Enn greinast smit hjá starfsfólki og sjúklingum á Landakoti

Smit grein­ast ennþá hjá starfs­fólki og sjúk­lingum sem voru útsettir á Landa­koti fyrir COVID-19. Ekkert nýtt smit hefur greinst utan hins skil­greinda útsetta hóps starfs­manna og sjúk­linga.

Alls greindust 42 ný til­felli af COVID-19 hér á landi í gær. Af þeim sem greindust voru 52 pró­sent í sótt­kví. Nú eru 1.005 í ein­angrun vegna sjúk­dóms­ins en í sótt­kví eru 1.730. 62 ein­stak­lingar liggja á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins. Þar af tveir á gjör­gæslu og einn í önd­un­ar­vél.

Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hafa 4.719 greinst með kór­ónu­veiruna á Íslandi. ­Tölu­legar upp­lýs­ingar um COVID-19 á Íslandi má skoða á covid.is.

Einn ein­stak­lingur lést á Land­spít­ala síð­asta sól­ar­hring vegna COVID-19, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef spít­al­ans í dag.

Sól­ar­hring­inn þar á undan lést einnig einn ein­stak­lingur vegna COVID-19 og eru and­látin því tvö á tveimur dög­um.

Þrír hafa nú lát­ist frá því að sjúk­dóm­ur­inn fór að breið­ast frekar út í sam­fé­lag­inu á haust­mán­uðum og 13 manns alls frá því að fyrsta til­felli COVID-19 greind­ist hér á landi í lok febr­ú­ar.

Í til­kynn­ingu frá Land­spít­al­anum sem send var til fjöl­miðla í dag kemur fram að „eins og búast mátti við grein­ast enn smit hjá starfs­fólki og sjúk­lingum sem voru útsettir á Landa­koti fyrir COVID-19. Ekkert nýtt smit hefur greinst utan hins skil­greinda útsetta hóps starfs­manna og sjúk­linga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár