Prinsessa fædd í Bretlandi - veðjað um nöfn og kvartað yfir athyglinni

Her­toga­hjón­unum af Cambridge, Vil­hjálmi prins og Katrínu Midd­leton, fædd­ist dóttir í morgun. Fæðing barns­ins er aðal­frétt fjöl­miðla víða um heim, en greint var frá því í morgun að hjónin hefðu farið á fæð­ing­ar­deild­ina á St. Mary´s spít­ala í London klukkan sex í morgun, fimm að íslenskum tíma. Barnið fædd­ist svo um 8:30 í morgun að breskum tíma.

Svona var til­kynnt um fæð­ingu barns­ins í morgun.



Great footage of a Town Crier mak­ing the Royal Baby announcement.(Video courtesy of APTN)

Posted by The Tel­egraph on Saturday, May 2, 2015

Það er ýmis­legt fleira en stærð barns­ins og það hvenær fjöl­skyldan fer heim af spít­al­anum sem rætt er um í Bret­landi í dag. Þar hefur verið hægt að veðja svo mán­uðum skiptir um það hvort barnið yrði stelpa eða strákur, og tals­maður veð­fyr­ir­tæk­is­ins

William Hill sagði í morgun

að margir hefðu veðjað á síð­ustu klukku­stund­unum, eftir að til­kynnt var að von væri á barn­inu.

Síðast þegar hjón­unum fædd­ist barn varð mikil aukn­ing í veð­málum eftir fæð­ing­una, og þá um það hvað barnið myndi heita. Búist er við því að það verði sama sagan núna. Mestu lík­urnar eru nú taldar á því að stúlkan verði skírð Charlotte, en lengi vel var Alice talið lík­leg­ast.

Þá er hægt að veðja um ýmis­legt annað, eins og það hver mun halda á barn­inu þegar hjónin yfir­gefa spít­al­ann og það hver lit­ur­inn á kjól her­toga­ynj­unnar verður.


Here's the BT Tower in central London http://t.co/wHYsdWmhPQ #Royal­Baby pic.twitter.com/saJUam0rZZ


— BBC News (UK) (@BBCNews) May 2, 2015

Af hverju eru ekki öll börn fædd jöfn?


Ekki eru þó allir jafn ánægðir með fæð­ingu prinsessunnar og þá athygli sem hún hefur vakið. Samtökin Republic, eða lýð­veldi, berj­ast fyrir afnámi kon­ungs­veld­is­ins. Þau hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu um fæð­ingu barns­ins þar sem gagn­rýnt er hversu mikla athygli fæð­ing barns­ins hlýtur. Fjöl­miðlar eru sér­stak­lega gagn­rýndir.

Graham Smith, leið­togi sam­tak­anna segir: „Þetta eru kannski fréttir, en þetta eru ekki stórar fréttir, þetta eru ekki aðal­frétt­irnar og þetta eru ekki þær fréttir sem flest fólk hefur áhuga á, nema fyrir for­vitn­issakir í stutta stund.“ Nú væru afskap­lega mik­il­vægar kosn­ingar á næsta leyti og þá væru ýmis­legt í gangi ann­ars staðar í heim­inum, og það að eyða meiru en 30 sek­úndum í fréttir af fæð­ingu prinsessunnar væru mjög yfir­drifin við­brögð.

„Af hverju er þetta barn að fara að verða þjóð­höfð­ingi? Af hverju eru ekki öll börn fædd jöfn? Hvað segir þessi fæð­ing um rétt­indi kon­ung­bor­inna barna og allra ann­arra barna? Um 2.200 börn fæð­ast á hverjum degi í Bret­landi - setjum þetta nú í sam­hengi og ein­beitum okkur að alvar­legu vanda­mál­unum sem erfða­réttur og for­rétt­indi eru.“

Hér fyrir neðan má fylgj­ast með beinni útsend­ingu Sky News.

https://youtu.be/sw4hmqVPe0E

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár