Upplýsingar um eignir Pútín og meinta spillingu birtar á næstu dögum

Vladimír Pútín, forseti Rússlands.
Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands. Mynd: EPA

Á næstu dögum verða birtar ýmsar upp­lýs­ingar um Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, vini hans og fjöl­skyldu í ýmsum fjöl­miðlum víða um heim. Upp­lýs­ing­arnar munu birt­ast í fjöl­miðlum í Þýska­landi, Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Frakk­landi, Sviss, Rúss­landi og fleiri löndum. Þær snú­ast meðal ann­ars um hversu mik­ils virði eignir Pútín eru, um tengsl hans við rúss­neska við­skipta­jöfra, spill­ingu og þátt­töku hans í ýmis konar kæru­lausu athæfi þegar hann var yngri. Þetta kom fram í yfir­lýs­ingu frá Dmitry Peskov, tals­manns stjórn­valda í Kreml í dag.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans standa alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, fyrir umfjöll­un­inni. Það eru sömu sam­tök og vinna nú að birt­ingu á fréttum um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum. Á meðal þeirra sem verða til umfjöll­unar í þeirri umfjöllun er Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og eig­in­kona hans, en hún á félag sem skráð er á Bresku Jóm­frú­areyj­unum.

Haft er eftir Peskov í ýmsum erlendum fjöl­miðlum að um sé að ræða „fjöl­miðla­árás“ á Pútín sem stjórn­völd í Moskvu hafi orðið með­vituð um eftir að ýmsar fyr­ir­spurnir bár­ust frá miðlum vegna máls­ins. Peskov sagði að Rússland hefði lög­fræði­lega getu til að verja virð­ingu for­seta lands­ins, hvort sem um væri að ræða inn­an­lands eða alþjóð­lega. Hægt er að lesa umfjöllun í rúss­neskum fjöl­miðlum hér og hér.

Ætla að birta upplýsingar um eignir Íslendinga í skattaskjólum

Kjarninn greindi frá því þann 17. mars að Reykja­vík Media ehf., fjöl­miðla­fyr­ir­tæki í eigu Jóhann­esar Kr. Krist­jáns­sonar, ICIJ, sem eru alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, þýska dag­blaðið Süddeutsche Zeitung og fleiri erlendir fjöl­miðlar hafa unnið saman að fréttaum­fjöllun um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum und­an­farna mán­uði. Þær fréttir munu birt­ast þeim miðlum á allra næstu vikum. Þetta stað­festi Jóhannes Kr. í sam­tali við Kjarnann. Líkt og áður sagði eru þetta sömu sam­tök sem eru að vinna að birt­ingu umfjöll­unar um Vladimír Pútín í sam­starfi við ýmsa erlenda fjöl­miðla.

Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, opin­ber­aði í stöðu­upp­færslu á Facebook fyrir tæpum tveimur vikum að hún ætti erlent félag sem héldi utan um miklar eignir hennar. Þær eignir eru arfur sem hún fékk í kjöl­far þess að fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki hennar seldi Toyota á Íslandi árið til til Smáeyjar ehf. fyr­ir­tækis Magnúsar Krist­ins­sonar, í des­em­ber 2005 fyrir 5,6 millj­arða króna. Eignir for­sæt­is­ráð­herra­hjón­anna eru um 1,2 millj­arðar króna sam­kvæmt skatt­fram­tölum og eru þær að langstærstu leyti inni í umræddu félagi. Anna Sig­ur­laug til­tók sér­stak­lega að hún hefði staðið skil á öllum sköttum hér­lendis sem hún hefði átt að greiða.

Opin­berun hennar kom í kjöl­far þess að Jóhannes Kr. setti sig í sam­band við for­sæt­is­ráð­herra vegna þeirrar umfjöll­unar sem birt verður á næstu vikum, en þar er meðal ann­ars fjallað um félag eig­in­konu hans.

Sig­mundur Davíð hefur legið undir ámæli eftir að opin­ber­unin átti sér stað, sér­stak­lega vegna þess að eig­in­kona hans á einnig kröfur í slitabú föllnu bank­anna fyrir rúman hálfan millj­arð króna. Stórar spurn­ingar hafa verið settar við hæfi for­sæt­is­ráð­herra til að koma að áætlun um losun hafta vegna þessa. Sig­mundur Davíð birti í gær spurn­ingar og svör á blogg­síðu sinni þar sem hann svarar eigin spurn­ingum um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár