Sólveig Anna valin maður ársins af Stöð 2

Sólveig Anna Jóns­dóttir var valin maður árs­ins af frétta­stofu Stöðvar 2. Sólveig tók við við­ur­kenn­ing­unni í Krydd­síld­inni í dag og nýtti tæki­færið til að spyrja for­menn þing­flokk­anna hvort þau treystu sér til að lifa á lægstu launum lands­ins

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd: Skjátskot/Kryddsíldin

Sólveig Anna Jóns­dóttir var valin maður árs­ins 2018 af frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Hún var valin maður árs­ins fyrir sína óvæntu, ein­örðu og hvössu verka­lýðs­bar­áttu. Sólveig mætti í

Krydd­síld­ina

í dag til að taka móti við­ur­kenn­ing­unni og sagð­ist hún vera mjög upp með sér að hafa verið valin og að hún tæki heiðr­inum alvar­lega.

Sólveig Anna var kosin for­maður Eflingar, næst fjöl­menn­asta verka­lýðs­fé­lagi lands­ins, í mars á þessu ári. Í kynn­ingu um mann árs­ins segir að rót­tæk fram­ganga Sól­veigar hafi vakið þjóð­ar­at­hygli og að sú ósveigj­an­leg kröfu­gerð sem hún tali fyrir geti haft afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir lífs­kjör þorra lands­manna.

Spurði formennina hvort þeir gætu lifað á lægstu launum

Sólveig sagði í Krydd­síld­inni að laun hinna lægst settu í íslensku sam­fé­lagi væru skelfi­lega lág og að ómögu­legt væri að lifa á slíkum launum. Hún sagði jafn­framt að krafa Eflingar um hækkun lág­marks­launa í 425 þús­und krónur væri ófrjá­v­íkan­leg.

Aðspurð sagði hún sitt fyr­ir­mynd­ar­sam­fé­lag vera sam­fé­lag rétt­lætis og jöfn­uðar. „Þar sem allt fólk fengi að blómstra og rækta hæfi­leika sína og að fólk þyrfti ekki að lifa með skugga efna­hags­legrar óvissu yfir sér. Ég held að slíkt sam­fé­lag sé besta mögu­lega sam­fé­lagið.“

Í kjöl­farið beindi hún orðum sínum að for­ystu­fólki stjórn­mála­flokka Alþingis sem einnig var statt í salnum fyrir Krydd­síld­ina. Hún spurði hvort að for­menn­irnir treystu sér til að lifa á lægstu launum lands­ins. Hvort þau treystu stér til að tryggja efna­hags­legt öryggi sitt og fjöl­skyldu þeirra á þeim „smán­ar­legu launum“ sem mörgum sé greitt.

Sólveig sagð­ist einnig ætla nýta tæki­færið og spyrja for­menn­ina hvort þeir væru til­búnir að stíga fram og styðja kröfu verka­lýðs­fé­lag­anna. „Mig langar jafn­framt að spyrja þau hvort þau sjái sér ekki fært að stíga fram og styðja við kröf­una okkar um 425 þús­und króna lág­marks­laun til handa þeirra sem hér vinna á lægstu laun­unum. Hvort við getum ekki sam­ein­ast í því í þessu ríka landi, sem vill kenna sig við lýð­ræði og mann­rétt­indi, að tryggja öllum sem hér lifa og starfa efna­hags­legt rétt­læti og sann­girni?“

Erfitt að eiga fjölskyldu og lifa á lágmarkslaunum

Enginn af for­mönn­unum sagð­ist treysta sér í að lifa á lág­marks­launum nema Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins en hún sagð­ist treysta sér til lifa á þessu „lús­ar­launum“ enda hafi hún gert það oft áður. Inga óskaði Sólveigu til ham­ingju með tit­il­inn og sagð­ist líta upp til bar­áttu­fólks­ins í verka­lýðs­bar­át­unni. Hún sagði ákveðna veru­leikafirr­ingu ein­kenna stjórn­völd hér á landi og það yrði að koma til móts við fólkið í land­inu.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagð­ist ekki geta lifað á lægstu launum með sín fjögur börn. Hann sagði að sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar búi aðeins 1 pró­sent þjóð­ar­innar við lág­marks­laun og 10 pró­sent þjóð­ar­innar væri með laun undir 400 þús­und krónur. Bjarni sagði enn­fremur að fólk yrði að gæti sig á spyrja slíkra spurn­inga, að spyrja hvort að lægsti taxti dugi öllum. Hann sagð­ist vita af ein­stak­lingum í námi sem geti lifað á slíkum launum ef þeir nýttu sér einnig náms­lán. Bjarni sagði að lámarks­laun geti því dugað fyrir suma en vissu­lega ekki fyrir alla og ekki þá sem fjár­festa í fast­eign og reka fjöl­skyldu.

Halldóra Mog­ens­sen, þing­maður Pírata sagð­ist einnig vera mjög ánægð með að Sólveig væri maður árs­ins. Hún sagði jafn­framt að eng­inn ætti að þurfa lifa á svona lágum launum og sagði það í raun mjög dýrt fyrir sam­fé­lagið allt. Hún beindi því spurn­ing­unni til leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar og spurði hvað fátækt kost­aði sam­fé­lagið í heild sinni.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagð­ist sann­ar­lega ekki geta lifað á lág­marks­launum með fjöl­skyldu. Hann ítrek­aði mik­il­vægi þess að ekki væri eytt tíma í að tala um eitt­hvað „rugl“ í stjórn­málum því þá gæf­ist ekki tími til að tala um önnur mál til dæmis kjara­mál. Hann sagði það hins vegar ekki ger­ast vegna þess að fólk væri svo upp­tekið af Klaust­ur­bar og „ein­hverju rugli“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár