Lýsa yfir vonbrigðum með úthlutunarreglur LÍN

Full­trúar náms­manna í stjórn LÍN lýsa yfir von­brigðum með úthlut­un­ar­reglur LÍN 2018 til 2019.

Full­trúar náms­manna í stjórn LÍN lýsa yfir von­brigðum með úthlut­un­ar­reglur LÍN 2018 til 2019 en þeir telja að í þeim birt­ist, vilja­leysi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra sem og meiri­hluta stjórnar LÍN til að koma til móts við náms­menn svo um munar, þótt vissu­lega eitt­hvað hafi færst í rétta átt. Námsmenn hafa und­an­farin ár setið á hak­anum og ekki hlotið þær kjara­bætur sem aðrir hópar hafa fengið. Full­trúar náms­manna í stjórn LÍN von­uð­ust eftir að staða náms­manna yrði nú loks bætt en þeir virð­ast þurfa bíða enn um sinn eftir almenni­legum kjara­bótum.

[links]Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá full­trúum í stjórn LÍN sem send var út í dag.

Að mati full­trú­anna er ekki nóg að gert fyrir náms­menn í nýsam­þykktum úthlut­un­ar­regl­unum fyrir skóla­árið 2018 til 2019. Segja þau að almennt frí­tekju­mark LÍN breyt­ist ekk­ert milli ára og að ekki verði gerð breyt­ing á frí­tekju­marki þeirra sem koma úr náms­hléi.

„Almenna frí­tekju­markið er enn 930.000 kr. fyrir skatt og ef árs­tekjur náms­manna eru hærri skerð­ist lánið sem nemur 45 pró­sent af umfram­tekjum. Frí­tekju­markið var síð­ast hækkað árið 2014, en laun í land­inu hafa hækkað um 32 pró­sent frá því ári skv. launa­vísi­tölu Hag­stof­unnar. Þá er frí­tekju­mark öryrkja rúm 1.300.000 kr og höfðu full­trúar náms­manna­hreyf­ing­anna í stjórn LÍN von­ast eftir að frí­tekju­mark náms­manna yrði sam­bæri­legt en meiri­hluti stjórnar hafn­aði því.

Grunn­fram­færsla náms­manna, sem byggð er á grunn­við­miði neyslu­við­miða vel­ferð­ar­r­ráðu­neyt­is­ins, hækkar um aðeins 4 pró­sent og er því enn of lág eða ein­ungis 96 pró­sent en ekki 100 pró­sent af þessum grunn­við­miðum. Þá tekur hús­næð­is­kostn­aður í úthlut­un­ar­regl­unum mið af leigu­verði á Stúd­enta­görðum, þó svo almennt leigu­verð sé mun hærra og ein­ungis 9% stúd­enta hafi aðgang að stúd­enta­görðum. Ein­stak­lingur í leigu­hús­næði eða eigin hús­næði mun því ein­ungis fá 184.000 kr. á mán­uði. Stúd­entar eiga ekki að þurfa að sætta sig við að fá fram­færslu sem er undir fram­færslu­þörf.

Stjórn LÍN sam­þykkti að hækka fram­færslu í 100 pró­sent og einnig þá eðli­legu kröfu náms­manna að hækka ferða­lán þeirra sem stunda nám erlendis, úr því að fá lánað fyrir einni ferð á náms­tíma, í eina ferð á ári. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafn­aði því að stað­festa þær til­lögur stjórnar fyrir náms­árið 2018-2019. Sam­þykkti stjórn LÍN því nýjar úthlut­un­ar­reglur að til­lögum ráð­herra, þar sem m.a. ferða­lán voru ekki hækkuð og fram­færslan ein­ungis hækkuð í 96%. Þá neit­aði meiri­hluti stjórnar að hækka lán til skóla­gjalda þrátt fyrir að það liggi fyrir að þau dugi ekki í mörgum til­vikum.

Því ber þó að fagna að stjórn LÍN hafi sam­þykkt að end­ur­skoða fram­færslu­grunn fyrir náms­menn erlendis. Treyst er á að haft verði sam­ráð við full­trúa nem­enda þegar kemur að þeirri vinnu og að hún verði ekki ein­skorðuð við skoðun á því að lána í íslenskum krónum. Þá vilja full­trúar náms­manna einnig gera veru­lega athuga­semd við vinnu­brögð mennta­mála­ráð­herra í tengslum við úthlut­un­ar­regl­urnar. Stjórn LÍN fékk innan við klukku­tíma til þess að taka afstöðu til þeirra breyt­inga sem ráð­herra vildi gera á til­lögum stjórnar LÍN á úthlut­un­ar­regl­unum. Það er í besta falli óeðli­legt að stjórn LÍN eigi að taka upp­lýsta ákvörðun og sam­þykkja þær reglur sem ákvarða kjör náms­manna, á sama tíma og þeim eru kynntar breyt­ing­ar­til­lögur frá ráðu­neyt­inu, líkt og raunin var degi fyrir páska­frí,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár