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­mið hefðu verið það sem var efst á baugi í fyr­ir­spurnum fjöl­miðla og hvort að ráð­herra væri reiðu­bú­inn til að deila því hvað hefði farið á milli hennar og lög­reglu­stjór­ans í sím­töl­unum.

Á í góðum samskiptum við lögreglu

Áslaug Arna byrj­aði á því að taka fram að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hún ræðir við lög­reglu vegna dag­bók­ar­færslna lög­regl­unnar. Hún sagði að það hefðu áður komið fyrir að lög­reglan hefði þurft að biðj­ast afsök­unar á dag­bók­ar­færslum gengið hefðu of nærri borg­urum. Símtölin hefðu snú­ist fyrst og fremst um hvaða reglur giltu er varða per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­mið.

„Ég hef marg­ít­rekað hvað fór okkar á milli. Ég spurði um þær verk­lags­reglur sem giltu um þessar dag­bók­ar­færslur því ég hafði fengið spurn­ingar um það frá fjöl­miðlum sem og hvaða per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­mið giltu,“ sagði Áslaug. Hún bætti því við að hún hefði ekki áhyggjur af ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar hvað þetta atriði varðar heldur hafi hún ein­fald­lega viljað geta svarað spurn­ingum fjöl­miðla um per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­mið og hversu langt lög­reglan geti gengið í fram­setn­ingu upp­lýs­inga í dag­bók­ar­færslum sínum.

Símtal klukkan hálf fimm á aðfangadag

Guð­mundur Andri steig í pontu öðru sinni í kjöl­farið og spurði hvort að fjöl­miðlum hefði verið mest umhugað um að spyrja um verk­lags­reglur lög­regl­unnar. Hann spurði einnig sím­tölin voru ekki skráð í ráðu­neyt­inu. „Þessi sím­töl voru ekki skráð í ráðu­neyt­inu eins og reglan er þó um öll form­leg og óform­leg slík sam­skipti, telj­ist þau mik­il­væg, eins og þar stendur. Hvers vegna? Voru þetta ekki mik­il­væg sam­skipti? Ef þau voru ekki mik­il­væg, af hverju þá að vera að hringja í fólk klukkan hálf fimm á aðfanga­dag?“ spurði Guð­mundur

Áslaug Arna sagð­ist ekki ætla að leggja mat á hvað fjöl­miðlum var mest umhugað um á aðfanga­dag en að hún hefði engu að síður verið spurð um regl­urnar er snúa að per­sónu­vernd. „Staðan var þannig að fjöl­miðlar fjöll­uðu um að færslan hefði verið óvenju­leg, hún hefði verið ítar­leg,“ sagði hún.

Undir lok svars síns árétt­aði Áslaug Arna það að Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, væri ekki til rann­sóknar vegna meintra brota á sótt­varn­ar­reglum. „Það er líka rétt að geta þess að það er salur til rann­sóknar en ekki ráð­herra. Voru þessi sam­skipti ekki mik­il­væg? Ég skrái ekki og það er ekki skylda að skrá óform­leg sam­töl við yfir­menn stofn­ana til að leita mér upp­lýs­inga. Eins og sjá má um reglur um skrán­ingu sam­skipta þá fellur þetta sím­tal ekki undir ákvæði um skrán­ingu mála. Upp­lýs­inga­öflun ein­stakra starfs­manna og ráð­herra til þess að veita fjöl­miðlum réttar upp­lýs­ingar falla ekki undir það ákvæði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár