Ráðherraskipan VG ekki endurskoðuð þrátt fyrir fyrirvara

Fram kemur í nýút­kominni bók um sögu Vinstri grænna að þing­maður í flokknum hafi lagt fram fyr­ir­vara við myndun sitj­andi rík­is­stjórnar um að ráð­herra­valið yrði end­ur­skoðað að tveimur árum liðnum.

Lilja Rafney Magnúsdóttir
Lilja Rafney Magn­ús­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Ekki hefur verið hugað að nýrri ráð­herra­skipan innan þing­flokks Vinstri grænna en í nýrri bók sem fjallar um sögu flokks­ins kemur fram að við myndun sitj­andi rík­is­stjórnar hafi Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður flokks­ins, lagt fram þann fyr­ir­vara að ráð­herra­valið yrði end­ur­skoðað á miðju kjör­tíma­bili.

Saga Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs er komin út á tutt­ugu ára afmæli flokks­ins en Pétur Hrafn Árnason sagn­fræð­ingur ritar. Í bók­inni er meðal ann­ars rak­inn aðdrag­andi stjórn­ar­mynd­unar í lok árs 2017 en rík­is­stjórnin tók form­lega við völdum á rík­is­ráðs­fundi þann 30. nóv­em­ber. Í hlut Vinstri grænna komu heil­brigð­is­ráðu­neyti, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyti auk for­sæt­is­ráðu­neyti. Þá varð Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis.

Í bók­inni kemur fram að um tíma hafi litið út fyrir það að Vinstri græn fengju mennta­mála­ráðu­neytið og hafði Svandís Svav­ars­dóttir lýst yfir áhuga á að gegna því ráð­herra­emb­ætti en þegar mál hafi skip­ast á annan veg tók hún að sér heil­brigð­is­málin. Katrín hafði jafn­framt sam­band við Guðmund Inga Guð­brands­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Land­verndar, og spurt hvort hann vildi taka það að sér að verða umhverf­is­ráð­herra, sem hann og sam­þykkti.

Þá segir enn fremur í bók­inni að þing­flokk­ur­inn hafi sam­þykkt sam­hljóða til­lögu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­efni. Þó hafi Lilja Rafney lagt fram fyr­ir­vara, eins og áður segir, um að ráð­herra­valið yrði end­ur­skoðað að tveimur árum liðnum.

Nú eru rúm tvö ár liðin síðan núver­andi rík­is­stjórn hóf störf en í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að ráð­herra­skipan Vinstri grænna hafi ekki verið end­ur­skoðuð það sem af er kjör­tíma­bili eða tekin til sér­stakrar umræðu. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur engin ákvörðun verið tekin um hvort ráð­herra­val verði end­ur­skoðað á náinni fram­tíð.

Lilja Rafney gerir ekki kröfu um endurskoðun

Lilja Rafney segir í sam­tali við Kjarnann að þetta hafi verið eitt af þessum atriðum sem nefnt var á þessum tíma. „Ég hef ekki gengið á eftir því og hefur þetta ekki komið til tals síðan þá,“ segir hún og bætir því við að hún hafi ekki mikið hugsað um þennan fyr­ir­vara sem hún setti eða mikið verið að dvelja við það sem sagt var. Hún sé enn fremur ekki með kröfu um að ráð­herra­valið verði end­ur­skoðað.

Að sögn Lilju Raf­n­eyjar var ástæðan fyrir því að hún setti fyrr­nefndan fyr­ir­vara sú að henni fannst eðli­legt að gera slíka kröfu í ljósi þing­reynslu sinnar en hún hefur verið alþing­is­maður Norð­vest­ur­kjör­dæmis síðan árið 2009 fyrir Vinstri græn. Hún var jafn­framt vara­þing­maður í mars og apríl árið 1993 fyrir Alþýðu­banda­lagið, í nóv­em­ber árið 1998 utan flokka og í jan­úar og febr­úar 2007 fyrir Vinstri græn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár