Viljayfirlýsing um kaup erlendra fjárfesta á Íslandsbanka gæti legið fyrir í febrúar

Sala á hlut slita­stjórnar Glitnis á 95 pró­sent hlut sínum í Íslands­banka er langt komin, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Vonir standa til að hópur erlendra fjár­festa skrifi undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaupin fyrir febr­ú­ar­lok. Um er að ræða hóp sem sam­anstendur meðal ann­ars af aðilum í Hong Kong sem eiga hlut í mörgum fjár­mála­fyr­ir­tækjum.

Gangi áformin eftir mun slita­stjórn Glitnis fá erlendan gjald­eyri fyrir hlut sinn í bank­anum og inn­lendar eignir þrota­bús Glitnis lækka um það sem nemur kaup­verð­inu. Miðað við bók­fært virði á hlut Glitnis í Íslands­banka gæti það verið um 150 millj­arðar króna. Gangi áformin eftir gæti söl­unni á Ísland­banka lokið um mitt þetta ár. Áformin voru kynnt fyrir ráð­gjöfum stjórn­valda á fundi með þeim í des­em­ber síð­ast­liðnum.

[caption id="attachment_18324" align="align­right" width="300"] Steinunn Guð­bjarts­dóttir er for­maður slita­stjórnar Glitnis.[/caption]

Steinunn Guðbjartsdóttir er formaður slitastjórnar Glitnis.
Steinunn Guð­bjarts­dóttir er for­maður slita­stjórnar Glitnis.

Kaupin yrðu enda bundin því að íslensk stjórn­völd myndu blessa þau. Auk þess þyrfti að semja um hvers kyns hömlur yrðu settar á arð­greiðslur bank­anna til erlendra eig­enda á meðan að fjár­magns­höft eru við lýði. Þá þarf að taka póli­tíska afstöðu til þess hvort vilji sé til að selja íslenskan banka til erlendra fjár­festa.

Stærstu kröfu­hafar Glitnis eru erlendir vog­unar- og fjár­fest­inga­sjóðir.

Skráning í Osló kom líka til greina


Slita­stjórn Glitnis hefur unnið að því í langan tíma að reyna að selja Íslands­banka. Í lok árs 2012 bjó hún til hóp utan um verk­efnið sem gengur undir nafn­inu „Project Puffin“. Um miðjan jan­úar 2013 fór sá hópur í ferð um Osló, Stokk­hólm og Kaup­manna­höfn til að kanna áhuga fjár­festa á því að kaupa hlut í Íslands­banka ef hann yrði tví­skráður, ann­ars vegnar á markað á Norð­ur­lönd­unum og hins vegar á Íslandi.

Fund­irnir stað­festu að Osló væri besti stað­ur­inn til að skrá bank­ann, en áður hafði Stokk­hólmur líka verið skoð­aður. Ástæður þessa voru fyrst og fremst þær að fjár­festar í Noregi eru taldir opn­ari fyrir óvenju­legum tæki­færum auk þess sem bankar þar í landi hafa mikla þekk­ingu á kjarna­at­vinnu­vegum Íslend­inga (sjáv­ar­út­vegi, orku og ferða­mennsku). Þeir atvinnu­vegir eru líka uppi­staðan í við­skipta­vina­neti Íslands­banka. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er ekki búið að slá tví­skrán­ingu út af borð­inu. Íslands­banki yrði þá skráður í kaup­höll­ina í Osló og íslensku kaup­höll­ina. Þorri hluta­bréfa í honum yrði seldur í gegnum kaup­höll­ina í Osló en 10 til 20 pró­sent hlutur yrði seldur í gegnum íslensku kaup­höll­ina.

Heim­ildir Kjarnans herma hins vegar að asíski fjár­festa­hóp­ur­inn sé það áhuga­samur um að kaupa Íslands­banka, að bein sala sé mun lík­legri en tví­skrán­ing eins og staðan er í dag. Bæst hefur í hóp fjár­fest­anna frá því í haust. Það er þó, líkt og áður sagði, alltaf bundið sam­þykki stjórn­valda.

Kaupþing reynir að losna við Arion banka


Slita­stjórn Kaup­þings hefur líka unnið að því að losa um 87 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Arion banka, enda er sá hlutur uppi­staðan í inn­lendum eignum þrota­bús Kaup­þings. Ef slita­stjórn­inni tæk­ist að losna við Arion banka, annað hvort í skiptum fyrir kröfur eða fyrir erlendan gjald­eyri, telur hún að ekk­ert sé því til fyr­ir­stöðu að ljúka nauða­samn­ingum við kröfu­hafa bús­ins. Búið á um 162 millj­arða í íslenskum krónum og þar af er eign­ar­hlut­ur­inn í Arion banka um 140 millj­arða króna virði. Afgang­ur­inn eru inn­stæður í reiðufé sem búið reiknar með að fari í að greiða íslenska rík­inu banka­skatt.

[caption id="attachment_13100" align="alignnone" width="624"] Jóhannes Rúnar Jóhanns­son situr í slita­stjórn Kaup­þings.[/caption]

Jóhannes Rúnar Jóhannsson situr í slitastjórn Kaupþings.
Jóhannes Rúnar Jóhanns­son situr í slita­stjórn Kaup­þings.

Ef hægt yrði að losna við Arion fyrir annað en íslenskar krónur telur slita­stjórnin ekk­ert í vegi fyrir því að nauða­samn­ing­ur­inn yrði klár­aður, enda myndi honum ekki fylgja neitt útflæði á krónum sem gæti ógnað greiðslu­jöfn­uði.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans lagði slita­stjórnin marg­vís­legar til­lögur um lausn á „Arion-vanda­mál­inu“ fyrir ráð­gjafa stjórn­valda á fundi sem hald­inn var með þeim 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Ein þeirra hug­mynda var sú að Kaupþing myndi afhenda Eign­ar­safni Seðla­banka Íslands (ESÍ) eign­ar­hlut sinn í Arion banka í skiptum fyrir þær sam­þykktu kröfur sem ESÍ á á búið. Þær eru metnar á um 35 millj­arða króna. Þannig myndi ESÍ eign­ast bank­ann með um 85 millj­arða króna afslætti frá bók­færðu virði hans. DV greindi fyrst frá þessu til­boði fyrr í jan­ú­ar­mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár