Hreggviður stígur til hliðar úr stjórn Veritas eftir ásakanir um kynferðisbrot

Hregg­viður Jónsson stjórn­ar­for­maður og aðal­eig­andi Veritas hefur ákveðið að stíga til hliðar eftir að ung kona steig fram í vik­unni og sak­aði hann og aðra menn um kyn­ferð­is­of­beldi.

Hreggviður Jónsson
Hregg­viður Jónsson Mynd: Kjarninn.

„Ég harma að hafa ekki stigið út úr aðstæðum sem ung kona hefur skýrt frá og fjallað hefur verið um í sumum fjöl­miðlum. Það er afar þung­bært að heyra um hennar reynslu.“

Þetta segir Hregg­viður Jónsson aðal­eig­andi og for­maður stjórnar Veritas í til­kynn­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla í dag. Ástæðan er við­tal Eddu Falak við Vítalíu Lazareva sem birt­ist í gær en þar ásak­aði hún þrjá áhrifa­menn í sam­fé­lag­inu um að hafa beitt sig kyn­ferð­is­of­beldi í bústað fyrir rúmu ári síðan.

Hregg­viður seg­ist í yfir­lýs­ing­unni líta þetta mál alvar­legum augum og þrátt fyrir að hann hafi „ekki gerst brot­legur við lög“ þá muni hann stíga til hliðar úr stjórn Veritas og stjórnum tengdra fyr­ir­tækja „til að raska ekki þeirra mik­il­vægu starf­semi“.

Ari farinn í leyfi

Stundin greindi frá því fyrr í dag að Ari Edwald hefði sjálfur óskað eftir því að fara í leyfi í gær en nafn hans var meðal þeirra sem Vítalía birti á Instagram-síðu sinni seint á síð­asta ári þar sem hún tjáði sig um kyn­ferð­is­of­beldið.

Fram kemur hjá Stund­inni að Ari hafi stýrt Ísey útflutn­ingi sem fram­kvæmda­stjóri allt frá því að hann lét af störfum sem for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar. Ísey var dótt­ur­fé­lag þess en var á síð­asta ári breytt í syst­ur­fé­lag. Það þýði að félögin tengj­ast ekki beint en séu í eigu sömu aðila. Ísey stýrir útflutn­ingi og erlendri starf­semi sem áður til­heyrði Mjólk­ur­sam­söl­unni og snýr fyrst og fremst að mark­aðs­setn­ingu á skyri í útlöndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár