Kórónuveirubörnin að slá Íslandsmet hrunbarnanna

Á árunum eftir banka­hrunið settu Íslend­ingar met í barn­eignum. Kór­ónu­veiru­far­ald­urs­börnin virð­ast ætla að slá það met. Kostn­aður vegna fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslna mun fara yfir 20 millj­arða króna í fyrsta sinn á næsta ári.

Í byrjun des­em­ber höfðu um 4.300 börn verið skráð hjá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði vegna orlofstöku á árinu. Mesti fjöldi fæddra barna á einu ári á Íslandi var 4.521 árið 2010, í kjöl­far hruns­ins. Nú stefnir í að árið 2021 verði það stærsta til þessa auk þess sem feður hafa tekið meira orlof en verið hefur á und­an­förnum árum. Það leiðir til þess að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna fæð­ing­ar­or­lofs hafa hækkað skarpt og stefna í að verða 19,3 millj­arðar króna í ár.

Í fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar kom fram að 19,6 millj­arðar króna myndu fara í að greiða fyrir fæð­ing­ar­or­lof úr fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði á næsta ári og því ljóst að búist var við stóru barna­ári 2022 líka.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar vegna fjár­laga­frum­varps­ins, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, kemur hins vegar fram að sú upp­hæð muni senni­lega ekki duga. Samhliða leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs­réttar 2020 og 2021 hafi nýt­ing rétt­ar­ins einnig smám saman verið að dreifast á lengri tíma, og þá sér­stak­lega hjá feðrum.

[adspot]Því gerir meiri­hlut­inn til­lögu um að hækka fram­lag til Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs um 1.627 millj­ónir króna frá því sem til stóð að láta renna í hann í fjár­laga­frum­varp­inu. Því fara greiðslur úr fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði í 21,2 millj­arða króna á næsta ári, sam­kvæmt áætl­unum.

Tólf mánaða orlof

Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóður er fjár­magn­aður með inn­heimtu trygg­inga­gjalds, líkt og ýmsir aðrir kostn­að­ar­samir angar almanna­trygg­inga­kerf­is­ins. Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu er reiknað með að tekjur rík­is­sjóðs af inn­heimtu trygg­inga­gjalds verði 107 millj­arðar króna á árinu 2022.

Almennt trygg­inga­gjald var lækkað tíma­bundið um síð­ustu ára­mót um 0,25 pró­sentu­stig, í 4,65 pró­sent. Sú lækkun mun ganga til baka í byrjun næsta árs og almenna trygg­inga­gjaldið fer þá aftur upp í 4,9 pró­sent.

Fæð­ing­ar­or­lof er leyfi frá laun­uðum störfum sem stofn­ast til við fæð­ingu, frumætt­leið­ingu barns yngra en átta ára og töku barns yngra en átta ára í var­an­legt fóstur. Þá stofn­ast réttur til fæð­ing­ar­or­lofs við fóst­ur­lát eftir 18 vikna með­göngu og and­vana­fæð­ingu eftir 22 vikna með­göngu.

Tíma­lengd orlofs er 12 mán­uðir. Hvort for­eldri á rétt á sex mán­aða orlofi en geta fram­selt sex vikur sín á milli. Mán­að­ar­legar greiðslur eru 80 pró­sent af með­al­tali heild­ar­launa, en aldrei hærri en 600 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár