Persónuupplýsingar um helstu leiðtoga heimsins birtar fyrir mistök

Per­sónu­upp­lýs­ingar um helstu þjóð­ar­leið­toga heims­ins voru fyrir mis­tök birt af útlend­inga­yf­ir­völdum í Ástralíu í tengslum við G20 fund sem var hald­inn í Brisbane í Ástralíu í nóv­em­ber í fyrra. Áströlsk yfir­völd greindu þjóð­ar­leið­tog­unum ekki frá þessu. Guardian segir frá mál­inu í morgun.

Vega­bréfs­númer, vega­bréfs­á­rit­anir og ýmsar aðrar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um alla leið­tog­ana voru sendar fyrir mis­tök til skipu­leggj­enda Asíu­bik­ars­ins í knatt­spyrnu. Það var starfs­maður í útlend­inga­eft­ir­liti sem það gerði.

Barack Obama Banda­ríkja­for­seti, Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti, Angela Merkel Þýska­landskansl­ari og David Camerson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, voru á meðal þeirra sem lentu í þessu ásamt Xi Jinping, for­seta Kína, Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japans, og Joko Widodo, for­seta Indónesíu, svo dæmi séu tekin.

Guardian hefur undir höndum tölvu­póst sem sendur var til að láta vita af upp­lýs­inga­lek­anum. Þar kemur fram að um mann­leg mis­tök hafi verið að ræða, ekki hafi verið gætt að því að Microsoft Outlook póst­forritið fylli sjálf­krafa út póst­föng þegar byrjað er að skrifa hvert tölvu­póstur eigi að fara. Þess vegna hafi tölvu­póst­ur­inn farið annað en hann átti að fara. Þá kemur fram að við­tak­endur pósts­ins hjá Asíu­bik­arnum hafi eytt honum og ekki áfram­sent neitt, og ekki sé talið að upp­lýs­ing­arnar hafi kom­ist í hendur ann­arra.

Málið hefur vakið mikla athygli í Ástralíu, ekki síst vegna þess að það voru útlend­inga­yf­ir­völd í Ástralíu sem báru ábyrgð á stærsta upp­lýs­inga­leka frá stjórn­valdi í sögu lands­ins. Það var í febr­úar í fyrra, þegar per­sónu­upp­lýs­ingar um tæp­lega tíu þús­und manns voru settar á vef­síðu útlend­inga­eft­ir­lits­ins. Fólkið var allt í haldi yfir­valda, margir voru hæl­is­leit­endur.

Stjórn­ar­and­staðan í Ástralíu hefur krafið Tony Abbot for­sæt­is­ráð­herra svara um það hvers vegna þjóð­ar­leið­tog­arnir voru ekki látnir vita af mál­inu. Þá þykir málið vand­ræða­legt fyrir stjórn­völd þar sem í síð­ustu viku voru umdeild lög um gagna­geymslu sam­þykkt, en lögin skylda síma­fyr­ir­tæki til að geyma ákveðnar síma- og net­upp­lýs­ingar í tvö ár. „Það var aðeins í síð­ustu viku sem rík­is­stjórnin kall­aði eftir því að almenn­ingur í Ástralíu treysti þeim fyrir net­gögnum, og nú komumst við að því að hún greindi frá upp­lýs­ingum um leið­toga heims­ins,“ sagði þing­mað­ur­inn Sarah Hanson-Young.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár